Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn hnífjöfn í kosningaspánni

Stuðn­ingur við Bjarta fram­tíð er nánas horf­inn og stærstu flokk­arnir í kosn­inga­spánni eru með jafn mikið fylgi. Nú er vika til kosn­inga.

Þróun stuðnings við ríkisstjórnarflokkana þrjá hefur verið misjöfn undanfarinn mánuð eða svo .
Þróun stuðn­ings við rík­is­stjórn­ar­flokk­ana þrjá hefur verið mis­jöfn und­an­far­inn mánuð eða svo . Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri hreyf­ingin – grænt fram­boð eru bæði með 22,8 pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spánni sem gerð var í dag 21. októ­ber, þegar aðeins ein vika er til kosn­inga.

Vinstri græn hafa verið stærsti flokk­ur­inn í kosn­inga­spánni alveg síðan rík­is­stjórnin sprakk fyrir rúmum mán­uði síðan og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur verið næst stærstur.

Ástæða þess að flokk­arnir eru jafnir nú skýrist aðal­lega af síminnk­andi stuðn­ingi við Vinstri græna á und­an­förnum dögum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki haft meiri stuðn­ing síðan 4. októ­ber þegar fylgið var 23,2 pró­sent.

[chart]

Ef þetta yrðu úrslit Alþing­is­kosn­ing­anna eftir viku yrði það versta kosn­ing Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðan flokk­ur­inn var stofn­aður 1929. Flokk­ur­inn hlaut 29 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra. Versta útkoma flokks­ins til þessa var í kosn­ing­unum vorið 2009 þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 23,7 pró­sent atkvæða.

[links]

Björt framtíð horfin

Önnur tíð­indi í nýj­ustu kosn­inga­spánni eru að Björt fram­tíð hefur nán­ast horfið af svið­inu og er nú með 1,5 pró­sent stuðn­ing. Viðmiðið í kosn­inga­spánni er að reikna aðeins spá fyrir þau fram­boð sem fá meira en tvö pró­sent, en ákveðið var að hafa Bjarta fram­tíð með til þess að sýna fylg­is­hrunið.

Björt fram­tíð starf­aði með Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn á þessu kjör­tíma­bili. Sú rík­is­stjórn hafði aðeins eins manns meiri­hluta. Björt fram­tíð ákvað að segja sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu um miðjan síð­asta mánuð vegna þess sem kallað var trún­að­ar­brestur í sam­starf­inu.

[chart]

Trún­að­ar­brest­ur­inn var að Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, upp­lýsti ekki sam­starfs­menn sína í rík­is­stjórn­inni að faðir hans hefði und­ir­ritað með­mæla­bréf fyrir upp­reist æru dæmds barn­a­níð­ings. Þær upp­lýs­ingar voru aðeins látnar þeim Óttarri Proppé, for­manni Bjartar fram­tíðar, og Benedikt Jóhann­essyni, for­manni Við­reisnar, í té þegar ljóst var að fjöl­miðlar hefðu kom­ist á snoðir um málið.

Bæði Björt fram­tíð og Viðreisn guldu fyrir sam­starfið í rík­is­stjórn­inni með Sjálf­stæð­is­flokknum og stjórn­ar­slitin í skoð­ana­könn­unum framan af. Innan Við­reisnar var ákveðið að láta Benedikt af sem for­mann og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir tók við þeim skyldum í síð­ustu viku. Síðan þá hefur fylgi Við­reisnar vaxið. Viðreisn mælist nú með 5,9 pró­sent stuðn­ing.

Björt fram­tíð hefur ekki tekið eins dramat­ísk skref í kosn­inga­bar­átt­unni. Sífellt færri virð­ast þess vegna ætla að kjósa Bjarta fram­tíð í kosn­ing­unum eftir viku.

[adspot]

Um kosningaspána

Nýjasta kosn­inga­spáin var unnin að morgni laug­ar­dags­ins 21. októ­ber. Kosn­inga­spáin er hug­ar­fóstur Baldurs Héð­ins­sonar stærð­fræð­ings sem heldur úti vefnum kosn­inga­spá.is. Þær kann­anir sem liggja nýj­ustu kosn­inga­spánni til grund­vallar eru eft­ir­far­andi.

  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 16. – 19. októ­ber (vægi 35,2%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 13. – 19 októ­ber. (vægi 28,0%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 17. – 18. októ­ber (vægi 22,8%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 16. okt (vægi 14,0%)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár