„Þetta getur verið góð fjárfesting, sérstaklega ef þú kaupir réttu verkin“

Þær Elísabet Alma og Helga Björg í Listval segja að vit­und­ar­vakn­ing sé að eiga sér stað meðal almenn­ings um gildi mynd­listar, „bæði út frá menn­ing­ar­legum sjón­ar­miðum en líka bara sem fjár­fest­ing.“ Þær settu upp jóla­basar í nýju sýn­ing­ar­rými í Hörpu.

Þetta er eitt­hvað sem hrein­lega átti að ger­ast hjá okkur. Við vorum svo mikið að hugsa hvað við ættum að gera um jólin, hvort við ættum að leigja eitt­hvað rými eða hvort við ættum að fara eitt­hvað niður í bæ, því við erum líka með aðsetur á Hólma­slóð. Svo bara kom þetta upp,“ segir Helga Björg Kjerúlf og á þá við um sýn­ing­ar­rýmið sem þær Elísabet Alma Svendsen fengu í Hörpu fyrir starf­semi Listvals sem þær reka saman.

„Þá bara settum við í fimmta gír eða sjötta,“ segir Elísabet en þær þurftu að hafa hraðar hendur til þess að koma jóla­sýn­ing­unni upp sem opn­aði þann 4. des­em­ber. „Það er allt hægt ef maður bara kýlir á það,“ bætir Helga við. Samkvæmt Elísa­betu og Helgu eiga um 85 lista­menn verk á mark­aðnum og flestir þeirra á bil­inu þrjú til fimm. Samtals séu verkin því um 250 tals­ins.

Líkt og á öðrum mörk­uðum er nokkur róter­ing á verkum enda taka flestir kaup­endur keypt verk með sér heim beint af sýn­ing­ar­staðnum. Spurðar að því hvort mikið hafi selst segir Elísabet: „Já, það hefur slatti selst, þetta er greini­lega jóla­gjöfin í ár.“

Smá að gera „eins og allir hinir“

Hvernig er áhugi Íslend­inga á mynd­list í dag og hefur hann auk­ist á nýliðnum árum?

Helga: „Já, ekki spurn­ing. Ég held að það sé líka ákveðin vit­und­ar­vakn­ing meðal almenn­ings um gildi mynd­listar. Bæði út frá menn­ing­ar­legum sjón­ar­miðum en líka bara sem fjár­fest­ing.“

Elísabet: „Þetta getur verið góð fjár­fest­ing, sér­stak­lega ef þú kaupir réttu verkin. Við erum nátt­úr­lega með ráð­gjöf líka þannig að við getum aðstoðað fólk ef það er í þeim hug­leið­ingum. En fyrst og fremst á þetta að vera eitt­hvað sem maður heill­ast að og snertir þig á ein­hvern hátt. Það er það fyrsta sem maður á að horfa til.“

Hvers vegna ákváðuð þið að taka þátt í þessu jóla­basara­flóði?

Elísabet: „Það var nátt­úr­lega alls ekki planið fyrst, áður en við fengum þetta rými. Þá ætl­uðum við mögu­lega að gera eitt­hvað allt annað. Ég man að ég sagði á ein­hverjum tíma­punkti: „Mig langar alls ekki að gera eitt­hvað eins og allir hinir.“ Svo höfum við hlegið aðeins að þessu því maður er svo­lítið að gera það.“

Helga: „Listval opn­aði sýn­ing­ar­rými í júní úti á Granda og það er svipuð pæl­ing í gangi þar. Kannski ekki eins mikið af verkum en það er samt sama konsept. Þú getur komið inn, labbað um og tekið verkið með þér heim. Hérna er þetta svipað nema við erum með fleiri verk og minna bil á milli, þennan salon stíl.“

Þorri þeirra verka sem sýnd eru á jólasýningu Listvals í Hörpu hanga á þessum langa, hvíta vegg sem gengur inn eftir sýningarrýminu. Í forgrunni eru skúlptúrar, kertastjakar og ljós Hönnu Dísar Whitehead.
Þorri þeirra verka sem sýnd eru á jóla­sýn­ingu Listvals í Hörpu hanga á þessum langa, hvíta vegg sem gengur inn eftir sýn­ing­ar­rým­inu. Í for­grunni eru skúlp­t­úrar, kerta­stjakar og ljós Hönnu Dísar Whitehead.

Hægt að kaupa myndlist allan ársins hring

Mynduð þið segja að jóla­basarar séu orðnir mjög mik­il­vægir fyrir starf­andi lista­menn?

Elísabet: „Ég held það. Þetta er ákveð­inn vett­vangur og það selst alveg frekar vel á flestum þessum sýn­ingum og klár­lega er það bara frá­bært fyrir lista­menn­ina. Það eru ekk­ert endi­lega hvaða verk sem er sem fara inn á þessa mark­aði. Allavega þeir lista­menn sem við höfum talað við eru allir mjög til í þetta.“

Helga. „Ég held líka að það séu ekki allir sem átta sig á því að allan árs­ins hring er hægt að kaupa mynd­list inni í gall­er­í­unum og á sýn­ingum, en það er bara ekki borið þannig fram. Hérna er það mjög aðgengi­legt. Þetta er bara eins og að fara út í búð.“

Elísabet. „Við höfum verið að gera það á Hólma­slóð frá því við opn­uðum í júní. Fólk kemur með mömmu sína og ömmu sína og velur verk. Ég held alveg að Listval hafi kannski smá opnað þetta rými sem er eins og er fyrir aftan gall­er­íin. Þar er svona: “Heyrðu komdu hérna, þú getur séð fleiri verk hérna fyrir aftan,” við erum smá að opna það. Fólk elskar það að það sé boðið vel­komið.“

Helga. „Það er líka eitt sem við leggjum út af, að það sé gott and­rúms­loft og fólk vel­komið að staldra við og setj­ast niður.“

Stór ákvörðun að kaupa myndlist „en alltaf góð“

Upp­haf­lega var Listval ein­ungis til á net­inu. Elísabet stofn­aði fyr­ir­tækið árið 2019 og hún segir að þá hafi hún verið búin að ganga með þessa hug­mynd í mag­anum í ein­hvern tíma. Hún hafði starfað í virtu gall­eríi um tíma og þá fundið að þörf hafi verið fyrir ráð­gjöf við val á mynd­list líkt og þeirri sem Listval býður upp á.

Í fyrra hófst sýn­ing­ar­hald af hálfu Listvals í NORR11 við Hverf­is­götu sem var tölu­vert stökk frá því að vera ein­ungis af vefnum að sögn Elísa­betar. „Síðan í kjöl­farið þá kemur Helga inn snemma á þessu ári og þá fórum við að kasta bolt­anum svo­lítið á milli okkar,“ bætir hún við.

Helga: „Að sýna mynd­list­ar­sýn­ingu innan um hönnun – þá ertu í öðru umhverfi en á safni. Auðvitað hefur það alveg verið gert áður en þetta hífir hvort annað upp. Því auð­vitað þarftu mynd­list á vegg­ina en auð­vitað þarftu líka hús­búnað.“

Elísabet: „Og við vorum alltaf með einka­sýn­ingar þar. Við erum búnar að vera með níu sýn­ingar þar.“

Helga: „Það er líka oft sem maður horfir í gall­eríi á mynd­list­ar­verk á hvítum veggjum, það er eitt, svo þegar maður fer að hugsa hvort maður vilji fá það heim til sín, þá er svo erfitt að hugsa um hvernig það muni líta út heima hjá mér. Með NORR11 náðum við að skapa ákveðna hug­mynd. Við erum dálítið að taka þetta inn í ráð­gjöf­ina. Á heima­síð­unni getur fólk séð öll verkin, bæði „uploa­dað“ mynd af þínu heim­ili eða þinni stofu og sett verkið þar inn eða bara á mynd sem við erum með nú þegar. Svo erum við líka að bjóða fólki upp á ráð­gjöf. Að koma heim til fólks, að finna heim­ilið og smekk og svona og svo sendum við þér til­lögu þar sem við „photos­hoppum“ verkin inn á. Og þetta skiptir allt máli því það er auð­vitað stórt skref að kaupa sér mynd­list, þetta kostar pen­inga og er líka stór ákvörðun. En alltaf góð ákvörðun.“

Frábært að vera í Hörpu sem er „listaverk út af fyrir sig“

Líkt og segir á heima­síðu Hörpu þá er húsið eitt helsta kenni­leiti Reykja­víkur og „mið­stöð menn­ingar og mann­lífs í hjarta mið­borg­ar­innar“. Húsið er sann­kallað heim­ili tón­list­ar­innar á Íslandi, enda hefur Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands þar aðsetur og tón­leika­hald alls kyns tón­list­ar­fólks er ein­kenn­andi fyrir starf­sem­ina í hús­inu. Það mætti því segja að rekstur mynd­list­ar­gall­erís í hús­inu fari vel saman við aðra starf­semi sem þar þrífst.

Hvernig er það að hafa fengið aðstöðu hérna í Hörpu?

Elísabet: Það er bara æðis­legt. Húsið er nátt­úr­lega lista­verk út af fyrir sig. Að vera í and­dyri Hörpu er bara geggjað. Rýmið blasir líka svo mikið við frá göt­unni, þessi hvíti veggur. Þannig að við erum alveg í skýj­unum með það hvernig þetta kom út. Því maður vissi ekki alveg hvernig þetta myndi verða þegar við ákváðum að keyra á þetta. Það er mikil orka hérna og margt fólk. Það er alltaf upp­lifun að koma hingað inn.

Helga: Mér líður alltaf eins og það sé sunnu­dagur þegar maður kemur hingað inn, það er eitt­hvað hátíð­legt við það. Allir hérna inni í Hörpu eru frá­bærir og það var tekið vel á móti okkur.

Sum þeirra 250 listaverka sem sýnd eru á jólasýningu Listvals komast hreinlega ekki fyrir á hvítum vegg gallerísins í Hörpu.
Sum þeirra 250 lista­verka sem sýnd eru á jóla­sýn­ingu Listvals kom­ast hrein­lega ekki fyrir á hvítum vegg gall­er­ís­ins í Hörpu.

En hvernig er með fram­haldið, eftir að þess­ari sýn­ingu lýkur?

Elísabet: Við gerðum sex mán­aða samn­ing, maður veit nátt­úr­lega ekki hvernig far­ald­ur­inn þró­ast, en von­andi getum við verið hérna lengur. Við þurfum líka bara að meta það.

Með mörg járn í eldinum

Þið eruð komnar hingað, þið eruð með aðstöðu á Hólma­slóð og hafið verið með sýn­ingar í NORR11, munið þið halda áfram að halda sýn­ingar þar?

Elísabet: Já, Gjörn­inga­klúbb­ur­inn verður þar í jan­úar og svo verður Rúrí hérna í jan­úar. Þannig að það er brjálað að gera.

Helga: Við byrjum á þess­ari jóla­sýn­ingu og svo ætlum við bara að leyfa rým­inu og tím­anum að leiða í ljós hvernig útfærslan verður hér. Rúrí verður hér með sýn­ingu í jan­úar, sem verður eig­in­lega „mini“ yfir­lits­sýn­ing. En við fáum kannski aðeins að dreifa okkur hérna inni í Hörpu. Það er líka svo mikið af ferða­mönnum hérna og frá­bært að leyfa þeim aðeins að fá að kynn­ast henni. Við ætlum líka að gera lít­inn örþátt um hana, þar sem hún segir frá sér. Svo er þetta líka gluggagall­erí.

Elísabet: við ætlum að reyna að nýta það svo­lítið, að vera með skjá og fólk getur þá horft inn að utan og upp­lifað þetta líka þannig. Þetta er nátt­úru­lega bara helm­ingur gluggar og við viljum nýta það.

Maður sér það mjög vel úr fjar­lægð, þetta lit­ríka horn, þegar maður nálg­ast bygg­ing­una.

Helga: Maður vill nátt­úr­lega ekki taka of mikla athygli af hús­inu. Neieni, það er bara góð athygli.

Fjöll og Tindar Brynhildar Þorgeirsdóttur.
Fjöll og Tindar Bryn­hildar Þor­geirs­dóttur.

Er hægt að taka of mikla athygli af hús­inu?

Elísabet: Ég held að flestir séu sam­mála því að þetta sé gott fyrir húsið. Þetta bara passar vel hérna inn, þessi menn­ing­ar­tengda starf­semi.

Helga: Við fengum styrk frá Reykja­vík­ur­borg til að aðstoða okkur við kostn­að­inn af sýn­ingum hérna þannig að það verða kannski árs­fjórð­ungs­lega sem við setjum upp nýja sýn­ingu. Það er að vísu erfitt að tala um sýn­ingu þegar þetta eru bara nokkrir veggir, en lista­mað­ur­inn tekur í það minnsta yfir hluta af rým­inu.

„Forréttindi að vinna við eitthvað sem maður elskar“

Þær Elísabet og Helga hafa báðar fjöl­breyttan bak­grunn. Þær eiga það þó sam­eig­in­legt að hafa starfað þvert á svið mynd­listar og hönn­unar við fjöl­breytt verk­efni auk þess sem þær þekkja vel til innan mynd­lists­ar­sen­unnar.

Elísabet: „Það styrkir okkur í ráð­gjöf­inni. Þú lærðir arki­tektúr og ég fata­hönnun áður, fyrir löngu og er síðan búin að vera í leik­mynda­hönnun og alls­konar tengdu hönnun.“

Helga: „Ég kem úr arki­tektúr en svo hef ég starfað við graf­íska hönnun og í alls­konar verk­efnum tengdum mynd­list. Ég stofn­aði Neptún magazine sem var mynd­list­ar­tíma­rit. Þar kvikn­aði þessi „online“ þrá­hyggja, það er að segja að miðla mynd­list þannig. Svo lærði ég vef­hönnun sem hjálpar okkur líka og er svo að klára masters­nám í mark­aðs­fræði og nýsköp­unar- og frum­kvöðla­fræði.“

Elísabet: „Það sem ein­kennir Listval er miðl­unin sem við höfum báðar lagt mikla áherslu á. Ég var í hag­nýtri menn­ing­ar­miðlun líka, maður brennur svo­lítið fyrir því að kynna mynd­list. Það er grunn­ur­inn að Listval.“

Helga: „Það eru ákveðin for­rétt­indi að vinna við eitt­hvað sem maður elskar. En það getur verið erfitt stundum því við erum báðar með haus­inn svo fullan af hug­myndum. Þá þarf maður aðeins að stoppa og klára það sem maður er að vinna að fyrst.“

Hug­mynd­irnar eru ekki af skornum skammti hjá þeim stöllum í Listsval. Þær langar til að mynda til þess að geta boðið upp á sýnd­ar­heim­sóknir í þrí­vídd. „Þá getur fólk sem býr út á landi eða ekki á Íslandi labbað inn í rýmið. Tæknin er orðin svo rosa­leg og stundum eru mögu­leik­arnir yfir­þyrm­andi,“ segir Helga og bætir við. „það er mjög gaman að skoða þró­un­ina í þessum heimi, það er svo margt að ger­ast. Það verður gaman að sjá hvernig staðan verður eftir fimm ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár