Segir Bjarna ekki hafa sýnt ásetning um feluleik með seinum skýrsluskilum

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar.
Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, seg­ist ekki halda að Bjarni Bene­dikts­son, sitj­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hafi sýnt af sér ásetn­ing um felu­leik þegar hann ákvað að birta ekki skýrslu um aflandseignir Íslend­inga fyrr en þremur mán­uðum eftir að hún var kynnt honum og tæpum fjórum mán­uðum eftir að henni var skilað inn til ráðu­neytis hans. Eftir að hafa rætt málið við Bjarna telur Benedikt að um hafi verið að ræða klaufa­skap og slaka dóm­greind. „Það breytir því ekki að mín skoðun (og allra í þing­flokknum) er sú að hann hefði átt að birta skýrsl­una strax og hann fékk hana í hendur.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu í lok­uðum hópi flokks­manna Við­reisnar á Facebook, sem Kjarninn hefur fengið afrit af.

Ráð­gjafa­ráð Við­reisnar sam­þykkti í gær­kvöldi stjórn­ar­sátt­mála sem gerir rík­is­stjórn flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks og Bjartrar fram­tíðar, undir for­sæti Bjarna, að veru­leika.

Í færsl­unni segir Benedikt að ekki þurfi að fjöl­yrða um klúðrið að í kringum birt­ingu á skýrsl­unni um aflandseignir Íslend­inga og skattaund­an­skot sé afar slæmt og sýni að nýrra vinnu­bragða sé þörf. „Þing­flokkur okkar heyrði frá BB [Bjarna Bene­dikts­syni] í dag og ég hygg að miðað við hans frá­sögn hafi verið um að ræða klaufa­skap og slaka dóm­greind en ásetn­ing um felu­leik, það breytir því ekki að mín skoðun (og allra í þing­flokknum) er sú að hann hefði átt að birta skýrsl­una strax og hann fékk hana í hendur. Einmitt þetta und­ir­strikar áherslur okkar um að hugsa hlut­ina upp á nýtt. Vinnu­brögð af þessu tagi verður að upp­ræta.“

Benedikt, sem er for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, seg­ist hafa sett sig strax í sam­band við vara­for­mann nefnd­ar­innar, Brynjar Níelsson, um að boða til fundar í nefnd­inni hið snarasta. Hann seg­ist líka hafa verið í sam­bandi við Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna, sem hafði óskað eftir fundi í nefnd­inni vegna skýrslu­skil­anna. „Fund­ur­inn hefur þegar verið boð­aður og verður hald­inn næst­kom­andi fimmtu­dag vegna þess að óskað var eftir því af einum nefnd­ar­manni að hafður yrði góður fyr­ir­vari að fund­inum. Skýrslan sjálf er hið þarfasta plagg og mik­il­vægt inn­legg í umræð­una. Vegna þess að ég reikna með að fæstir séu búnir að lesa hana þá er rétt að und­ir­strika að hún fjallar ekki um neina ein­stak­linga,“ segir í stöðu­upp­færslu Bene­dikts.

Skýrslunni skilað í september

Skýrsl­unni var skilað til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins 13. sept­em­ber 2016. Hún var síðar kynnt sér­stak­lega fyrir Bjarna Bene­dikts­syni 5. októ­ber. Alþingi var svo slitið 13. októ­ber vegna kosn­inga sem haldnar voru síðar í þeim mán­uði en kallað aftur saman í byrjun des­em­ber og starf­aði fram að jólum. Skýrslan var hins vegar ekki birt fyrr en síð­ast­lið­inn föstu­dag, 6. jan­úar.

Bjarni sagði í fréttum RÚV á laug­ar­dag að þingi hefði þegar verið slitið þegar hann fékk skýrsl­una í hendur. Það reynd­ist ekki rétt og hann baðst afsök­unar á óná­kvæmum svörum sínum dag­inn eftir á sama vett­vangi. Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, hefur farið fram á að umboðs­maður Alþingis skoði hvort að Bjarni hafi brotið gegn siða­reglum ráð­herra með því að birta ekki skýrsl­una þegar hún var til­búin.

Í skýrsl­unni kemur meðal ann­ars fram að það hafi orðið stökk­breyt­ing á flæði fjár til aflands- og lág­skatta­svæða á fyrsta ára­tug þess­arar aldar, og fjöldi aflands­fé­laga í eigu Íslend­inga fer­tug­fald­að­ist frá árinu 1999 og fram að hruni. Eignir í stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg 46-föld­uð­ust á sama tíma­bili. Upp­safnað umfang eigna Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 til 2015 nemur ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­örðum króna, og tekju­tap hins opin­bera á árunum 2006 til 2014 nemur lík­lega um 56 millj­örðum króna. Á hverju ári gæti tapið vegna van­tal­inna skatta verið á bil­inu 4,6 til 15,5 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár