Eitt Kína, margar mótsagnir

Mótmælin í Hong Kong hafa vakið heims­at­hygli þar sem mót­mæl­endur storka leið­togum í stærsta og vold­ug­asta alræð­is­ríki heims. Tilefni mót­mæl­anna eru lög sem ótt­ast er að færi stjórn­völdum í Pekíng meira vald yfir dóm­stólum í Hong Kong. Andóf þar á sér hins vegar langa sögu og helsta upp­spretta óánægju í dag er ekki síður efna­hags­leg en póli­tísk að mati margra frétta­skýrenda. Gjá hefur mynd­ast á milli þess­ara tveggja þjóða sem búa að nafn­inu til í sama ríki en líta hvorir aðra horn­auga.

Mótmælin í byrjun vikunnar
Mótmælin í byrjun vik­unnar Hundruð þús­unda mót­mæl­enda gengu um götur 1. júlí.

Nýlendu­tím­inn og ald­ar­löng nið­ur­læg­ing Kínverja af hendi Breta er senni­lega það fyrsta sem mörgum Kín­verjum kemur í hug þegar Hong Kong ber á góma. Það er mik­il­vægt að muna að tang­ar­hald Breta á nýlend­unni í austri var til komið vegna ópíum­stríð­anna á 19. öld. Sjálf átökin voru afleið­ing skipu­lagðs efna­hags­legs stríðs­rekst­urs Breta á hendur kín­versku þjóð­inni með því að gera hana háða eit­ur­lyfjum. Hug­myndin kom til vegna þess að Breta skorti silfur til að geta borgað fyrir allt það te sem þeir fluttu inn frá Kína en þeir áttu meira en nóg af dópi til vöru­skipta.

Áður en yfir lauk voru Kín­verjar gjörsigr­aðir og kné­settir af breska heims­veld­inu sem neyddi keisar­ann til að skrifa undir samn­ing um yfir­ráð Breta yfir Hong Kong og nær­liggj­andi eyjum. Loka­út­gáfa samn­ings­ins var und­ir­rituð árið 1898 og var til 99 ára sem tryggði að allir sem þá voru á lífi gætu farið í gröf­ina …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár