Halla sækir á Andra Snæ og Davíð fatast flugið

Halla Tómasdóttir er nú með stuðning 8,7 prósent kjósenda samkvæmt kosningaspánni.
Halla Tóm­as­dóttir er nú með stuðn­ing 8,7 pró­sent kjós­enda sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Halla Tóm­as­dóttir, athafna­kona, nýtur stuðn­ings 8,7 pró­sent kjós­enda sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni sem unnin var í dag úr fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi for­seta­fram­bjóð­enda. Guðni Th. Jóhann­es­son, sagn­fræð­ingur, stendur í stað og mælist með 57 pró­sent fylgi og er sem fyrr lang vin­sæl­asti fram­bjóð­and­inn.

Halla hefur vaxið í hverri kosn­inga­spá sem gerð hefur verið síðan um miðjan síð­asta mánuð, alveg síðan hún mæld­ist með rétt tæp­lega 2 pró­sent 14. maí og þar til nú þegar hún mælist með 8,7 pró­sent í kosn­inga­spánni. Aðeins þrír njóta meiri stuðn­ings í emb­ætti for­seta Íslands; Guðni, Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, og Andri Snær Magnason, rit­höf­undur.

[adspot]

Davíð hefur fat­ast flugið und­an­farna daga og mælist með 18,6 pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spánni. Hann hefur mest mælst með 20,3 pró­sent um mán­að­ar­mót maí og júní. Andri Snær hefur mælst með rúm­lega 11 pró­sent fylgi nær stöðugt und­an­far­inn mánuð eða síðan kosn­inga­spáin var gerð fyrst fyrir for­seta­kosn­ing­arnar. Andri mælist nú með stuðn­ing 11,1 pró­sent kjós­enda.

Sturla Jónsson, bíl­stjóri, mælist einnig með álíka mikið fylgi og síð­ast; 2,3 pró­sent kjós­enda styðja fram­boð hans. Aðrir fram­bjóð­endur myndu fá minna ef kosið yrði nú. Ástþór Magn­ús­son fengi 1 pró­sent, Elísabet Jök­uls­dóttir fengi 0,7 pró­sent, Hildur Þórð­ar­dóttir fengi 0,2 pró­sent og Guðrún Margrét Páls­dóttir fengi 0,4 pró­sent atkvæða.

Kosn­­­inga­­­spá Kjarn­ans og Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar er gerð í fyrsta sinn fyrir for­seta­kosn­ing­ar. Kjarn­inn hefur áður birt nið­ur­stöður kosn­inga­spálík­ans­ins fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2014 fyrir fylgi fram­boða í Reykja­vík. Þá verða nið­ur­stöður lík­ans­ins um fylgi stjórn­mála­flokka í fyr­ir­hug­uðum alþing­is­kosn­ingum birtar á vef Kjarn­ans í aðdrag­anda kosn­ing­anna í haust. Í nýj­­­ustu kosn­­­inga­­­spánni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar eru nýj­­­ustu kann­an­­­irnar vegn­­­ar:

  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 8. til 12. júní (vægi 22,2%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 6. júní (vægi 14,5%)
  • Skoð­ana­könnun Gallup 26. maí - 3. júní (vægi 23,6%)
  • Skoð­ana­könnun Fré­lags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 1. til 2. júní (vægi 14,3%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 26. maí til 2. júní (vægi 15,0%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 30. maí (vægi 10,4%)

Hvað er kosn­­inga­­spá­in?

Kosn­­­inga­­­spálíkan Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar miðar að því að setja upp­­­lýs­ing­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­inga­­­spá Bald­­­urs fyrir sveit­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ing­­­arnar og reynd­ist sú til­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­inga­­­spá.is má lesa nið­­­ur­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­leiki könn­un­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­inga­úr­slit­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár