Tíu hugmyndir valdar í lokakeppni Gulleggsins 2016

Gul­leggið, stærsta frum­kvöðla­keppni á Íslandi, fer fram í níunda sinn. 100 manna rýni­hópur valdi 10 hug­myndir úr 200 umsóknum.

Úr vinnusmiðju fyrir Gulleggið. Alls bárust um 200 hugmyndir í Gulleggið í ár.
Úr vinnu­smiðju fyrir Gul­leggið. Alls bár­ust um 200 hug­myndir í Gul­leggið í ár. Mynd: Icelandic Startups

Tíu við­skipta­hug­myndir hafa verið valdar í úrslita­keppni Gul­leggs­ins í ár. 100 manna rýni­hópur skipuð konum til jafns við karla valdi úr um 200 umsóknum. Tíu stiga­hæstu hug­mynd­irnar taka þátt í loka­keppn­inni. Þar kennir ýmissa grasa, allt frá þýð­ing­ar­lausnum, netsál­fræði­þjón­ustu til líf­rænna húð­vara og ferða­þjón­ustu. Tilkynnt verður um úrslit laug­ar­dag­inn 12. mars á loka­hófi í Háskól­anum í Reykja­vík.

Almenn­ingi gefst tæki­færi á að velja sitt upp­á­halds verk­efni á vef Kjarnans í aðdrag­anda loka­hófs­ins.

Í keppn­ina bár­ust um 200 hug­myndir og við­skipta­á­ætl­anir sem hafa sótt vinnu­smiðjur und­an­farna mán­uði þar sem teymin hafa hlotið leið­sögn og fræðslu til að móta hug­mynd­irnar svo þær stand­ist raun­hæfar og vand­aðar áætl­anir. Keppnin er haldin á vegum Icelandic Startups í sam­starfi við sam­starfs­há­skól­ana Háskól­ann í Reykja­vík, Háskóla Íslands og Lista­há­skóla Íslands.

Gul­leggið er stærsta frum­kvöðla­keppni lands­ins og er haldin ár hvert. Aldrei hefur hlut­fall kvenna verið jafn hátt meðal umsókna í keppn­ina. 40 pró­sent hug­mynd­anna sem bár­ust Gul­legg­inu í ár voru skip­aðar kven­kyns leið­toga. Að und­an­förnu hefur verið gert nokkuð átak til að hvetja konur til þátt­töku í nýsköpun, meðal ann­ars með verk­efni Vinnu­mála­stofn­unar og Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Í hópi tíu stiga­hæstu hug­mynd­anna eru 35 pró­sent konur. Aðeins eitt teymi er ein­göngu skipað konum en fjögur eru ein­göngu skipuð körlum. Helm­ingur tey­manna eru hins vegar skipuð blöndu af konum og körlum.

Sé litið til háskól­anna þá eru flestir þátt­tak­endur í loka­keppni Gul­leggs­ins í ár í námi í Háskól­anum í Reykja­vík eða tæpur helm­ingur. Fimmt­ungur er í námi í Háskóla Íslands en tæp­lega 30 pró­sent þátt­tak­enda eru ekki tengdir háskóla.

Þetta er í níunda sinn sem Gul­leggið er haldið en sam­tals hafa um 2.200 hug­myndir borist í keppn­ina. Þar á meðal eru hug­myndir sem orðið hafa að fyr­ir­tækjum sem njóta vel­gengni. Má þar nefna Meniga, Radiant Games og Pink Iceland.

Hugmyndirnar 10 sem keppa til úrslita í Gullegginu 2016

  • Arkvit - Þróar þýð­ing­ar­ar­lausn sem not­ast við nýja algóritma sem ná 50% betri árangri en aðrar þýð­ing­ar­vélar
  • Gagnleg Hugsun - Gagn­leg­hugsun.is býður upp á sál­fræði­þjón­ustu á net­inu
  • Hring­borð - Hring­borð er app sem hvetur fólk til að hjálp­ast að í háskóla­námi
  • Icelandic Lava Show - Lifandi rauð­gló­andi hraun­sýn­ing
  • Lífvera – Meniga heils­unnar 
  • Pay Analytics - Hug­bún­aður sem lág­markar kostnað við að útrýma kyn­bundnum launa­mun
  • Platome líf­tækni –Aðferð sem styður við fram­farir í stofn­frumu­rann­sóknum og lækn­is­fræði með blóð­flögum
  • Shortcut – Áfanga­staður þinn - Einum smelli nær
  • Tipster – Fyrir þá sem vilja hagn­ast á íþrótta­veð­málum
  • Zeto – Lífrænar húð­vörur úr þara­þykkni
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

gulleggið

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár