Skref í losun hafta á að fækka undanþágubeiðnum um 50-65 prósent

Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson kynntu frumvarpið í gær ásamt Má Guðmundssyni, seðlabankastjóra.
Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son kynntu frum­varpið í gær ásamt Má Guð­munds­syni, seðla­banka­stjóra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Frumvarp um losun fjár­magns­hafta á ein­stak­linga og fyr­ir­tæki verður lagt fram á Alþingi í dag. Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar og seðla­banka­stjóri kynntu aðgerð­irnar sem það felur í sér á blaða­manna­fundi í gær. Fjár­magns­höft hafa verið í gildi á Íslandi frá því í lok nóv­em­ber 2008, þegar lög þess efnis voru sam­þykkt á Alþingi. Því hafa Íslend­ingar búið við þær tak­mark­anir á fjár­magns­hreyf­ingum sem fylgja höftum í tæp átta ár. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið áætlar að beiðnum um und­an­þágur frá lögum um gjald­eyr­is­mál muni fækka um 50-65 pró­sent verði frum­varpið að lögum. Almenn­ingur mun fá að fjár­festa fyrir allt að 100 millj­ónir króna erlendis í kjöl­far þess.

Þótt að í boð­uðum breyt­ingum á höft­unum felist aukið frelsi til fjár­magns­hreyf­ingu til og frá land­inu þá verða höft ekki afnumin. Enn verða tak­mark­anir og Seðla­banki Íslands mun áfram hafa ýmis tól til inn­grips telji hann þess þurfa.

Strax við gild­is­töku lag­anna mun bein erlend fjár­fest­ing inn­lendra aðila verða ótak­mörkuð en áfram háð stað­fest­ingu Seðla­banka Íslands. Fjár­fest­ing í fjár­mála­gern­ingum upp að ákveð­inni upp­hæð verður að mestu frjáls og ein­stak­lingar mega kaupa sér eina fast­eign á ári erlendis sem má kosta hvað sem er. Þá verður dregið úr skila­skyldu inn­lendra aðila á erlendum gjald­eyri og hún afnumin vegna lán­töku ein­stak­linga hjá erlendum aðilum vegna kaupa á fast­eign, fara­tæki eða fjár­fest­inga erlendis. Þá munu Íslend­ingar sem hyggja á ferða­lög erlendis ekki lengur þurfa að fram­vísa flug­miða til að geta keypt gjald­eyri í banka.

Á sama tíma verða heim­ildir Seðla­banka Íslands til upp­lýs­inga­öfl­unar auknar. Starfs­fólk hans mun því mega safna umfangs­meiri upp­lýs­ingum um gjald­eyr­is­notkun Íslend­inga en áður. Þetta er sagt vera til að hjálpa bank­anum við að stuðla að verð­lags- og fjár­mála­stöð­ug­leika.

Í byrjun næsta árs verður fjár­hæð­ar­mörk til fjár­fest­inga í erlendum fjár­mála­gern­ingum hækkuð og inn­stæðu­flutn­ingur heim­il­aður. Það þýðir að hægt verður að leggja inn á banka­reikn­inga á milli landa að nýju án þess flækju­stigs sem nú er á slíkri aðgerð. Auk þess stendur til að rýmka heim­ildir ein­stak­linga til að kaupa gjald­eyri veru­lega.

Kjarninn mun fjalla ítar­lega um frum­varpið þegar það kemur fram síðar í dag.

Áætlun kynnt í fyrrasumar

Stjórn­völd kynntu áætlun sína um losun hafta í fyrra­sum­ar. Aðal­at­riði þeirrar áætl­unar snér­ust um að ljúka slitum þrota­búa föllnu bank­anna og aðgerðir til að taka á hinni svoköll­uðu aflandskrón­u­snjó­hengju í eigu erlendra aðila sem var föst innan íslenskra hafta. Samið var við kröfu­hafa föllnu bank­anna um að þeir gæfu eftir hluta eigna sinna gegn því að fá að fara með aðrar eignir út úr höftum og var gengið frá því sam­komu­lagi á síð­asta ári. 

Næsta stóra skref var svo aflandskrón­u­út­boð Seðla­banka Íslands, þar sem eig­endum slíkra voru boðnir tveir kost­ir. Annar fólst í því að eig­end­­­­urnir sam­­­­þykki að selja krón­­­­urnar sínar á geng­inu 190-220 krónur á hverja evru í útboði sem fór fram 16. júní síð­­­ast­lið­inn. Þeir sem myndu ekki sam­­­­þykkja að taka þátt í þessu útboð­i myndi bjóð­­­ast að fjár­­­­­­­festa í sér­­­­­­­stök­um inn­­­­­­­stæð­u­bréfum útgefnum af Seðla­­­­banka Íslands sem bera 0,5 pró­­­­sent vexti en vextir á þeim eru end­­­­ur­­­­skoð­aðir árlega.

Tvo útboð voru haldin í jún­í. Fjár­­hæð sam­­þykktra til­­­boða í báðum útboð­unum var 83 millj­­arðar króna. Alls voru 188 millj­­arðar króna boðnir í útboð­inu en heild­­ar­um­­fang aflandskrón­u­vand­ans var fyrir það um 319 millj­­arðar króna. Því liggur fyrir að stórir aflandskrónu­eig­endur tóku ekki þátt í útboð­un­um. Þar er aðal­lega um að ræða banda­ríska fjár­fest­inga­sjóði sem hafa boðað máls­höfðun gegn íslenska rík­inu vegna máls­ins.

Þá voru einnig fram­kvæmdar laga­breyt­ingar sem færðu Seðla­banka Íslands nýtt stjórn­tæki í tengslum við und­ir­bún­ing los­unar hafta. Um er að ræða reglu um bind­ingu reiðu­fjár vegna nýs inn­streymis erlends gjald­eyris sem á að draga úr svoköll­uðum vaxta­muna­við­skipt­u­m.

Allir ofan­greindir þættir áttu að marka leið­ina að losun hafta á ein­stak­linga og fyr­ir­tæki á Íslandi. Og nú hefur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnt frum­varp um hvað muni fel­ast í þeirri losun fyrir rík­is­stjórn sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármagnshöft

Fréttirfjármagnshöft

Fallið frá mála­ferlum vegna aflandskrónu­eigna

Fjórir fjár­fest­inga­sjóðir sem ætl­uðu sér að fara í mál við íslenska ríkið vegna lög­gjafar um með­ferð aflandskrónu­eigna hafa fallið frá því. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Sjóð­irnir höfðu fengið heim­ild frá Hæsta­rétti til að leggja spurn­ingar fyrir dóm­kvadda mats­menn vegna máls­ins en hafa nú fallið frá þeirri beiðni. Hæsti­réttur hafði heim­ilað sjóð­unum að bera upp fimm...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár