Viggó viðutan sextugur

Uppreisn gleð­innar, mann­úðin og að breyta heim­inum með hlátri.

Andóf í myndasögum

Mynda­sögur eru magnað fyr­ir­bæri. Þær eiga sér langa og flókna sögu; ræt­urnar liggja víða, í gömlum mið­alda­hand­ritum, barna- og dýra­fræði­bókum og lengi hefur mað­ur­inn reynt að útskýra sín mál og segja sögur með myndum. Þetta er kröft­ugt og heill­andi list­form þar sem rit­málið og mynd­málið renna saman í eitt. 

Mynda­sögur eru af mörgum toga. Stundum eru þær rætnar og í þeim birt­ist andóf og upp­reisn. Enda eiga þær rætur sínar að rekja til skop­mynda­teikn­inga, sem eru jafnan grófar, beittar og hæð­ast gjarnan að yfir­stétt og vald­höfum. Þetta er alda­gam­alt fyr­ir­bæri og við sjáum slíkar skop­mynda­teikn­ingar og veggjakrot í æva­gömlum forn­minjum. Tæki hinna kúg­uðu, hinna und­ir­ok­uðu – að krota myndir á vegg í skjóli nætur: dóna­legar, rætnar, fyndnar myndir og hæð­ast að þeim sem ráða. Draga þá niður í svaðið, sýna að þeir eru alveg eins og við hin; mann­leg, rugluð, breysk – og síður en svo, eitt­hvað merki­legri en við hin.

Skop­mynda­teikn­ingar eru líka not­aðar í póli­tískum til­gangi til þess að gagn­rýna og oftar en ekki nið­ur­lægja and­stæð­ing­inn. Þetta gerðu Bretar t.d. með eft­ir­minni­legum hætti þegar þeir háðu stríð við Frakka og teikn­uðu Napóleon sem lít­inn, trylltan og geð­veikan mann. Skop­myndir Breta af Bonap­arte þjöpp­uðu and­stæð­ingum hans saman, og enn í dag eru allir með þá mynd af honum í koll­inum að hann hafi verið lít­ill kall – þótt Napóleon hafi raunar verið með­al­maður á hæð.

Slíkur er máttur skop­mynda. Nýlegt dæmi eru dönsku skop­mynda­teikn­ing­arnar af Múhameð sem sann­ar­lega hreyfðu við hinum íslamska heimi. Skop­myndir (þegar vel tekst til) eru nefni­lega hættu­legt og beitt vopn.

Mynda­sögur geta sömu­leiðis verið hár­beittar, þær er oft jaðr­inum og í mörgum til­fellum eru mynda­sögur eins­konar jað­ar­list. Jafnvel götu­list og hafa tak­mark­aðan aðgang að heimi hinna æðri lista. Mynda­sögur hafa enda verið litnar horn­auga þrátt fyrir gíf­ur­legar vin­sældir. Það er ekki svo langt síðan íslensk börn og for­eldrar þeirra voru hrein­lega vöruð við lestri mynda­sögu­bóka. Þær þykja ekki fín list. Sumar mynda­sögur eru for­boðnar, grófar og mis­kunn­ar­lausar. Hetjur og helstu sögu­hetjur mynda­sagna eru oftar en ekki and­hetjur; gall­aðar og breyskar, stundum hálf­gerð „frík“, sem lifa og þríf­ast á jaðri sam­fé­lags­ins. Barátta góðs og ills er yfir­leitt í for­grunni, sym­ból­ism­inn er slá­andi og æpandi og þarna úir og grúir af alls­konar ádeilu og ban­eitr­uðum boð­skap.

Í mynda­sögum nútím­ans sjáum við oft glögg merki hinnar póli­tísku ádeilu. Frægasta saga síð­ari ára er án efa Persepolis eftir Marjane Satrapi sem segir frá upp­vexti sínum í Íran á dögum bylt­ing­ar­innar 1979. Þessi litla mynda­saga, sem kom út árið 2000 og varð seinna kvik­mynd olli miklu umtali, hreyfði við hinum íslamska heimi, var bönnuð víða um heim og skók jafn­vel sjálft risa­veldið Íran. Mynda­sögur eru nefn­lega ekk­ert gam­an­mál – eða, jú, jú – þær eru vissu­lega oft og tíðum algjört gam­an­mál, grín og glens; en öllu gríni fylgir nefni­lega oft­ast ein­hver alvara.

Nú verður greint frá mynda­sögu sem er svo sem ekk­ert á jaðr­inum, hér er ekk­ert gróft á ferð­inni, ein­ungis grall­ara­skapur og glens af bestu gerð. En það býr ýmis­legt að baki í sög­unum um hann Viggó viðutan.

Viggó er uppreisnarseggur

Viggó viðutan er ein­hver fræg­asta mynda­sögu­per­sóna Belga. Hann er klass­ískur og það er eitt­hvað í fari hans sem heillar kyn­slóð eftir kyn­slóð. Viggó er engin hetja; hann er frekar and­hetja. Hann vinnur engar dáðir, er latur, sumir myndu jafn­vel segja að hann væri kjáni, en hann er samt eng­inn óþokki og í raun mesta gæða­blóð.

Það er tölu­verð póli­tík og ádeila í þessum sögum, en það er á engan hátt aug­ljóst eða yfir­þyrm­andi; höf­und­ur­inn,Franquin gerir þetta með svo hár­fínum og beittum hætti að skila­boðin smjúga inn - jafn­vel óaf­vit­andi. Við finnum að Viggó er með upp­á­tækjum sínum og grall­ara­skap að and­æfa ein­hverju – ein­hverju kerfi sem er ómann­úð­legt og blátt áfram leið­in­legt. En Viggó sýnir okkur kannski fyrst og fremst að best sé að brosa og hlæja; sama hvað á dynur - dragðu fram bros, það mun auð­velda þér allt. Að húmor­inn sé eitt­hvað það mik­il­væg­asta í líf­inu.

Sögurnar um Viggó eru ekki epískar, þetta eru litlar, stuttar og ein­faldar mynda­sögur sem rúm­ast yfir­leitt á einni blað­síðu, stundum bara ein og ein skop­mynd, enda sér­stak­lega hann­aðar fyrir blöð og tíma­rit á þeim tíma þegar þær voru gerðar. Það eru aldrei neinar heild­stæðar sögur í bók­unum. Þetta eru brot, svip­myndir af ævin­týrum hans sem öll eiga sér stað í hvers­dags­líf­inu – á skrif­stof­unni, úti á götu, eða í sveit­ar­ferð með kærust­unni eða vinum. Hann fer aldrei til útlanda, hér eru engin hættu­leg saka­mál á ferð­inni, það er lítið um yfir­skil­vit­lega hluti – þetta ger­ist allt saman í afar hvers­dags­legum raun­veru­leika. Líf sem við öll þekkjum og til­heyrum.

Og þetta er einmitt gald­ur­inn við Viggó og kannski stærsti til­gangur hans – að rugla upp raun­veru­leik­anum, að breyta hinum hefð­bundna, vana­fasta degi í eitt­hvað óvænt. Opna nýjar víddir og gera lífið að ævin­týri. Í fyrstu eru þessar skrýtlur svona klass­ískt „slapstick“ grín (hann bónar gólfin í vinn­unni svo ill­þyrmi­lega vel að allir fljúga á haus­inn) - en með árunum þró­ast hann og verður ögn póli­tísk­ari, þar sem friðar- og umhverf­is­bar­átta verður í for­grunni. Hæðist að her­mönnum, yfir­valdi og er sífellt málsvari minni­hlut­ans, sér í lagi sak­lausra dýra.

Viggó viðutan er upp­á­tækja­samur iðju­leys­ingi, hippi, bítnikk­ari, upp­reisn­ar­gjarn rokk­ari sem hefur lag á því að finna upp furðu­leg­ustu hluti og setja allt á annan end­ann með upp­á­tækjum sínum. Hann er tákn­mynd ein­stak­lings­ins sem hlýðir ekki yfir­vald­inu – fer sínar eigin leiðir og gerir bók­staf­lega allt til þess að gera lífið skemmti­legra. Hann er í stöðugri, gam­an­samri upp­reisn gegn kerf­inu; hinu hefð­bundna, hann er í stöð­ugu stríði gegn hinu stífa og leið­in­lega, gegn yfir­mönnum, pen­inga­valdi og svo hefur hann með tím­anum orðið, eins og áður sagði, tákn fyrir umhverfis- og mann­rétt­inda­bar­áttu og dýra­vernd.

En fyrst og fremst er Viggó í dul­búnu stríði gegn leið­indum, hinu þurra og lit­lausa lífi. Sögurnar af Viggó eru fullar af krafti, lífi, litum og teikn­ingar Franquins eru iðandi og fjörugar.

Saga Viggós

Viggó viðutan eða Gaston Lagaffe (eins og hann heitir á frum­mál­inu, frönsku) hóf feril sinn sem auka­per­sóna í blöðum og bókum um þá félaga Sval og Val. Það var rit­stjóri Spirou, Yvan Delporte, sem átti hug­mynd­ina að þessum húðlata en skondna karakter og gaukaði henni að Franquin. Hann birt­ist fyrst litlum ramma í febr­úar 1957 í blaði um þá félaga. Það var þó ein­ungis gert til þess að fylla upp í tóma­rúm sem mynd­ast hafði í blað­inu. Þarna mætir Viggó á sjálfa teikni­mynda­stof­una til þess að sækja um vinnu. Í fyrstu segir hann ekki orð. Stendur bara með sígar­ett­una lafandi í munn­vik­inu - og um leið verður hann þessi senu­þjófur. Kæru­leys­is­legt og skondið yfir­bragð hans grípur strax athygl­ina. Klæddur grænni peysu, galla­buxum, rauðum sokkum og bláum skóm – sem með tím­anum verður ein­kenn­is­klæðn­aður hans.

Höfundur og skapari Viggós er Belginn André Franquin sem er einskonar goðsögn í heimi myndasagna.
Höfundur og skap­ari Viggós er Belginn André Franquin sem er eins­konar goð­sögn í heimi mynda­sagna.

Hann er mættur á teikni­mynda­stofu Svals og Vals með þetta ein­staka fas og við­mót eins og honum sé skít­sama um allt. Enginn veit með vissu hver ræður hann til starfa, sem er síðan ein af stóru ráð­gát­unum um Viggó, og ekki síður hvers vegna hann er aldrei rek­inn. Hann veit í raun og veru ekk­ert sjálfur hvað hann er að gera eða til hvers hann er kom­inn. Enn meiri óvissa er síðan um það hvað hann bein­línis gerir, en svo virð­ist sem verk hans sé að flokka póst. En þarna s.s. birt­ist hann fyrst og verður síðan með tím­anum lítil auka­per­sóna í vin­sælum ævin­týrum um þá félaga Sval og Val. Viggó kemur m.a. fyrir í bók­unum Gorma­hreiðrið, Svalur og Gór­illu­ap­arnir og Svað­il­för til Sveppa­borgar og verður síðan æ fyr­ir­ferð­ar­meiri senu­þjófur þar til hann loks öðl­ast sjálf­stætt líf

Franquin sem hafði um ára­bil haft umsjón með þeim Sval og Val, er að mörgum álit­inn hinn klass­íski höf­undur og meist­ari þeirra sagna, en var orð­inn leiður á þeim og ævin­týrum þeirra og varð sífellt meira heill­aður af Viggó. Franquin var nefni­lega sjálfur dálít­ill upp­reisn­ar­seggur og sá tæki­færi til þess að lauma að ýmsum boð­skap og hug­myndum með Viggó sem var í raun óger­legt í hasaræv­in­týra­heimi Svals og Vals.

Þó spilar hér inni þung­lyndi sem hrjáði Franquin alla ævi. Það var í raun og veru það sem olli því að hann þurfti a segja sig frá þeim Sval og Vali. Viggó var kannski hans leið til að létta lund­ina og sjá hið bros­lega í líf­inu. Margir vilja meina að Viggó sé lukkutröll og gleðipilla höf­und­ar­ins. Litli prins­inn hans sem gladdi hann og færði honum von á erf­iðum stundum.

En Viggó rímar líka við upp­reisn­ar­eðli Franquins; Viggó er nefni­lega anar­kisti, dýra­vinur, umhverf­is­sinni og upp­reisn­ar­seggur í hugsun og aðgerðum eins og Franquin. Höf­und­ur­inn hefur meira að segja lánað Viggó ýmsum hug­sjóna- og bar­áttu­sam­tökum eins og Greenpeace og Amnesty International. Fræg er aug­lýs­ing fyrir Amnesty þar sem Viggó er pynt­aður og Jógu kær­ustu hans nauðgað fyrir framan hann og undir skrifað: „Þetta er ekki fyndið en þetta er að ger­ast út um allan heim.“

Uppátæki og uppfinningar

Á skrif­stof­unni gerir Viggó flest annað en að vinna. Hann á að til að koll­varpa öllu og setja allt á annan end­ann. Hann býr til ár og læki í stiga­göngum húss­ins, breytir skrif­stof­unni í sund­laug; þar fer hann líka í úti­legu, tjaldar og kveikir varð­eld. Viggó er upp­finn­inga­maður af bestu gerð, en á það til að finna upp heldur sér­kenni­lega og furðu­lega hluti. Hann finnur upp hluti eins og bind­is­hnúta­vél, raf­magns­fugla­hræðu, vasa­ljós með sól­ar­raf­hlöðum, straujárn með fjar­stýr­ingu og ljósa­baðs­regn­hlíf þar sem hægt er að ganga um í sól­skini í grenj­andi rign­ingu. Viggó er líka mik­ill tón­list­ar­maður og leikur á ýmis hljóð­færi sem hann hefur fundið upp og smíðað sjálfur en ærir yfir­leitt starfs­fé­laga sína með hávaða og látum. Frægasta hljóð­færið er Stein­ald­ar­harpan, risa­vaxið strengja­hljóð­færi sem fram­kallar því­lík hljóð og hljóð­bylgjur að allt splundr­ast og því veldur hljóð­færið gjarnan mik­illi eyði­legg­ingu þegar Viggó sest niður og spilar á það.

Viggó breyt­ist tölu­vert með árunum, hárið síkkar og sígar­ettan hverfur úr munn­inum en hann eld­ist ekki neitt. Hann er eins­konar Pétur Pan sem aldrei vill full­orðn­ast. Franquin gaf eitt sinn skyn að hann væri ekki alveg ung­lingur en heldur ekki orð­inn tví­tugur – kannski svona 19 ára. Hann er húðlatur en um leið ofvirkur þegar kemur að efna­fræði­til­raunum, furðu­legri elda­mennsku, eld­flaugum og inn­an­húss­hönnun. Svo er hann auð­vitað mik­ill dýra­vinur og á árás­ar­gjarnan máv, ofvirkan kött, gull­fisk og mús fyrir gælu­dýr sem oftar en ekki taka þátt í grall­ara­skapnum.

Upp­finn­ingar Viggós miða að því (eins og raunar öll vís­indi) að gera lífið bæði skemmti­legra og betra. Gera lífið og starfið á skrif­stof­unni auð­veld­ara. Búa til þægi­legri stóla og jafn­vel setu­stóla eða rúm í vinn­unni, auð­velda allar boð­leiðir, búa til ný og betri sam­göngu­tæki, gera umhverfið skemmti­legra og margar upp­finn­ingar Viggós bera hug­sjónum hans vitni; hann býr til gul­rót­ar­byssu þegar hann fer á kan­ínu­skytt­erí. Hann skýtur ekki kan­ínur – heldur skýtur gul­rótum til þeirra. Sem er auð­vitað fárán­legt, fyndið en líka svo fal­legt í sjálfu sér. Hann færir þeim líf í stað dauða. Þegar hann situr með veiði­stöng við fal­lega lax­veiðiá – er hann ekki að veiða fisk, heldur kæla hvítvínið.

André Franquin

Höfundur og skap­ari Viggós er eins og áður sagði Belginn André Franquin sem er eins­konar goð­sögn í heimi mynda­sagna. Hann fædd­ist 3. jan­úar 1924 í Etterbeek í Belgíu. Franquin hafði mikil áhrif á fram­gang og stíl mynda­sagna. Hann skap­aði bæði Viggó og undra­dýrið Gorm; hann gerði fjöl­margar bækur um þá félaga Sval og Val. Gormur öðl­að­ist síðar sjálf­stætt líf og um hann var gerð heil rit­röð. Gormur er sjálf­sagt heims­fræg­asta per­sóna Franquin, því hann hefur ratað inn í vin­sælar kvik­myndir og teikni­myndir.

Franquin lagði ungur stund á mynd­list og teikn­ingu og fór snemma að starfa við teikni­mynda­gerð þar sem hann komst í kynni við menn sem síðar urðu helstu snill­ingar belgískra mynda­sagna, menn eins og Morris sem síðar skóp Lukku Láka, Peyo höf­und Strumpanna og fleiri. Þessi kyn­slóð lagði í raun grunn að nýrri hugsun og nýju formi teikni­mynda­sög­unnar. Þeir útvíkk­uðu hug­myndir, stíl og form og áttu þátt í því að stór­auka vin­sældir teikni­mynda­sög­unnar í Evrópu. Ásamt Hergé, getum við alveg kallað þetta belgísku bylt­ing­una í teikni­mynda­heim­inum.

Franquin er stundum borin saman við Hergé, enda ein­hverjir áhrifa­mestu mynda­sögu­höf­undar Belga. En þeir eru eig­in­lega and­stæður. Á meðan Hergé er með þenna skýra, stíl­hreina og stillta stíl er Franquin allur á iði, kaó­tísk­ari og villt­ari. Hergé er íhalds­samur í hugsun en Franquin er rót­tækur. Hergé, höf­undur Tinna og félaga, var raunar mik­ill aðdá­andi Franquins og sagði um hann: „Ég er ein­ungis teikn­ari – en hann er lista­maður.“

Franquin er jafn­vel álit­inn einn af höf­uð­snill­ingum 20. ald­ar­innar og skipar sér í flokk með Charlie Chaplin og Jacques Tati þegar kemur að hár­beittum en hlýjum húmor. Í sögum sínum um Sval og Val sjáum við hann hæð­ast að hern­að­ar­brölti og kald­rifj­aðri vís­inda­hyggju með Zorglúbb og öðrum slíkum. Öllu hans gríni fylgir nefni­lega ein­hver alvara. Í síð­ustu verkum hans sem komu út undir lok átt­unda ára­tug­ar­ins, svörtu sög­unum, Idées noires, (það er eng­inn Viggó, Svalur eða Valur eða Gormur, aðeins skrímsli, furðu­fyr­ir­bæri og hryll­ingur) þar eru lit­irnir farnir – kannski til að und­ir­strika enn betur hinn svarta húmor sem þar er alls­ráð­andi. En þar krist­all­ast kannski fyrst og fremst, svart á hvítu, þung­lyndið sem höf­und­ur­inn barð­ist við alla ævi. Um svipað leyti og þessar svörtu sögur urðu til fékk Franquin tauga­á­fall og von­leysið og myrkrið, jafn­vel grimmdin verða mun meira áber­andi en áður þekkt­ist í hans verkum.

Þegar Viggó verður til á sjötta ára­tugnum er mikið umrót í hinum vest­ræna heimi. Hið mikla tóma­rúm eftir seinni heims­styrj­öld­ina kall­aði á gagn­gerar breyt­ingar. Krafa um mannúð, bætt sam­fé­lag, frið og gleði var allt umlykj­andi á sama tíma og kalt stríð og víg­bún­að­ar­kapp­hlaup stór­veld­anna var í fullum gangi. Verk Franquin end­ur­spegla þetta ástand. Viggó end­ur­speglar líka fram­göngu umhverf­is­bar­átt­unnar og vist­fræð­innar sem braust fram í byrjun átt­unda ára­tug­ar­ins. Franquin var meira að segja til­bú­inn að selja Viggó í aug­lýs­ingar ef það þjón­aði þeim til­gangi að vernda umhverfið, m.a. að aug­lýsa raf­hlöður sem þá þótti umhverf­is­vænn orku­gjafi.

Viggó viðutan sver sig í ætt við heim­speki­stefnu sem gegn­um­sýrði ungt, hugs­andi fólk á sjö­unda ára­tugnum; til­vist­ar­stefn­una eða existens­í­al­ismann. Sem gengur út á að ljá mann­inum reisn, gera hann lif­andi og skap­andi en ekki að hlut. Þessi rót­tæka heim­speki­kenn­ing gefur skít í alla rök­fræði­lega raun­hyggju og hefur lít­inn áhuga á aðferðum raun­vís­ind­anna. Til­vist­ar­stefnan er mann­hyggja, fjallar fyrst og fremst um mann­inn og til­gang hans í þessu lífi. Og það er svo sem eng­inn til­gangur; upp­haf­lega er mað­ur­inn ekk­ert – hann verður ekki fyrr en síðar og hann verður að því sem hann gerir úr sér. Við eigum ekki að beygja okkur undir eitt­hvað sem heitir örlög, heldur vera okkar eigin gæfu smiðir. Maðurinn er ekk­ert annað en það sem hann gerir – heild athafna sinna – existens­í­al­ism­inn er að reyna að kenna okkur að lifa. Það er eng­inn Guð, engin örlög, þú getur gert allt, allt er leyfi­legt, hún boðar frelsi, frið og rétt­læti. Það er ein­hver óþekkt í til­vist­ar­stefn­unni sem kveikti í upp­reisn­ar­gjörnu fólki á þessum tíma.

Þessar kenni­setn­ingar ríma vel við það sem Viggó viðutan stendur fyrir. Hann er existens­í­alisti; hann gerir það sem hann vill, hann ljær lífi sínu inni­hald; skapar sín eigin örlög. Í raun er hægt að útskýra þessa heim­speki­stefnu 20. ald­ar­innar og lífs­stíl Viggós viðut­ans í eina setn­ingu: lífið er stutt – njóttu þess!

Vinir og félagar

Svo eru það auka­per­són­urnar; já, auka­per­són­urnar. Þær eru ekki síst mik­il­vægar í góðum mynda­sögum. Og þannig er það í sög­unum um Viggó viðutan. Þar er kærastan Jóga, rauð­hærð sam­starfs­stúlka á skrif­stof­unni sem elskar Viggó út af líf­inu, umber tón­list­ina hans og öll hans upp­á­tæki. Hún er sú sem hlær og dýrkar þennan gaur, sem sömu­leiðis er stöðugt með róm­an­tíska til­burði, til þess að gleðja ást­ina sína. Helsti vinur Viggós er síðan Júlli í Skarnabæ sem er eins konar hlið­ar­út­gáfa af Viggó; þeir eru eins, nán­ast að öllu leyti og vinnu­staður Júlla er skammt frá vinnu­stað Viggós. Þeir eru stöðugt í sam­skiptum og bralla margt saman þótt, Júlli ávarpi Viggó ávalt form­lega með eft­ir­nafn­inu, Lagaffe. Félagi þeirra Berti er stundum þung­lyndur og kvíða­fullur og end­ur­speglar því á vissan hátt höf­und­inn sjálfan. Þeir Júlli og Viggó gera ítrek­aðar til­raunir til þess að gleðja vin sinn í verstu þung­lyndisköst­unum og saman reka þeir litla háværa og furðu­lega hljóm­sveit með sér­kenni­legri hljóð­færa­skipan; hljóm­sveit sem fáir umbera nema þá helst hún Jóka.

Umgjörð sög­unnar um Viggó er skrif­stofan. Einhver leið­in­leg­asti staður hvers­dags­lífs­ins; sam­starfs­menn Viggós og yfir­menn eru stress­aðir, fúlir og leið­in­legir – hreinar and­stæður hans. Þar ger­ast hans helstu ævin­týri sem ganga út á það brjóta upp gráan hvers­dags­leik­ann. Þetta er teikni­mynda­stofa sem gerir sög­urnar um sjálfan Sval. Þarna mæt­ast því margir heimar. Skáld­skap­ur­inn, höf­und­ur­inn, skáld­skap­ur­inn í skáld­skapnum – allt rennur þetta saman í einn póst­módernískan heim. Eig­and­inn og útgef­and­inn, Depuis, treður sér meira að segja inn í sög­urnar; oft er minnst á hann, en hann sést samt aldrei.

Og þarna er Valur; sem í sögum Viggós er alveg óhemju pirr­aður yfir­maður og afar tauga­veikl­aður. Við sjáum Val stundum bryðja geð­lyf í verstu köstum sínum og þarna er því kannski sjálfur höf­und­ur­inn að lauma sjálfum sér inn? Hver veit?

Síðan bæt­ist við Eyjólfur. Þeir eru full­trúar hins venju­lega og vana­fasta, dansa dans­inn við stimp­il­klukk­una, sjá til þess að allt gangi sinn gang. Þeir eru yfir­menn sem bera ábyrgð á vinnu­staðnum og tromp­ast með reglu­legum hætti yfir upp­á­tækjum Viggós – en hið furðu­lega er – að Viggó, þrátt fyrir allt er aldrei rek­inn. Og stundum kemur fram alveg ótrú­leg vænt­um­þykja milli þess­ara manna sem þó virð­ast stöðugt vera í stríði. Sem er ein af ráð­gátum bókanna. Hvað er það við Viggó sem heldur honum á vinnu­staðnum? Starfs­kraftur sem senni­lega veldur millj­óna­tjóni, er stöðugt að eyði­leggja mik­il­væga við­skipta­samn­inga, þegar full­trúi pen­inga­valds­ins, Herra Seðlan mætir á svæðið til þess að semja um kaup og kjör, samn­ingar sem aldrei nást vegna upp­á­tækja Viggós. Þetta er eins og rauður þráður í gegnum flestar sög­urnar: Herra Seðlan er á leið­inni, senni­lega til þess að kaupa fyr­ir­tækið og að öllum lík­indum breyta því í ein­hvern, arð­skap­andi, leið­inda hryll­ing – en ávallt tekst Viggó að koma í veg fyrir slíkt. Viggó er kannski þrátt fyrir allt mik­il­vægur starfs­kraftur? Mik­il­vægur félagi?

Hann er nefni­lega mað­ur­inn sem fær snjallar og mik­il­vægar hug­myndir, hann er ef til vill aflið sem knýr þennan skap­andi vinnu­stað áfram?

Þegar Viggó eyði­leggur við­skipta­samn­inga Herra Seðlans þá er hann kannski að reyna að standa vörð um eitt­hvað; ef til vill frelsið sjálft? Passa að fyr­ir­tækið verði ekki selt inn í eitt­hvert völ­und­ar­hús veð­lána- og verð­bréfa­brasks, þar sem það að lokum hverfur og eyð­ist í ein­hverjum furðu­legum fléttu­samn­ingum og hag­ræð­ingum. Kannski er þetta stríðið við kap­ít­al­ismann, mark­aðs­hyggj­una?

Herra Seðlan, þessi kaupa­héð­inn, er skúrkur sög­unnar. Sömu­leiðis lög­reglu­þjónn­inn sem stöðugt gerir Viggó lífið leitt með sekt­ar­miðum og hand­tökum. Þetta eru full­trúar valds­ins sem höf­undur reynir stöðugt að hæð­ast að – en Viggó vinnur samt aldrei neinn fulln­að­ar­sigur í þess­ari bar­áttu og stundum verður hann meira að segja að lúta í lægra haldi.

Viggó snýr aftur

Bækurnar um Viggó eru 19 tals­ins, tólf bækur komu út á íslensku – og þær verða ekki fleiri. Fyrsta skrítlan leit dags­ins ljós 1957 og sög­unum, mynd­unum og öllu var safnað reglu­lega saman í bókum sem komu út með jöfnu milli­bili allt til árs­ins 1999, þegar síð­asta bókin kom út, tveimur árum eftir and­lát höf­und­ar­ins.

En nú getur ný kyn­slóð upp­götvað Viggó. Með nýjum barna­bókum um Viggó hinn unga, á að kynna hann fyrir nýjum les­endum. Þær eru í anda gömlu bókanna og þar snúa aftur gam­al­kunnar per­sónur – allar þó á barns­aldri. Þótt Viggó sé alltaf barn og barn síns tíma og óskil­getið afkvæmi sjö­unda ára­tug­ar­ins; 68-kyn­slóð­ar­innar, upp­reisnar æsk­unnar, tungl­ferð­ar­innar, umhverf­is­bar­átt­unnar, rokks­ins – þá lifir hann áfram góðu lífi. Jafnvel þrátt fyrir að aldrei hafi verið gerðar um hann kvik­myndir eða nein Hollywoodævintýri. Hann er varla þekktur í hinum eng­il­sax­neska heimi og lítið þýddur á ensku. En ann­ars staðar í Evrópu, sér í lagi í Belgíu og Frakk­landi er Viggó sívin­sæll. Á næsta ári er vænt­an­leg ný frönsk kvik­mynd um Viggó og félaga hans.

Hann er því enn fullur af lífi þó sex­tugur sé. Kannski lifir Viggó vegna þess að undir niðri blundar ein­hver upp­reisn í hverjum manni; það er nefni­lega ein­hver flipp­ari í okkur öllum og stundum langar okkur óstjórn­lega að brjóta upp hvers­dags­lífið og hið vana­fasta; hlæja, brosa, leika okkur og prófa eitt­hvað nýtt – og Viggó viðutan er hold­gerv­ingur þess. Hann er hinn for­vitni ung­lingur í okkur öllum sem við eigum að rækta hvern dag.

Viggó viðutan boðar bjart­sýni, frið, mann­hyggju, og umfram allt að berj­ast fyrir frels­inu, að vera þú sjálfur, og umfram allt – að brosa og vera glaður. Allar kenni­setn­ingar, vís­indi, öll póli­tík og bar­átta er hjóm eitt miðað við sanna ham­ingju, fal­legt og inni­legt bros og hraust­legan hlátur –húmor­inn, sem er senni­lega besta og auð­veldasta leiðin til þess að gera heim­inn betri og fal­legri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár