Starbucks hyggst opna tólf þúsund ný kaffihús á fjórum árum

Risinn Starbucks hefur ekki enn opnað kaffi­hús á Íslandi en það er ekki víst að það þurfi að bíða lengi eftir því. Á næstu fjórum árum verða að opnuð 8 ný Starbucks-kaffi­hús á hverjum degi, gangi vaxt­ar­á­form fyr­ir­tæk­is­ins eftir.

Árið 1971 var Starbucks fyr­ir­tækið stofnað í Seattle og var fyrsti kaffi­boll­inn undir þessu þekkta vöru­merki seldur fyrsta við­skipta­vin­inum sama ár. Saga fyr­ir­tæk­is­ins er ævin­týra­leg og hafa síð­ustu tíu ár ekki síst markað afar jákvæðan kafla í 45 ára sögu fyr­ir­tæk­is­ins. Stofn­endur þess voru Gordon Bowker, Jerry Baldwin og Zev Siegl.

Þeir vildu í upp­hafi búa til vett­vang þar sem fólk kæmi saman og hefði úr mörgum teg­undum af kaffi að velja. Þetta hefur verið leið­ar­stef fyr­ir­tæk­is­ins alla tíð, þó kaffi­húsin séu mörg og mis­jöfn eins og stað­setn­ing­arnar.

Opna átta ný kaffihús á dag

Samkvæmt síð­ustu birtu áætlun fyr­ir­tæk­is­ins, frá því í gær, stefnir Starbucks nú að því að fjölga kaffi­húsum um tólf þús­und á næstu fjórum árum. Það nemur um átta kaffi­húsum á hverjum degi næstu fjögur árin.

Þá hefur sala fyr­ir­tæk­is­ins á ýmsum vörum í búðum stór­auk­ist og gera áætl­anir ráð fyrir í það minnsta 5 pró­sent árlegum vexti næstu árin.

Mark­aðsvirði Starbucks nemur í dag um 82 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 9.120 millj­örðum króna.

Í fyrra var Starbucks með 25 þús­und kaffi­hús á heims­vísu en ef allt gengur upp þá verða þau 37 þús­und árið 2021 og 50 þús­und árið 2025. Fyrir ein­ungis fimm árum voru kaffi­húsin 15 þús­und, svo þeim hefur fjölgað hratt að und­an­förnu.

Sú veit­inga­keðja í heim­inum sem er með flestar sjálf­stæðar stað­setn­ingar á heims­vísu er Subway, með tæp­lega 45 þús­und stað­setn­ingar. Þar á eftir kemur skyndi­bita­keðjan McDonalds með 36 þús­und stað­setn­ingar.

Vöxtur í Asíu og í úthverfum borga

Starbucks hefur á und­an­förnum árum vaxið hratt og hefur verið ein­blínt á góðar stað­setn­ingar í borgum. Á síð­ustu tveimur árum hefur fyr­ir­tækið opnað sífellt fleiri kaffi­hús í úthverfum ýmissa stórra borga, einkum í Banda­ríkj­unum, og hefur það gef­ist vel. Það glæðir hverfin lífi og mót­tök­urnar hafa verið góðar.

Howard Schultz hætti sem for­stjóri undir lok síð­asta árs og tók Kevin Johnson, sem var hans nán­asti sam­starfs­maður í æðstu stjórn, við for­stjóra­stöð­unni. Formlega munu skiptin þó ekki ganga í gegn fyrr en í apríl á þessu ári. Schultz er áfram stjórn­ar­for­maður og því helsti leið­togi fyr­ir­tæk­is­ins.

Barmenning á kvöldin

Fyrir rúmum tveimur árum hóf Starbucks að bjóða við­skipta­vinum sínum upp á áfenga drykki á völdum stöðum, en yfir­lýst stefna fyr­ir­tæk­is­ins er sú að auka við sölu seinni part dags og á kvöldin, meðal ann­ars með sölu á bjór og vínum einnig. Fyr­ir­tækið hefur ekki farið hratt af stað í þess­ari þróun, og er það með vilja gert. Schultz hefur sjálfur sagt að Starbucks vilji halda í við­skipta­vin­ina sem kaupa fyrst og fremst kaffi og léttan mat, en rök­rétt sé fyrir fyr­ir­tækið að bjóða betri þjón­ustu á kvöldin og nýta þannig verð­mæta stað­setn­ingu margra kaffi­húsa fyr­ir­tæk­is­ins enn betur.

Gjöfult ár framundan?

Mark Kalinowski, grein­andi hjá Nomura, segir í sam­tali við Bloomberg að Starbucks verði sú veit­inga­keðja sem muni lík­lega ná bestum árangri á árinu 2017. Mörg önnur vöru­merki eigi í vök að verj­ast á meðan Starbucks hefur haldið sjó og náð að vaxa enn hraðar en bæði hlut­hafar og grein­endur reikn­uðu með. Lyk­ill­inn að vel­gengni sé áherslan á áreið­an­leika og góða þjón­ustu. Um 190 þús­und starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins á heims­vísu sjái til þess að kaffið skili sér fljótt og vel, þrátt fyrir oft á tíðum langar biðraðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

veitingar

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár