Ferðaþjónusta fatlaðra týndi öðrum notanda í dag

Ungur not­andi ferða­þjón­ustu fatl­aðra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu skil­aði sér ekki til síns heima síð­degis. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Strætó, sem send var fjöl­miðlum undir kvöld, var brugð­ist við atvik­inu í sam­ræmi við alvar­leika þess. Síðar kom í ljós að not­and­inn hafði farið til nágranna­konu í sama fjöl­býl­is­húsi og hann býr. Samkvæmt frétta­vefnum mbl.is er um að ræða ell­efu ára gamla fatl­aða stúlku, sem ekki var skilað heim til sín.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ing­unni, sem und­ir­rituð er af Jóhann­esi Rún­ars­syni fram­kvæmda­stjóra Strætó, hefur málið verið tekið til athug­unar hjá neyð­ar­stjórn ferða­þjón­ustu fatl­aðra og Strætó enda er það litið alvar­legum augum. Þá segir í til­kynn­ing­unni að við fyrstu athugun hafi verk­lags­reglum ferða­þjón­ust­unnar ekki verið fylgt þegar not­and­anum var ekið til síns heima án þess að koma honum í öruggar hendur for­eldra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár