Finnur Beck settur forstjóri HS Orku

Ásgeir Mar­geirs­son er hættur störfum hjá HS Orku. Áður hafði verið greint frá því að hann myndi starfa þangað til að nýr for­stjóri yrði ráð­inn en hann hefur ákveðið að flýta starfs­lokum sínum.

Reykjanesvirkjun er önnur af tveimur meginvirkjunum HS Orku.
Reykja­nes­virkjun er önnur af tveimur meg­in­virkj­unum HS Orku. Mynd: Úr safni.

Finnur Beck, lög­fræð­ingur HS Orku, hefur verið gerður að for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins tíma­bundið eftir að Ásgeir Mar­geirs­son ákvað að flýta starfs­lokum sínum og láta af störfum í gær. Í frétt á vef HS Orku segir að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins hafi falið Finni að stýra fyr­ir­tæk­inu þar til nýr for­stjóri verður ráð­inn, en staðan var aug­lýst til umsóknar fyrr í þessum mán­uði. Ráðn­ing­ar­ferli stendur yfir og búist er við að því ljúki á allra næstu vikum.

Finnur hefur starfað sem aðal­lög­fræð­ingur HS Orku frá árinu 2015. Hann útskrif­að­ist með ML gráðu úr lög­fræði frá Háskól­anum í Reykja­vík árið 2010 en hann er einnig með BA gráðu í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands. Finnur var um tíma einn eig­enda Lands­laga lög­mann­stofu og starf­aði á árum áður sem frétta­maður hjá RÚV.

Greint var frá því í lok ágúst að Ásgeir, sem verið hafði for­stjóri HS Orku í sex ár, hefði kom­ist að sam­komu­lagi um starfs­lok við stjórn félags­ins. Staða for­stjóra yrði aug­lýst en Ásgeir mun gegna henni þangað til að nýr for­stjóri tæki við. Ásgeir var ráð­inn for­stjóri í tíð fyrri meiri­hluta­eig­enda, en miklar breyt­ingar hafa orðið á eig­enda­hópi HS Orku á síð­ustu mán­uð­u­m. Auk for­stjóra­skipt­anna hafa stjórn­ar­menn sagt af sér og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans gengu fyrr­ver­andi stjórn­endur og hluti stjórn­ar­manna ekki í takt við það sem nýir eig­endur, breska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Ancala Partners, vilja leggja áherslu á innan HS Orku.

Líf­eyr­is­sjóðir keyptu og Bretar komu inn

Jarð­varmi slhf, félag í eigu 14 íslenska líf­eyr­is­­sjóð, keypti í maí hlut Innergex í HS Orku á 299,9 millj­­ónir dali, eða 37,3 millj­­arða króna á núvirð­i.

Innergex seldi þar með sænska félagið Magma Sweden til Jarð­varma en Magma átti 53,9 pró­­sent hlut í félag­inu. Með þessu varð Jarð­varmi eig­andi allra hluta í HS Orku, eina íslenska orku­­fyr­ir­tæk­inu sem er í einka­eigu eftir að hafa gengið inn í sölu á hlut fjár­­­fest­ing­­ar­­sjóðs­ins ORK fyrr á þessu ári. Sam­an­lagt greiddi Jarð­varmi 47 millj­­arða króna fyrir hlut­ina, en þeir nema 66,6 pró­­sent af útgefnu hlutafé í HS Orku. Jarð­varmi var að nýta kaup­rétt sinn á hlutum í HS Orku en félagið átti áður 33,4 pró­­sent hlut.

Í kjöl­far­ið seldi Jarð­varmi síðan helm­ing hluta­fjár í HS orku til breska sjóðs­­stýr­ing­­ar­­fyr­ir­tæk­is­ins Ancala Partners, sem sér­­hæfir sig í inn­­viða­fjár­­­fest­ingum í Evr­­ópu og er að stóru leyti fjár­­­magnað af breskum líf­eyr­is­­sjóð­­um. Áður en að það var gert tók Jarð­varmi þó 30 pró­­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu út úr orku­­fyr­ir­tæki og seldi til nýs félags í eigu íslenskra líf­eyr­is­­sjóða, Blá­varma slhf., á 15 millj­­arða króna. Miðað við það verð er heild­­ar­virði Bláa lóns­ins 50 millj­­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

HSOrka

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár