Traust til Bjarna og Sigmundar minnkar og vantraust eykst

Flestir Íslend­ingar bera mikið traust til Ólafs Ragnars Gríms­sonar for­seta og Katrínar Jak­obs­dóttur for­manns Vinstri grænna. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR á trausti almenn­ings til for­ystu­fólks í stjórn­málum. Á eftir þeim njóta Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og Birgitta Jóns­dóttir kapteinn Pírata mests trausts.

48,5 pró­sent spurðra sögð­ust bera mikið traust til Ólafs Ragnars, og 46,7 pró­sent til Katrínar. 37 pró­sent sögð­ust bera mikið traust til Dags og 32,3 pró­sent til Birgittu. Birgitta er jafn­framt eini stjórn­mála­leið­tog­inn sem nýtur meira trausts nú en í júní 2013, fyrir utan þá sem hafa ekki verið mældir fyrr.

Fleiri bera mikið traust til Guð­mundar Stein­gríms­sonar, for­manns Bjartrar fram­tíðar, en til beggja leið­toga stjórn­ar­flokk­anna, Bjarna Bene­dikts­sonar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. 24,9 pró­sent treysta Guðmundi, en 22,8 pró­sent treysta Bjarna og 17,5 pró­sent Sigmundi Davíð.

Jafn­framt er fjöldi þeirra sem segj­ast bera lítið traust til Bjarna og Sig­mundar meiri en hjá öðrum stjórn­mála­leið­togum. 57,9 pró­sent segj­ast bera lítið traust til Bjarna og 63,2 pró­sent treysta Sigmundi Davíð illa.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, rekur lest­ina í traustsmæling­unum, 14,9 pró­sent segj­ast treysta honum vel.

Hversu mikið traust berð þú til eft­ir­far­andi aðila?

|

Create infographics

Miklar sveiflur milli kannana

MMR mældi traust til stjórn­mála­leið­toga í febr­úar í fyrra og í júní árið 2013, skömmu eftir að rík­is­stjórn Sig­mundar og Bjarna var mynduð. Árið 2013 sögð­ust 33,8 pró­sent aðspurðra treysta Bjarna vel, og 48,8 pró­sent sögð­ust treysta Sigmundi Davíð vel. Í fyrra hafði traust til þeirra beggja minnkað tals­vert, en þá sögð­ust tæp 25 pró­sent treysta Bjarna en traust á Sigmundi var komið niður í 23,2 pró­sent. Í mæl­ing­unum nú er traust til Bjarna 22,8 pró­sent og traust til Sig­mundar 17,5 pró­sent.

Hafa verður í huga að vik­mörk í könn­unum sem þessum geta verið allt að 3,1 pró­sent. 1060 ein­stak­lingar svör­uðu könn­un­inni, sem var fram­kvæmd frá 30. mars til 8. apríl. Miðað við það eru breyt­ingar á trausti til Bjarna milli kann­ana innan marka.

Einnig hafa orðið miklar breyt­ingar á van­trausti til leið­toga stjórn­ar­flokk­anna frá því að þeir tóku við störfum. Í júní 2013 sögð­ust 43,3 pró­sent bera lítið traust til Bjarna, og 27,6 pró­sent báru lítið traust til Sig­mundar. Í febr­úar í fyrra hafði þeim sem van­treystu Bjarna fjölgað í 54,1 pró­sent og þeim sem báru lítið traust til Sig­mundar hafði fjölgað enn meira, í 58,2 pró­sent. Í þess­ari könnun segj­ast 57,9 pró­sent bera lítið traust til Bjarna en 63,2 pró­sent bera lítið traust til Sig­mundar.

[caption id="attachment_17707" align="alignnone" width="640"] Dagur er mældur sem stjórn­mála­leið­togi í fyrsta sinn. MYND/BIRGIR ÞÓR[/caption]

Dagur miklu vinsælli en Árni Páll


Athygli vekur að sam­fylk­ing­ar­mað­ur­inn Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, er miklu vin­sælli en Árni Páll Árnason, for­maður flokks­ins, sam­kvæmt könn­un­inni. Aldrei hafa jafn fáir sagst bera mikið traust til Árna Páls og nú síðan hann tók við sem for­maður flokks­ins, eða 14,9 pró­sent. Á sama tíma mælist traust til Dags 37 pró­sent, en þetta er í fyrsta sinn sem traust og van­traust til hans er mælt í könn­unum MMR.

Samkvæmt könn­un­inni hafa aldrei fleiri borið lítið traust til Árna Páls en nú, en alls 53,6 pró­sent aðspurðra sögð­ust treysta honum frekar eða mjög lítið. Um þriðj­ungur aðspurðra sögð­ust treysta Degi frekar eða mjög lítið.

Ef litið er aftur til mæl­inga sem gerðar voru rétt eftir síð­ustu kosn­ingar sést að þeim hefur fækkað sem segj­ast treysta Katrínu Jak­obs­dóttur vel, en skömmu eftir kosn­ingar mæld­ist hún með 62,5 pró­senta traust og 17,2 pró­senta van­traust. Katrín hefur þó frá því að hún var mæld fyrst verið sá leið­togi sem fæstir segj­ast van­treysta. 26,3 pró­sent segj­ast bera lítið traust til hennar nú, en aðeins Ólafur Ragnar er nálægt henni í þeim mæl­ingum. 29,2 pró­sent segj­ast bera lítið traust til hans. Birgitta Jóns­dóttir og Guð­mundur Stein­gríms­son eru á svip­uðum slóðum í van­traustsmælingum, 37,2 og 37,9 pró­sent segj­ast bera lítið traust til þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár