Borgin muni vaxa meðfram borgarlínunni

Borg­ar­stjóri segir að Borg­ar­línan, nýtt almenn­ings­sam­göngu­kerfi í Reykja­vík, muni skipta sköpum fyrir fram­tíð­ar­þróun borg­ar­innar og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Dag­ur B. Eggerts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, seg­ir borg­ar­lín­una munu geta tengt Vatns­mýr­ina við nýj­an flug­völl, til dæm­is í Hvassa­hrauni, þegar Reykja­vík­ur­flug­völl­ur hafi vikið fyr­ir nýrri byggð.

Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag, en hann segir að flug­völl­ur­inn í Vatns­mýri muni fara í fram­tíð­inni.

Borg­ar­lín­an er áformað kerfi al­menn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og er áætlað að 1. áfangi kosti 30-40 millj­arða 2019-2022. Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa staðið sam­eig­in­lega að und­ir­bún­ings­vinnu hennar.

Dag­ur seg­ir borg­ar­lín­una munu skapa tæki­færi til að þétta byggð í Reykja­vík enn frek­ar en nú sé áformað. Fyr­ir­hugað íbúðar­hverfi í Keldna­holti verði t.d. ekki byggt nema með teng­ingu við borg­ar­lín­una, en áformað er að þar geti búið um fimm þús­und manns í fram­tíð­inni.

Í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blað­inu í dag seg­ir Dag­ur þung­ann í upp­bygg­ingu Reykja­vík­ur á næsta ára­tug verða með­fram borg­ar­línu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár