Rússíbanareið á mörkuðum og flestir hagvísar jákvæðir

Þó hluta­bréfa­mark­aður á Íslandi hafi á þessu ári verið að gefa hressi­lega eftir, þá er staða efna­hags­mála að mörgu leyti mjög góð.

Miklar sveiflur hafa ein­kennt þróun mála á hluta­bréfa­mark­aði á und­an­förnum vikum, en mikil hækkun varð á virði félaga í kaup­höll­inn í gær. Samræmd vísi­tala mark­að­ar­ins hækk­aði um 2,64 pró­sent en mesta hækk­unin varð á bréfum Icelandair Group, 4,52 pró­sent í við­skiptum upp á 1,3 millj­arða króna.

Mikil lækkun

Félagið hefur lækkað mikið að und­an­förnu, eins og fjallað var um í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans fyrir skömmu, og má því með sanni segja að hækk­unin á félag­inu hafi verið kær­komin. Frá því apríl hefur félagið þó rýrnað í verði um tæp­lega 70 millj­arða króna.

Síminn hækk­aði einnig mikið, eða um 3,7 pró­sent. Önnur félög hækk­uðu um á bil­inu 1,5 til þrjú pró­sent, að HB Granda und­an­skildu en það lækk­aði um 1,09 pró­sent í við­skiptum upp á aðeins eina milljón.

Gengið styrkist

Samhliða tölu­vert miklum sveiflum á hluta­bréfa­mark­aði, og nei­kvæðri ávöxtun á honum á þessu ári, sé horft til sam­ræmdu vísi­töl­unnar, þá hefur gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum haldið áfram að styrkj­ast. Þannig er pundið komið í 145 krónur, en það kost­aði 206 krónur fyrir ári síðan. Evran er nú á 128 krónur en kost­aði 150 krónur fyrir ári, og það sama má segja um Banda­ríkja­dal. Hann kostar nú 114 krónur en kost­aði 136 krónur fyrir ári.

Mikið gjaldeyrisinnstreymi

Ástæðan fyrir styrk­ingu krón­unnar er í stuttu máli sú að gjald­eyr­is­inn­streymi frá erlendum ferða­mönnum hefur verið gríð­ar­lega mikið, og er áætlað að það verði yfir 430 millj­arðar á þessu ári. Þá kúvent­ist skulda­staða íslenska þjóð­ar­búss­ins við útlönd þegar leyst var úr greiðslu­jafn­að­ar­vand­anum sem slitabú föllnu bank­anna sköp­uðu, með því að ríkið fékk til sín tæp­lega 500 millj­arða krónu­eignir slita­bú­anna. Gjald­eyr­is­út­streymi vegna skulda í útlöndum er því mun minna nú en það hefur verið um ára­tuga­skeið.

Hvar er æskilegt að hafa gengið?

Spurn­ingin sem margir spyrja sig að, er hvar æski­legt er að gengi krón­unnar sé, þannig að það á æski­legum stað fyrir þjóð­ar­búið. Útflutn­ings­fyr­ir­tæki og fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu, sem fá tekjur í erlendri mynt, hafa kvartað nokkuð yfir styrk­ing­unni að und­an­förnu, en styrk­ingin hefur þó hjálpað til við að halda verð­lagi niðri, þar sem verð á inn­fluttum vörum hefur hald­ist lægra en það hefði ann­ars verið. Þá hjálp­aði mikil verð­lækkun á olíu, úr 110 Banda­ríkja­dölum á tunnu af hrá­olíu árið 2014 niður í 26 Banda­ríkja­dali í febr­úar á þessu ári, mikið til. Verðið á olíu hefur verið að þok­ast upp á við að und­an­förnu og kostar tunnan af hrá­olíu nú tæpa 50 Banda­ríkja­dali. Haldi olían áfram að hækka gæti það hæg­lega leitt til meiri verð­bólgu á Íslandi, og gert rekstur flug­fé­laga og útgerða meira krefj­andi.

Flestar spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi hækkun á gjald­eyr­is­inn­streymi vegna ferða­þjón­ust­unnar og er gert ráð fyrir að það fari yfir 500 millj­arða á næsta ári, og að heild­ar­fjöldi ferða­manna fari yfir 2,2 millj­ónir.

Jákvæðir hagvísar

Um þessar mundir eru flestir hag­vísar úr íslenska hag­kerf­inu að miða í rétta átt, sé mið tekið af mati fjár­mála­stöð­ug­leika­ráðs, en það kom saman 3. októ­ber síð­ast­lið­inn. Þetta var fjórði fundur ráðs­ins á árinu en næsti fund­ur­inn fer fram 16. des­em­ber.

Í ráð­inu sitja Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, og Unnur Gunn­ars­dóttir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Í til­kynn­ingu eftir fund­inn, sem birt­ist á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, segir að „þjóð­hags­legar aðstæður hafi í meg­in­at­riðum verið fjár­mála­kerf­inu hag­stæðar und­an­farin miss­eri.“ Hag­vöxtur hefur verið þrótt­mik­ill, dregið hefur úr atvinnu­leysi, ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­ila auk­ist hröðum skrefum og hagn­aður fyr­ir­tækja verið ágætur. „Heimili og fyr­ir­tæki hafa að tölu­verðu leyti nýtt góða stöðu til þess að lækka skuldir og bæta eig­in­fjár­stöðu. Útlána­vöxtur hefur verið hóf­legur um leið og aðgangur inn­lendra aðila að erlendum láns­fjár­mörk­uðum hefur orðið greið­ari. Þrátt fyrir öran vöxt eft­ir­spurnar hefur við­skipta­af­gangur hald­ist veru­legur og verð­bólga lítil. Ytri staða þjóð­ar­bús­ins er á heild­ina litið með ágætum og gjald­eyr­is­forði vel nægj­an­legur til að styðja við almenna losun fjár­magns­hafta,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Verð­bólga mælist nú 1,8 pró­sent, en hún hækk­aði óvænt úr 0,9 pró­sentum, vegna mis­taka Hagstofu Íslands, en hún hafði van­á­ætlað áhrifin af hækkun hús­leigu inn í vísi­töl­unni nokkur miss­eri á undan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár