Búist við að verðbólgan snúi aftur í haust

Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands býst við að verð­bólgan lækki á næstu mán­uðum, en hækki svo aftur þegar fram í sækir. Hún segir einnig nýlega hækkun lág­marks­launa ekki vera ótengda efna­hags­á­stand­inu og að bank­arnir séu hags­muna­að­ilar í efna­hags­um­ræð­unni.

Samkvæmt Hagfræðistofnun HÍ gæti verðbólgan látið kræla á sér aftur í haust.
Samkvæmt Hag­fræði­stofnun HÍ gæti verð­bólgan látið kræla á sér aftur í haust. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ýmislegt styður þá til­finn­ingu að fram undan sé þensla á vinnu­mark­aði og vax­andi verð­bólga, þrátt fyrir að hægist á verð­hækk­unum á allra næstu mán­uðum. Eftir því sem fleiri ferða­menn koma til lands­ins er lík­legt að hús­næð­is­verð hækki í mið­borg Reykja­víkur, sem mun hafa jákvæð áhrif á verð­bólg­una í haust. Þetta kemur fram í nýupp­færðri hag­spá Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, þar sem spáð er um verð­lags­þróun á næstu miss­erum.

Ýmislegt bendi til aukinnar verðbólgu

Samkvæmt spánni ætti verð­bólgan að lækka sam­hliða sterk­ari krónu í sumar þegar ferða­menn taki að streyma inn í landið. Á sama tíma sé búist við að atvinnu­leysi nálgist nátt­úru­legt stig, þ.e. í kringum fjögur pró­sent, til­tölu­lega hratt.

„Ýmislegt styður samt þá til­finn­ingu að framundan sé þensla á vinnu­mark­aði og vax­andi verð­bólga,“ segir í spánni. „Vextir seðla­banka hafa sjaldan verið lægri og mik­ill halli er á rík­is­sjóði. Eigna­verð hefur hækkað meira en annað verð­lag að und­an­förnu, en hækkun þess er oft fyr­ir­boði um að almenn verð­bólga fari hækk­andi.“

Launahækkanir ekki úr takti við efnahagsástandið

Stofn­unin segir einnig það ekki vera rétt sem stundum megi skilja á orðum manna um efna­hags­mál, ekki síst stjórn­valda, að kaup­kröfur verka­lýðs­fé­laga teng­ist ekki efna­hags­á­stand­inu.

„Hækkun lág­marks­launa að und­an­förnu end­ur­speglar þannig eft­ir­spurn eftir ófag­lærðu vinnu­afli um það leyti sem síð­ustu kjara­samn­ingar voru gerðir,“ stendur í spánni.

Bankarnir sjálfir hagsmunaaðilar

Hag­fræði­stofnun áréttar einnig að íslensku bank­arnir, sem gefa út reglu­legar hag­fræði­grein­ingar og þjóð­hags­spár, hafi beinna hags­muna að gæta í efna­hags­um­ræð­unni. Þeirra hagur sé að seðla­banka­vextir séu sem lægstir, þar sem lágir vextir draga úr hættu á van­skilum sem geta komið áhættu­sæknum lán­veit­endum í vanda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár