Nýting versnar en herbergjum fjölgar

Á sama tíma og nýt­ing hót­el­her­bergja versnar hefur her­bergj­unum fjölgað. Her­bergj­a­nýt­ing á Suð­ur­nesjum minnkar mikið.

Herbergjanýting var best í Reykjavík
Her­bergj­a­nýt­ing var best í Reykja­vík Mynd: Birgir Þór Harðarson

Samkvæmt leið­réttum tölum Hag­stof­unnar um gistinætur hefur nýt­ing á hót­el­her­bergjum minnkað um 7,2 pró­sent miðað við febr­úar í fyrra og febr­úar í ár. Á sama tíma fjölgar hót­el­her­bergjum.

Í febr­úar síð­ast­liðnum voru hót­el­her­bergi á land­inu 10.185 og hafði fjölgað sjö pró­sent frá því í febr­úar árið áður. Best er nýt­ingin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en athygli vekur að her­bergj­a­nýt­ingin minnkar áber­andi mikið á Suð­ur­nesjum, eða um 14,6 pró­sent.

Þó að aust­ur­land sé eini lands­hlut­inn þar sem nýt­ing hót­el­her­bergja eykst miðað við þessa tvo mán­uði er her­bergj­a­nýt­ingin verst eða rétt innan við tutt­ugu pró­sent. Næst minnst er hún á norð­ur­landi þar sem hún er þrjá­tíu pró­sent.

Gistinóttum fækkar

Gistin­óttum á hót­elum fækkar um þrjú pró­sent miðað við febr­úar í ár og febr­úar 2018. Miðað við tíma­bilið mars til febr­úar fjölgar þeim hins vegar um þrjú pró­sent. Mest fækkun á gistin­óttum á milli ára er á Suð­ur­nesjum en þar fækkar gistin­óttum um þrettán pró­sent þó að þeim fjölgi um eitt pró­sent sé miðað við tólf mán­aða tíma­bil. Á aust­ur­landi, Vest­fjörðum og vest­ur­landi fjölgar gistin­óttum mikið miðað við febr­úar í ár og í fyrra. Aftur á móti fækkar gistin­óttum á aust­ur­landi um fimm pró­sent sé horft til tólf mán­aða.

Í gistin­átta­grunni Hag­stof­unnar eru skráðar 519.000 gistinætur í febr­úar síð­ast­liðnum en voru 526.000 í sama mán­uði í fyrra. Lang­flestar gistinætur voru á hót­elum og gisti­heim­ilum, en um 100.000 not­uð­ust við ann­ars­konar gisti úrræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár