Meniga lokar 900 milljóna króna fjármögnun

Sænskur sjóður bæt­ist í hlut­hafa­hóp­inn og full­trúi hans sest í stjórn Meniga. Núver­andi fjár­festar taka líka þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni.

Benedikt Orri Einarsson, fjármálastjóri Meniga.
Benedikt Orri Ein­ars­son, fjár­mála­stjóri Meniga.

Íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Meniga hefur lokið við hluta­fjár­aukn­ingu upp á 7,5 millj­ónir evra, sem jafn­gildir 900 millj­ónum króna. Það er sænski fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Industri­fonden og núver­andi fjár­festar sem lögðu fram féð. Þeir eru Frumtak, Kjöl­festa og Velocity Capital frá Hollandi. Samhliða mun Sofia Ericsson frá Industri­fonden taka sæti í stjórn Meniga.

Benedikt Orri Ein­ars­son, fjár­mála­stjóri Meniga segir að til að byggja upp fyr­ir­tæki eins og Meniga, með háleit mark­mið um vöxt á erlendum mörk­uðum, sé mik­il­vægt að geta fengið alþjóð­lega fjár­festa að borð­inu með sér­hæfða þekk­ingu. „Það er því ánægju­legt að bjóða Industri­fonden vel­kom­inn í sterkan hóp fjár­festa til áfram­hald­andi upp­bygg­ingar og vaxtar.“

Í til­kynn­ingu segir að fjár­mögn­un­inni sé ætlað að efla enn frekar sókn fyr­ir­tæk­is­ins á erlenda mark­aði en auk áherslu á heim­il­is­fjár­mála­hug­búnað hafi Meniga meðal ann­ars þróað neyslu­tengt til­boðs­kerfi.„Til­boðs­kerf­inu er ætlað að hjálpa ein­stak­lingum og fjöl­skyldum að spara með sér­sniðnum til­boðum ásamt því að gera fyr­ir­tækjum kleift að nýta betur mark­aðsfé sitt með því að ná til réttra við­skipta­vina með beinum afsláttum. Íslenskum not­endum Meniga stendur til boða að nýta sér slík til­boð, sem ganga undir heit­inu „Kjördæmi“ hér­lendis, og aðrar lausnir Meniga gjald­frjálst á www.meniga.is eða í Meniga app­inu fyrir iPhone og Android síma.“

Meniga þróar heim­il­is­fjár­mála­lausnir fyrir banka og fjár­mála­stofn­anir sem not­aðar eru í næstu kyn­slóð net­banka til að stór­bæta þjón­ustu við við­skipta­vini. Meðal við­skipta­vina Meniga eru margir stærstu banka heims en þeirra á meðal eru Sant­ander, Commerzbank, ING Direct og Intesa Sanpaolo. Þannig eru hug­bún­að­ar­lausnir Meniga not­aðar í net­bönkum í um 20 löndum með rúm­lega 40 millj­ónir virka not­endur.

Sofia Ericsson segir að Industri­fonden sé mjög spennt fyrir því fyrir þeim tæki­færum sem búa í gagna­drif­inni staf­rænni banka­starf­semi og „stolt af því að styðja við bakið á hinu frá­bæra teymi hjá Meniga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár