Kynjamunur og COVID-19: „Það er eitthvað í gangi, það er alveg ljóst“

Konur virð­ast almennt síður veikj­ast alvar­lega af COVID-19 en karlar. Ýmsar til­gátur hafa verið settar fram. Sumar benda á umhverfis-, félags­lega eða þjóð­fé­lags­lega þætti en aðrar á líf­fræði­legan mun kynj­anna – á litn­inga og horm­óna.

Arnar Pálsson, erfðafræðingur og prófessor í lífupplýsingafræði við Háskóla Íslands.
Arnar Pálsson, erfða­fræð­ingur og pró­fessor í líf­upp­lýs­inga­fræði við Háskóla Íslands. Mynd: Kristinn Ingvarsson/Háskóli Íslands

Fljót­lega eftir að far­aldur kór­ónu­veirunnar braust út í Kína fóru að ber­ast fregnir af því að körlum væri hætt­ara við að veikj­ast alvar­lega af sjúk­dómnum og deyja. Á þessum fyrstu vikum var þó ekki hægt að stað­festa að það hefði bein­línis með eðli veirunnar að gera. Talið var að þetta mætti útskýra með því að kín­verskir karl­menn reyktu mun meira en konur og að starfs­um­hverfi þeirra væri oft ekki heilsu­sam­legt.

En eftir því sem veiran breidd­ist út til fleiri landa virt­ist sama mynstrið blasa við: Þegar komið væri yfir ákveð­inn aldur væru karl­menn í meiri­hluta þeirra sem veikt­ust alvar­lega. Nýlegar tölur frá Bret­landi sýna til dæmis að karl­menn eru helm­ingi lík­legri en konur til að lát­ast úr COVID-19 og rúm­lega 70 pró­sent þeirra sem lát­ist hafa á Ítalíu eru karl­menn.

Samkvæmt opin­berum tölum margra ríkja hafa fleiri karl­menn en konur lagst inn á gjör­gæslu­deildir sjúkra­húsa og fleiri karl­menn hafa einnig lát­ist. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að hér á landi komi þessi sami kynja­munur fram í fjölda þeirra sem þurfa að leggj­ast inn á sjúkra­hús og gjör­gæslu. Tíu hafa lát­ist hér á landi vegna COVID-19, sex konur og fjórir karlar.

[adspot]

Síðustu vikur hefur kynja­mun­ur­inn komið sífellt betur í ljós víða um heim. „En það er ekki vitað með vissu af hverju þetta stafar,“ segir Arnar Pálsson, erfða­fræð­ingur og pró­fessor í líf­upp­lýs­inga­fræði, í sam­tali við Kjarnann. Arnar hefur verið iðinn við að svara spurn­ingum almenn­ings á Vís­inda­vefnum og hefur lesið sér til um nið­ur­stöður rann­sókna sem þegar hafa verið gerðar á kynja­mun­inum.

„Það er eitt­hvað í gangi, það er alveg ljóst,“ segir Arnar en setur þann fyr­ir­vara að enn eigi eftir að rann­saka heilmargt í þessu sam­bandi. „Sterk­ustu breyt­urnar við­ast vera aldur og kyn“. Nýleg bresk rann­sókn á 17 milljón Eng­lend­ingum sýnir að dán­ar­tíðni COVID-19 smit­aðra eykst mjög með aldri. Miðað við ald­urs­hóp­inn 50-60 ára er tvö­föld áhætta meðal 60-70 ára, 4,8-föld hjá 70-80 ára og um 12,6-föld hjá fólki eldra en átt­rætt. Til sam­an­burðar var dán­ar­tíðni karl­manna metin tvö­föld umfram kven­fólk.

„Það er ekki úti­lokað að kynja­mun­ur­inn skýrist af félags­legum eða atferl­is­legum þáttum að hluta,“ segir Arnar. „Eru karlar að hitt­ast oftar utan heim­ilis? Eru þeir með við­kvæm­ari önd­un­ar­færi vegna vinnu­um­hverfis eða lifn­að­ar­hátta?“

[links]Ein­hverjar rann­sóknir sem gerðar hafa verið benda til þess að karlar séu ekki eins dug­legir og konur við að þvo sér um hend­urnar. Þá leita þeir sér síður lækn­is­hjálpar ef eitt­hvað bjátar á. En þegar mynstrið er farið að sýna sig í löndum um allan heim þá hafa vaknað grun­semdir um að umhverf­is­þætt­irnir séu ekki það sem fyrst og fremst valdi þessum mis­mun.

Fyrri rann­sóknir sem Sabra Klein, pró­fessor við lýð­heilsu­deild John Hopkins-háskóla, hefur gert sýna að við­bragð ónæm­is­kerfis karla við veiru­sýk­ingum er annað en hjá konum. Kenn­ingin er sú að ónæm­is­kerfi þeirra bregð­ist ekki við ákveðnum veirum í fyrstu en fari svo á yfir­snún­ing þegar á líður. Sú hast­ar­lega ónæm­is­ræs­ing getur valdið meiri skaða en gagni.

Arnar segir að ætla megi, m.a. með rann­sóknir Klein í huga, að und­ir­liggj­andi sé ein­hver líf­eðl­is­fræði­legur munur milli kynja að með­al­tali. Hann geti tengst ónæm­is­kerf­inu, horm­óna­bú­skapnum, hvoru tveggja eða ein­hverju allt öðru.

Óvenjuleg ónæmisræsing

Læknar hér á landi sem og ann­ars staðar hafa séð hversu mikil ónæm­is­ræs­ing verður hjá sjúk­lingum með COVID-19. Nýja kór­ónu­veiran virð­ist ræsa með ein­hverjum hætti ónæm­is­svar lík­am­ans meira en aðrar veirur. Vís­bend­ingar eru um að það sé ekki aðeins veiru­sýk­ingin sjálf sem valdi alvar­legum veik­indum og jafn­vel dauða heldur þessi ofsa­fengna svörun ónæm­is­kerf­is­ins sem getur skaðað vefi líf­færa.

„Þá á eftir að svara spurn­ing­unni hvað veldur ofsa­við­bragði í ónæm­is­kerf­inu, af hverju ónæm­is­kerfi karla virð­ist frekar en kvenna fara á yfir­snún­ing,“ segir Arnar.

Kenn­ingar Klein og fleiri eru þær að skýr­ingin felist ef til vill í svoköll­uðum Toll-við­tökum en gen tveggja slíkra eru á X-litn­ingum. Konur eru með tvo X-litn­inga en karlar með einn. „Og það að vera með tvö ein­tök af geni sem hefur vissa virkni gefur þér þá mögu­leika á meiri vörn gegn ákveðnum hlutum,“ útskýrir Arnar. „Það gæti á ein­hvern hátt gert ónæm­is­kerfið betra til að takast á við til dæmis nákvæm­lega þessa veiru­sýk­ingu.“

Toll-við­takar þekkja eins­þátta RNA erfða­efni veira, en veiran sem veldur COVID-19 hefur einmitt þannig erfða­efni.

Þegar eru vís­bend­ingar um að ónæm­is­kerfi kvenna bregð­ist fyrr við nýju kór­ónu­veirunni í kjöl­far sýk­ingar en karla. Það gæti skýrt það af hverju þær fái almennt mild­ari ein­kenni og í styttri tíma.

[adspot]

Önnur til­gáta er sú að mis­mun­ur­inn teng­ist ólíkum horm­óna­bú­skap kynj­anna. Hins vegar er ýmis­legt sem grefur undan þess­ari hug­mynd. Áhættan á því að veikj­ast alvar­lega af COVID hækkar með aldr­inum. Kyn­horm­ónar kvenna lækka með hækk­andi aldri. Frances Hayes, kven­sjúk­dóma­læknir við aðal­sjúkra­húsið í Massachusetts, bendir á að sjö­tíu ára gömul kona sé með nán­ast sama magn af estrógen og jafn­aldri hennar af karl­kyni.

Ónæm­is­kerfi kvenna gæti verið að verja þær betur en karla fyrir alvar­legum veik­indum í far­aldr­inum nú en Klein bendir á að sömu við­takar og gagn­ast konum að því leyti eru þeir sem verða til þess að þær eru mun lík­legri en karlar til að fá sjálfsof­næm­is­sjúk­dóma. Talið er að konur séu um átta­tíu pró­sent þeirra sem fá slíka sjúk­dóma sem geta valdið miklu raski á dag­legu lífi fólks og jafn­vel alvar­legum lang­vinnum veik­indum.

Erfðir og sjúkdómar

Þekkt er, af aug­ljósum ástæðum, að sumir sjúk­dómar leggj­ast aðeins á karla og aðrir aðeins á konur. Þetta eru sjúk­dómar sem tengj­ast æxl­un­ar­færum fólks.

Umhverfi og erfðir hafa einnig áhrif á það hvernig ólíkir sjúk­dómar leggj­ast á hvert og eitt okkar. „Margir umhverf­is­þættir geta stuðlað að sjúk­dómi og margir erfða­þættir sömu­leiðis,“ segir Arnar. „Sjúk­dómar eru mis­jafn­lega arf­gengir. Þannig að í sumum sjúk­dómum skipta umhverf­is­þættir mestu en í öðrum eru það erfða­þættir. En flestir sjúk­dómar verða til við blöndu af þessu tvennu.“

COVID-19 er kár­lega umhverf­is­sjúk­dómur, bendir Arnar á, „þarna er veira sem kemur úr umhverf­inu og inn í lík­amann. Kveikjan er umhverf­is­leg en síðan hafa nýjar rann­sóknir, meðal ann­ars á tví­burum, leitt í ljós að erfða­fræði­leg sam­setn­ing ein­stak­linga kunni að hafa áhrif á hversu alvar­lega fólk veik­ist af sjúk­dómnum. En þetta á eftir að rann­saka miklu meira og nið­ur­stöð­unum ber því enn sem komið er að taka með fyr­ir­vara.“

Erfðir geta haft áhrif á lík­urnar á því að fólk smit­ast af sjúk­dómum og einnig hversu alvar­lega. „Það er þekkt hvað varðar margar veirur og sýkla. Sumir eru útsett­ari en aðrir fyrir ákveðnum sýk­ingum eftir því hver erfða­sam­setn­ing þeirra er. Það hefur til dæmis sýnt sig hvað varðar HIV-veiruna.“

Rann­sóknir á þessum þáttum taka langan tíma enda þarf að hafa svo margt í huga við fram­kvæmd þeirra. Það verður því vænt­an­lega eitt­hvað í að við fáum að vita nákvæm­lega hvað það er í erfðum okkar sem veldur þessum breyti­leika. „Þetta er opin spurn­ing ennþá og líka sú hversu sterkur erfða­þátt­ur­inn er í þessu sam­bandi.“

Arnar er í þann veg­inn að leggja loka­hönd á enn eitt svarið við spurn­ingu sem barst Vís­inda­vefnum. Orðið vís­indi og vís­inda­menn hafa verið á allra vörum upp á síðkastið. Þeir hafa líka verið áber­andi í fréttum og við­tölum fjöl­miðla um allan heim.

Í dag svar­aði hann svo spurn­ingu blaða­manns Kjarnans á Vís­inda­vefnum, um einmitt efni þess­arar greinar: Leggst COVID-19 harðar á karla en konur?

Skynja sjúkdóminn sem ógn

Vís­inda­vef­ur­inn hefur nýst almenn­ingi vel til að fræð­ast um far­ald­ur­inn frá ýmsum hliðum. Fólk er meðal ann­ars for­vitið um hvernig veiran varð til, hvaðan hún kom og hvert hún er að fara. „Fólk skynjar þetta eðli­lega sem ógn og þá er nauð­syn­legt að það geti leitað sér traustra upp­lýs­inga.“

Arnar segir að sú ímynd sem kannski margir hafi haft af vís­inda­manni „að hann sitji einn í stól í sínu horni og rýni í skjöl og smá­sjár og reddi mál­unum“ hafi von­andi breyst. „Þetta er hópa­vinna þar sem vís­inda­menn með ólíkan bak­grunn og þekk­ingu starfa saman að úrlausn mála.“

Hann segir það aðdá­un­ar­vert hversu margir vís­inda­menn hafa ein­hent sér í það að afla sér upp­lýs­inga um kór­ónu­veiruna og leggja svo sína þekk­ingu ofan á þær og rann­saka út frá ýmsum þáttum. „Það má segja að allir þeir sem vett­lingi geta valdið hafi lagt sín lóð á vog­ar­skálar vís­ind­anna,“ segir hann. „Þessu fylgja þó skugga­hliðar og mold­viðri vegna þess að ýmis­legt er sagt og gert sem byggt er á veikum grunni. Þess vegna er svo mik­il­vægt að rýna í allt sem fram kemur og alhæfa ekk­ert án þess að stað­reynd­irnar liggi fyrir.“

[adspot]

Þekking á far­alds­fræði og smit­sjúk­dómum hefur auð­vitað reynst lyk­il­at­riði og þó að vís­inda­menn­irnir séu að læra eitt­hvað nýtt um veiruna á nán­ast hverjum degi þá eru grunn­fræðin til staðar til að byggja á. Mik­il­vægi vís­ind­anna hefur komið ber­lega í ljós síð­ustu mán­uði.

„Annað sem mér finnst aðdáund­ar­vert er hvað flestir eru sam­mála um að þekk­ingu og gögnum sé deilt með öðrum – án allra landamæra,“ segir Arnar. Þannig hafa yfir­völd og almenn­ingur til dæmis getað fylgst nokkuð náið með þróun far­ald­urs­ins í hverju landi fyrir sig. Vís­inda­menn hafa ekki látið sitt eftir liggja í þessu og deilt gögnum og nið­ur­stöðum sinna rann­sókna opin­ber­lega og með kol­legum. „Þetta er ekki ný aðferð, að opna vís­indin og deila gögnum með öðrum. Þetta er oft gert en núna sést svo ber­sýni­lega hversu mik­il­vægt það getur verið. Það hefur verið flott að fylgj­ast með þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár