Jón Ásgeir spyr hver ætli að axla ábyrgð vegna dóms

Jón Ásgeir Jóhann­es­son seg­ist ánægður með dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, og seg­ist velta því fyrir sér hver ætli að axla ábyrgð á því að mann­rétt­indi séu fótum troðin í íslenskum rétt­ar­sölum.

Jón Ásgeir Jóhann­es­son seg­ist oft hafa haft það á til­finn­ing­unni að pottur væri brot­inn í íslensku rétt­ar­kerfi og að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í máli hans gegn rík­inu stað­festi þann grun hans.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Jón Ásgeir sendi fjöl­miðlum, og er líka á nýrri vef­síðu sem hann hefur sett í loftið.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu komst að þeirri nið­ur­stöðu í morgun að íslenska ríkið hafi brotið gegn þeim Jóni Ásgeiri og Tryggva Jóns­syni. Þeir voru dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir skatta­laga­brot í rekstri Baugs og fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums árið 2013, ásamt Krist­ínu Jóhann­es­dótt­ur. Þeir kærðu þann dóm til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins á þeim for­sendum að þeir hefðu þegar hlotið dóm fyrir sömu brot. Þeir höfðu verið dæmdir til sekt­ar­greiðslu af yfir­skatta­nefnd árið 2007. Málin tvö hefðu því verið byggð á sama grunn­i. Þeir töldu seinna málið því brjóta gegn meg­in­regl­unni um bann við end­ur­tek­inni máls­með­ferð, og undir að tók Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn. Mál­inu fyrir hönd Gaums var hins vegar vísað frá.

Jón Ásgeir segir í yfir­lýs­ing­unni að hann hafi ekki kynnt sér efni dóms­ins til hlítar, en að þetta séu virki­lega góðar fréttir. Nið­ur­staðan komi honum ekki á óvart heldur sé hún í sam­ræmi við fyrri dóma mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. „Mér finnst umhugs­un­ar­efni að hér á landi var engu breytt í refsi­með­ferð skatta­mála þótt mál mitt hefði verið tekið til efn­is­með­ferðar hjá mann­rétt­inda­dóm­stólnum og fyrir lægju for­dæmi um að íslenska kerfið stæð­ist ekki. Ríkin í kringum okkur brugð­ust allt öðru vísi við og reyndi að aðlaga sína fram­kvæmd nið­ur­stöðum mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Ég hef barist gegn hinum ýmsu öngum stjórn­valda í rétt­ar­sölum lands­ins und­an­farin fimmtán ár og haft það oftar en ekki á til­finn­ing­unni að pottur væri brotin í íslensku rétt­ar­kerfi. Nið­ur­staðan stað­festir þennan grun minn og stað­festir líka sem betur fer að íslenska rétt­ar­kerfið er ekki, eitt rétt­ar­kerfa í Evrópu, und­an­þegið Mann­rétt­inda­sátta­mála Evrópu,“ segir Jón Ásgeir í yfir­lýs­ing­unni.

Hann seg­ist velta því fyrir sér hvernig stjórn­völd ætli að bregð­ast við dómnum. „Ætlar ein­hver að axla ábyrgð á því að mann­rétt­indi ein­stak­linga á Íslandi hafa verið fótum troðin í rétt­ar­sölum und­an­farin ár? Munu fyrr­ver­andi eða núver­andi ráð­herrar og stjórn­mála­menn, hér­aðs­dóm­arar eða hæsta­rétt­ar­dóm­arar, fyrr- og núver­andi, sæta ábyrgð? Ef eng­inn ber ábyrgð á rang­ind­unum er ég hræddur um að ekk­ert breyt­ist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár