Gerir ekki ráð fyrir stefnubreytingu gagnvart NATO

Utan­rík­is­ráð­herra gerir ekki ráð fyrir stefnu­breyt­ingu íslenskra stjórn­valda gagn­vart NATO í kjöl­far þess að Donald Trump var kos­inn for­seti.

Lilja Alfreðsdóttir heilsar John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Erfitt er að áætla hver utanríkisstefna Donalds Trump verði og því síður hvaða áhrif slík stefna hafi á Ísland.
Lilja Alfreðs­dóttir heilsar John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Erfitt er að áætla hver utan­rík­is­stefna Donalds Trump verði og því síður hvaða áhrif slík stefna hafi á Ísland. Mynd: EPA

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir ótíma­bært að álykta nokkuð um fram­tíð NATO og áhrif boð­aðra stefnu­breyt­inga Donalds Trump, nýkjör­ins for­seta Banda­ríkj­anna, á veru Íslands í hern­að­ar­banda­lag­inu.

Trump lagði mikla áherslu á í kosn­inga­bar­áttu sinni að aðild­ar­ríki NATO myndu, í hans valda­tíð, leggja til þær fjár­hæðir sem þær hafa skuld­bundið sig til að greiða til NATO. Ísland er meðal aðild­ar­ríkja NATO og er þar minnsta aðild­ar­ríkið og eina ríkið sem hefur ekki her. Ísland er meðal þeirra landa sem hefur ekki greitt að fullu þær fjár­hæðir sem samn­ing­ur­inn utan um Atl­ants­hafs­banda­lagið gerir kröfu um.

Í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu er fylgst náið með stöð­unni. Ekki sé hægt að leggja mat á áhrif þess að Donald Trump hafi verið kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna fyrr en að stefna hans í utan­rík­is­málum skýrist betur. Trump lét hafa eftir sér ótal ummæli sem myndu hafa bein og óbein áhrif á Ísland ef það gengi eftir. Nýkjör­inn for­seti tal­aði hins vegar á allt öðrum nótum í nótt eftir að ljóst var að hann hefði náð kjöri. Ómögu­legt sé þess vegna að ráða í fram­haldið vegna þess­arar óvissu.

„Fyrst er það að nefna að við höfum farið yfir það sem hann hefur að sagt,“ segir Lilja í sam­tali við Kjarnann. „Það er nokkuð erfitt að ráða í hans stefnu; hann hefur ekki lagt til lista um hvað hann hygg­ist gera. Það verður farið betur yfir það og þess vegna er ótíma­bært að álykta neitt um þetta, fyrr en við sjáum hver verði þeirra utan­rík­is­ráð­herra og hver verði þeirra varn­ar­mála­ráð­herra.“

Lilja bendir á að Trump hafi haft orð um Atl­ants­hafs­banda­lagið og að hann hafi viljað skoða hvaða fram­lög aðild­ar­ríkin hafa lagt til NATO. „Vera okkar í NATO skiptir okkur miklu máli. Ég geri ekki ráð fyrir stefnu­breyt­ingu hvað okkur varðar,“ segir hún og bendir á að þó Ísland hafi ekki þurft að standa við fjár­hags­legar skuld­bind­ingar hafi Ísland lagt til aðra þætti eins og til dæmis land­svæði undir her­stöð. Í takt við þjóðar­ör­ygg­is­stefnu Íslands þá er þátt­taka í NATO mik­il­væg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár