Heiðrún Jónsdóttir, lögmaður hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Hún hefur þegar hafið störf.
Heiðrún tekur við starfinu af Katrínu Júlíusdóttur, fyrrverandi fjármálaráðherra og varaformaður Samfylkingarinnar, sem tilkynnti í lok ágúst að hún hefði sagt starfi sínu lausu og uppsögn hennar tók gildi 1. september. Katrín hafði verið framkvæmdastjóri SFF síðan 2016.
Innan Samtaka fjármálafyrirtækja eru 25 aðildarfélög. Þar starfa nú sex starfsmenn. Stjórnarformaður er Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Í tilkynningu segir að Heiðrún hafi starfað sem lögmaður í áraraðir og hafi víðtæka stjórnunareynslu úr atvinnulífinu. „Hún var í stjórn Íslandsbanka frá 2016 síðast sem varaformaður bankans en áður var hún stjórnarformaður hjá Íslenskum verðbréfum 2014-2016 og hjá Gildi lífeyrissjóði 2008-2014, síðast sem stjórnarformaður. Þá hefur hún m.a. setið í stjórnum Regins, Icelandair, Símans, Olís, Norðlenska, Reiknistofu bankanna, Ístaks, Arion verðbréfavörslu og Royal Arctic Line á Grænlandi. Hún var framkvæmdastjóri hjá Eimskip á árunum 2006-2012 þar sem hún stýrði m.a. starfsmannamálum og markaðsmálum. Þá var hún framkvæmdastjóri lögmannsstofunnar Lex á árunum 2003-2005, upplýsingafulltrúi Símans 2001-2003 og starfsmannastjóri og lögfræðingur hjá KEA 1998-2001. Þá hefur hún kennt við lagadeildir Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands og víðar.“
Heiðrún segist hlakka til að taka til starfa hjá SFF. „Innan aðildarfélaganna starfar öflugur, fjölbreyttur og kraftmikill hópur sem ég hlakka til að starfa með. Verkefnin eru fjölbreytt og afar áhugaverð. Fjármálafyrirtæki gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og markaðurinn er síbreytilegur og fjölbreyttur. “
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir