Konungssinnar eyða mörgum milljörðum í varning vegna krýningarafmælis drottningar

Áætlað er að Bretar muni eyða yfir 60 millj­örðum króna í kon­ung­legan varn­ing vegna krýn­ing­araf­mælis drottn­ingar sem haldið verður upp á með fjög­urra daga hátíð­ar­höldum. Tebollar, diskar með gyll­ingu og spila­dósir eru meðal kon­ung­legra muna sem rjúka út.

Spennan magnast fyrir 70 ára krýningarafmæli Elísabetar Englandsdrottningar sem fagnað verður með ýmsum hætti 2. - 5. júní.
Spennan magn­ast fyrir 70 ára krýn­ing­araf­mæli Elísa­betar Eng­lands­drottn­ingar sem fagnað verður með ýmsum hætti 2. - 5. júní. Mynd: EPA

Fjögurra daga hátíð­ar­höld verða í Bret­landi í kom­andi viku í til­efni af 70 ára krýn­ing­araf­mæli Elísa­betar Eng­lands­drottn­ingar. Hátíð­ar­höldin eru sér­stak­lega veg­leg þar sem opin­berum afmæl­is­degi drottn­ingar, sem varð 96 ára í apríl, verður fagnað sam­tímis.

Hátíð­ar­höldin hefj­ast á afmæl­is­skrúð­göngu drottn­ingar (e. Trooping the Colour) næst­kom­andi fimmtu­dag, 2. júní, en alls verða 2.429 almennir við­burðir í boði víðs­vegar um Bretland. Garð­veislur og götupartý eru einnig ómissandi hluti af hátíð­ar­höld­unum og nú þegar hafa 2.653 skráð slíka fögn­uði í gagna­grunn á sér­stakri heima­síðu hins opin­bera sem sér um skipu­lagn­ingu krýn­ing­ar­há­tíð­ar­innar.

Hápunktur konungssinna og konunglegra safnara

Segja má að hátíðin sé hápunktur kon­ungs­sinna og kon­ung­legra safn­ara þar sem nú gefst tæki­færi til að sanka að sér alls kyns kon­ung­legum munum. Gert er ráð fyrir að Bretar muni eyða um 408 millj­ónum punda, eða sem nemur rúm­lega 66 millj­örðum króna, í ýmis konar varn­ing tengdan krýn­ing­ar­há­tíð­inni, allt frá tebollum til spila­dósa.

Elísabet II Eng­lands­drottn­ing tók við bresku krún­unni í febr­úar 1952 eftir að faðir hennar, Georg sjötti, féll frá. Hún er fyrsti breski þjóð­höfð­ing­inn sem nær þeim áfanga að ríkja í meira en 70 ár.

Elísabet varð 96 ára 21. apríl og hefð er fyrir því að halda opin­ber­lega upp á afmæli þjóð­höfð­ingja í júní. Um er að ræða yfir 250 ára gamla hefð sem má rekja allt aftur til valda­tíðs Georgs II á 18. öld. Hann átti afmæli 30. októ­ber en vildi halda upp á afmælið að sumri til.

Í ár er blásið til fjög­urra daga hátíð­ar­halda, 2.-5. júni, þar sem krýn­ing­araf­mæl­inu og opin­berum afmæl­is­degi drottn­ingar er fagnað sam­rímis. Bretar fá því tvo auka frí­daga sem verður vænt­an­lega tekið fagn­andi, óháð því hvort fólk lítur á sig sem kon­ungs­sinna eða ekki.

Nýtt drottningarstell í tilefni af krýningarafmælinu

Bresk fyr­ir­tæki taka hátíð­inni einnig fagn­andi þar sem hátíðin mun ýta undir verslun, ekki síst á varn­ingi sem teng­ist krýn­ing­araf­mæli drottn­ingar. Þannig hefur postu­líns­fram­leið­and­inn Halycon Days í Stoke-on-Trent ráðið starfs­fólk ein­göngu til að sjá um sér­pant­anir í tengslum við krýn­ing­araf­mælið.

Halycon Days er eitt 14 fyr­ir­tækja sem hefur heim­ild til að fram­leiða öll þrjú kon­ung­legu mat­ar­stellin, það er drottn­ing­ar­stellið auk stella í nafni Fil­ippusar prins, her­tog­ans af Edinborg og Karls bretaps­ins, prins­ins af Wales. Meiri­hluti af borð­bún­að­inum sem verður gef­inn út í til­efni af 70 ára krýn­ing­araf­mæli drottn­ingar er sér­stak­lega ætl­aður söfn­urum.

Stellið sam­anstendur af ýmsum munum á breiðu verð­bili. Ódýrasti hlut­ur­inn, bolli, nokkur konar kaffi­fantur, kostar 29 pund, um 4.700 krónur. Mat­ar­diskar með 22 karata gyll­ingu kosta 150 pund stykkið, rúmar 24 þús­und krónur en dýr­asti mun­ur­inn í stell­inu er spila­dós sem kostar 1.950 pund, eða sem nemur rúmum 317 þús­und krónum. Eft­ir­spurnin er svo sann­ar­lega til staðar þar sem sumar vörur selj­ast upp í forpöntun áður en þær ná í vöru­hillur.

Vonar að drottningin fái sér tesopa úr nýja stellinu

„Við erum búin að gefa út tvær vöru­línur og þær seld­ust strax upp,“ segir Pamela Harper, fram­kvæmda­stjóri Halycon Days, í sam­tali við BBC. Að hennar mati er útgáfa á vöru­línum eins og mat­ar­stelli í til­efni af krýn­ing­araf­mæli drottn­ingar kjörið tæki­færi til að halda dvín­andi list­formi á lífi. „Áhugi okkar á þessu kemur meðal ann­ars til þar sem við viljum við­halda þessum hæfi­leikum innan bresku þjóð­ar­innar,“ segir Pamela.

Þegar mat­ar­stellið var til­búið var það flutt í Windsor-kast­ala þar sem drottn­ingin var fengin að leggja mat á hvort það stæð­ist kröfur hennar. „Ég hef aldrei verið jafn stressuð á ævinni,“ segir Pamela. Stellið fékk blessun drottn­ingar og er fram­leiðslan nú komin á fullt fyrir hátíð­ar­höldin eftir helgi. Pamela seg­ist vona að drottn­ingin muni fá sér te úr bolla úr stell­inu við og við.

Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar í Bret­landi áætlar að Bretar muni eyða í kringum 408 millj­ónum punda, and­virði rúm­lega 66 millj­arða, í tengslum við krýn­ing­araf­mælið næstu daga. Þar af er áætlað að um 281,6 millj­ónir punda, eða sem nemur rúmum 45 millj­örðum, fari í ýmis konar kon­ung­legan varn­ing tengdan hátíð­ar­höld­unum.

Auk kon­ung­legra mat­ar­stella gegnir breski fán­inn veiga­miklu hlut­verki í hátíð­ar­höld­unum sem fram undan eru. Starfs­fólk fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­is­ins Flying Colours Flag­ma­kers í smá­bænum Knaresborough er í óða önn að und­ir­búa hátíð­ar­höldin næstu daga. „Við náum varla utan um þetta eins og stendur. Það hrúg­ast inn pant­anir á net­inu og sím­inn hringir stans­laust,“ segir Andy Omrod, eig­andi fána­fyr­ir­tæk­is­ins.

Eigum það til að henda sögunni í ruslið

En hvað verður svo um alla fán­ana, og aðra kon­ung­lega muni sem telj­ast ekki nógu mik­il­vægir til að rata í söfn kon­ungs­sinna?

Sagn­fræð­ing­ur­inn Robert Opie stendur fyrir sýn­ingu á safni í London, Museum of Brands, sem varð­veitir neyslu­menn­ingu allt frá Vikt­or­íu­tím­anum til dags­ins í dag. Á sýn­ing­unni verður hægt að skoða um 200 kon­ung­lega muni sem útbúnir hafa verið í tengslum við merk tíma­mót í kon­ungs­fjöl­skyld­unni.

„Við lifum í neyslu­heimi og hendum alls konar hlutum í ruslið, en sagan býr einmitt í hlutum sem þessum,“ segir Opie, sem hvetur fólk til að fara vel með mun­ina sem það kaupir í til­efni af krýn­ing­araf­mæli drottn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

englandsdrottning

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár