Fjárfestingaleiðin skilaði fjárfestum 48,7 milljarða afslætti

Sé mið tekið af gengi krón­unnar gagn­vart evru um þessar mundir, 149,8 krónur fyrir evru, fengu fjár­festar tæp­lega 50 millj­arða afslátt á fjár­fest­ingum sínum í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands. Síðasta útboðið fór fram í gær, en nið­ur­staðan úr fjár­fest­inga­leið­inni var sú að ríf­lega einn millj­arður evra kom inn í landið í gegnum fjár­fest­inga­leið­ina en fyrir þær feng­ust 206 millj­arðar króna. Opinbert gengi Seðla­banka Íslands á evr­unni gerir ráð fyrir að evr­urnar sem komu inn í landið séu ríf­lega 157 millj­arða króna virði, og nemur mis­mun­ur­inn á afslætt­inum sem fjár­festar fengu með þátt­töku sinni í fjár­fest­inga­leið­inni, 48,7 millj­örðum, miðað við núver­andi gengi.

Útboðin, sem nú er lokið en síð­ustu útboðin fóru fram í gær, voru liður í losun hafta á fjár­magns­við­skiptum, sam­an­ber áætlun Seðla­bank­ans um losun gjald­eyr­is­hafta frá 25. mars 2011.

Hinn 9. des­em­ber 2014 bauðst Seðla­banki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjár­fest­ingar til langs tíma í íslensku atvinnu­lífi eða gegn greiðslu í rík­is­verð­bréfum í flokknum RIKS 33 0321, að því er segir í til­kynn­ingu frá því í gær um síð­ustu útboðin í fjár­fest­inga­leið­inni. Jafn­framt kall­aði Seðla­banki Íslands eftir til­boðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjald­eyri. Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:30 og 10:30 í gær. Krónu­kaupa­út­boðið fór fram á milli kl. 10:45 og 11:45. Útboðin voru liður í losun hafta á fjár­magns­við­skiptum, sam­an­ber áætlun Seðla­bank­ans um losun gjald­eyr­is­hafta frá 25. mars 2011, að því er segir í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár