Sigurður Hannesson fékk fálkaorðuna fyrir starf InDefence og framlag til atvinnulífs

Alls voru fjórtán manns sæmdir heið­urs­merki hinnar íslensku fálka­orðu á Bessa­stöðum í dag.

Sigurður Hannesson.
Sigurður Hann­es­son. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, var einn þeirra sem Guðni Th. Jóhann­es­son sæmdi ridd­ara­krossi hinnar íslensku fálka­orðu í dag. Sigurður fékk orð­una „fyrir atbeina undir merkjum sam­tak­anna Indefence og fram­lag til íslensks atvinnu­lífs.“

Alls hlutu fjórtán manns ridd­ara­kross í dag. Á meðal ann­arra sem hann hlutu var Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marel fyrir fram­lag sitt til íslensks atvinnu­lífs og útflutn­ings á sviði hátækni og nýsköp­unar.

[adspot]Hér að neðan er hægt að sjá lista yfir alla sem hlutu heið­urs­merki hinnar íslensku fálka­orðu á Bessa­stöðum í dag.

Orðuhafar:

  • Árni Oddur Þórð­ar­son for­stjóri, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til íslensks atvinnu­lífs og útflutn­ings á sviði hátækni og nýsköp­unar
  • Daníel Bjarna­son tón­skáld og hljóm­sveit­ar­stjóri, Sel­tjarn­ar­nesi, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til íslenskrar og alþjóð­legrar tón­listar
  • Gestur Pálsson barna­læknir, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir störf í þágu heil­brigðis barna
  • Guðni Kjart­ans­son fyrr­ver­andi íþrótta­kenn­ari og þjálf­ari, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir störf á vett­vangi íþrótta og skóla
  • Guðrún Hildur Bjarna­dóttir ljós­móðir, Þórshöfn, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til heil­brigð­is­þjón­ustu í heima­byggð
  • Guðríður Helga­dóttir for­stöðu­maður starfs- og end­ur­mennt­un­ar­deilda Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands, Kópavogi, ridd­ara­kross fyrir störf á vett­vangi íslenskrar garð­yrkju og miðlun þekk­ingar
  • Jóhanna Gunn­laugs­dóttir pró­fessor við Háskóla Íslands, Garðabæ, ridd­ara­kross fyrir kennslu og rann­sóknir á sviði upp­lýs­inga­fræði og skjala­stjórn­unar
  • Margrét Bjarna­dóttir fyrr­ver­andi for­maður fim­leika­fé­lags­ins Gerplu og Fim­leika­sam­bands Íslands, Kópavogi, ridd­ara­kross fyrir störf á vett­vangi íþrótta og æsku­lýðs­mála
  • Ólafur Haukur Sím­on­ar­son rit­höf­undur, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til íslenskrar leik­rit­unar og bók­mennta
  • Ólöf Hall­gríms­dóttir bóndi, Mývatns­sveit, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til ferða­þjón­ustu og atvinnu­lífs í heima­byggð
  • Sig­ur­borg Daða­dóttir yfir­dýra­læknir, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til vel­ferðar dýra, og störf á vett­vangi dýra­lækn­inga og sjúk­dóma­varna
  • Sigurður Hann­es­son fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir atbeina undir merkjum sam­tak­anna Indefence og fram­lag til íslensks atvinnu­lífs
  • Sigurður Reynir Gíslason rann­sókna­pró­fessor, Kópavogi, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til íslenskra jarð­vís­inda og kolefn­is­bind­ingar
  • Val­gerður Stef­áns­dóttir fyrr­ver­andi for­stöðu­maður Sam­skipta­mið­stöðvar heyrn­ar­lausra og heyrn­ar­skertra, Hafn­ar­firði, ridd­ara­kross fyrir störf í þágu íslensks tákn­máls og jafn­rétt­is­bar­áttu döff fólks
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár