Gildi orðinn þriðji stærsti eigandi Arion banka

Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi hefur bætt við sig hlutum í Arion banka og á nú yfir fimm pró­sent hlut. Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eiga sam­tals tæp­lega 12 pró­sent í bank­anum.

Rúmt ár er síðan að Arion banki var skráður á markað.
Rúmt ár er síðan að Arion banki var skráður á markað. Mynd: Nasdaq Iceland

Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi hefur bætt við sig hlutum í Arion banka og er nú kom­inn með yfir fimm pró­sent eign­ar­hlut, sem þýðir að við­skipti verða flögg­un­ar­skyld. Samkvæmt til­kynn­ingu til Kaup­hallar er eign­ar­hlutur Gildis nú 5,39 pró­sent en var 4,73 pró­sent fyrir við­skiptin. Það gerir Gildi að þriðja stærsta eig­anda Arion banka á eftir vog­un­ar­sjóð­unum Taconic Capital (23,53 pró­sent) og Och Ziff Capital (9,25 pró­sent).

Gildi er þriðji stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins. Hinir tveir stóru sjóð­irnir, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) og Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, eiga einnig umtals­verðan hlut í Arion banka. LSR á 3,58 pró­sent hlut en Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna 2,73 pró­sent. Sam­eig­in­legur eign­ar­hluti þeirra er því 11,68 pró­sent. Stærsti íslenski einka­fjár­festir­inn er fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir, sem á 4,96 pró­sent hlut.

[adspot]Arion banki mun kynna afkomu ann­ars árs­fjórð­ungs árs­ins síð­degis á fimmtu­dag. Það verður fyrsta birt­ing upp­gjörs eftir að Benedikt Gíslason var ráð­inn banka­stjóri bank­ans fyrr á þessu ári.

Tveir nýir stjórnarmenn kosnir

Hlut­hafa­fundur fer fram í Arion banka næst­kom­andi föstu­dag, þann 9. ágúst, dag­inn eftir að hálfs­árs­upp­gjörið verður gert opin­bert. Þar verður meðal ann­ars kosið um tvo nýja stjórn­ar­menn sem eiga að starfa fram að næsta aðal­fundi bank­ans, sem fram mun fara vorið 2020.

Þrír hafa boðið sig fram til setu í stjórn­inni. Þeir eru Gunnar Sturlu­son, lög­maður og einn eig­anda Logos , Paul Richard Horner, starfs­maður Ulster Bank Ireland og Már Wolfgang Mixa hag­fræð­ingur. Til­nefn­ing­ar­nefnd Arion banka hefur farið yfir fram­boð þeirra og í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands kemur fram að hún leggi til að Gunnar Sturlu­son og Paul Richard Horner verði kjörnir stjórn­ar­menn.

Auk þess verður kosið um eitt sæti í til­nefn­ing­ar­nefnd bank­ans. Einn gefur kost á sér í það sæti, Júlíus Þor­finns­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­fé­lags­ins Stoða, sem eiga 4,96 pró­sent hlut í bank­anum. Stjórn Arion banka hefur metið hæði Júlíusar og sam­kvæmt til­kynn­ingu er hann óháður Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár