Þórdís Kolbrún segir tístið „hugsað í algjörri einlægni“ og ekki tengt sóttvörnum

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir að umdeild færsla hennar á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter, þar sem hún vitn­aði til banda­ríska bar­áttu­manns­ins Martins Luthers King, teng­ist ekki skoðun hennar á sótt­varna­ráð­stöf­unum.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir að tíst sem hún setti inn á Twitter í gær, og vakið hefur nokkra umræðu á sam­fé­lags­miðl­inum síðan, hafi verið „hugsað í algjörri ein­lægni sem tákn um virð­ingu fyrir manni sem er sam­eig­in­leg tákn­mynd margs þess besta í fari mann­kyns; hug­rekkis, rétt­sýni og bar­áttu­þreki fyrir mann­rétt­indum.“

Þetta kemur fram í skrif­legu svari hennar við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið, en Þórdís Kolbrún hefur hlotið nokkuð beitta gagn­rýni fyrir tístið, sem var á ensku og vís­aði til orða banda­ríska mann­rétt­inda­fröm­uð­ar­ins Martins Luthers King.

„Þórdís setti Twitter á hlið­ina,“ sagði í fyr­ir­sögn fréttar DV um við­brögð við færsl­unni og Frétta­blaðið birti fyrr í dag frétt um að utan­rík­is­ráð­herra hefði valdið „fjaðrafoki“ með til­vitnun sinni.

Utan­rík­is­ráð­herra hefur meðal ann­ars verið gagn­rýnd í athuga­semdum við færsl­una fyrir að slíta orð King úr sam­hengi – og einn svar­andi benti á að Martin Luther King hefði aldrei látið til­vitn­un­ina sem Þórdís Kolbrún vís­aði til falla í reynd, þrátt fyrir að hún væri oft eignuð honum og væri eins­konar sam­an­tekt á frægri ræðu hans er mann­rétt­inda­bar­átta svartra var í algleym­ingi í Banda­ríkj­unum.

Orð hans og skilaboð eigi enn brýnt erindi við heiminn

Þá hafa sumir net­verjar sett fram þá túlkun á færsl­unni að Þórdís Kolbrún hafi með færslu sinni verið að líkja saman bar­áttu King fyrir grund­vall­ar­rétt­indum svartra Banda­ríkja­manna við sína eigin and­stöðu við sótt­varna­ráð­staf­anir og frels­is­skerð­ingar vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Því vísar Þórdís Kolbrún á bug.

[adspot]

Um tístið segir Þórdís Kolbrún í svari til Kjarnans að í gær hafi verið afmæl­is­dagur Martins Luthers King og frí­dagur í hans nafni í Banda­ríkj­unum og „því gott til­efni til þess að minna okkur á að orð hans og skila­boð eiga enn brýnt erindi við heim­inn.“

Spurð hvort það sé rétt túlkun á tíst­inu að tengja það skoð­unum hennar á sótt­varna­ráð­stöf­unum, segir Þórdís Kolbrún svo ekki vera.

„Í umræðum víða um heim hefur hins vegar gætt til­hneig­ingar til þess að tak­marka frelsi fólks til tján­ingar og frjálsrar hugs­unar. Ég tel til­efni til að við minnum okkur á mik­il­vægi þess að and­stæðar skoð­anir fái að heyr­ast, og ég tek fram að mér er jafn­um­hugað um tján­ing­ar­frelsi þeirra sem eru mér full­kom­lega ósam­mála og hinna sem eru mér sam­mála,“ segir Þórdís Kolbrún í skrif­legu svari til Kjarnans.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár