Tvær þjóðir í einu landi – Misskipting auðs og gæða á Íslandi

Kjarninn hefur verið til­nefndur til rann­sókn­ar­blaða­manna­verð­launa BÍ fyrir umfjöllun sína um skipt­ingu auðs og mis­skipt­ingu gæða á Íslandi. Hér að neðan fer sam­an­tekt á helstu atriðum þeirrar umfjöll­unar sem varpar ljósi á að tvær þjóðir búa á Íslandi.

Launa­munur á Íslandi er afar lít­ill í alþjóð­legum sam­an­burði. Í póli­tískri orð­ræðu er því haldið fram að hér á landi ríki meiri jöfn­uður en í flestum þeim sam­fé­lögum sem við miðum okkur við. Helsta ástæðan fyrir litlum launa­mun hér­lendis er þó fyrst og síð­ast sú að laun eru almennt lág á Íslandi og menntun er t.d. ekki metin að neinu ráði til launa.

En launa­munur og hlut­falls­leg aukn­ing launa hvers hóps fyrir er ekki eini mæli­kvarð­inn sem hægt er að styðj­ast við til að ákvarða hvort kök­unni sé nægi­lega skipt á milli þegna lands­ins. Ýmsir aðrir mæli­kvarðar, sem snúa sér­stak­lega að eignum hvers og eins, eru þar líka afar mik­il­vægir. Á Íslandi er lít­ill hluti þjóð­ar­innar sem á mikið af þeim og hefur miklar tekjur af. Svo er stór hluti sem vinnur hjá litla hlut­an­um.

Kjarninn hefur lagst í mikla rann­sókn­ar­vinnu og grein­ingar til að sýna les­endum sínum fram á þessa skipt­ingu og þróun hennar. Í frétta­skýr­ingu sem birt­ist 4. októ­ber 2016 kom fram að eigið fé Íslend­inga hefði tvö­fald­ast á sex árum, eða auk­ist um 1.384 millj­arða króna.

Þessi nýi auður skipt­ist ekki jafnt á milli hópa. Af hreinni eign sem orðið hefur til frá árinu 2010 hafði rík­asta tíu pró­sent lands­manna, alls 20.251 fjöl­skyldur, tekið til sín fjórar af hverjum tíu nýjum krónum sem orðið höfðu til í íslensku sam­fé­lagi. Þessi hópur átti 1.880 millj­arða króna í lok árs 2015, eða 64 pró­sent af eignum lands­manna.

Á sama tíma skuld­aði fátæk­ari helm­ingur þjóð­ar­inn­ar, rúm­lega 100 þús­und vinn­andi manns, 211 millj­arða króna umfram eignir sín­ar. Það þýðir að mun­ur­inn á eig­in­fjár­stöðu fátæk­asta helm­ings þjóð­ar­innar og rík­ustu tíu pró­senta hennar var 2.091 millj­arðar króna.

Eignir hinna ríku vanmetnar

Þegar þessi staða er falin í hlut­falls­tölum kemur hún ekki jafn skýrt fram. Þess utan er vert að benda á að opin­berar tölur van­meta hversu mikið hinir ríku á Íslandi efn­ast ár frá ári. Ástæðan er sú að þær mæla að fullu leyti t.d. hækkun fast­eigna­verðs (sem útskýrir 82 pró­sent af allri eig­in­fjár­aukn­ingu Íslend­inga á síð­ustu sex árum og nán­ast alla eigna­aukn­ingu fátæk­ari hluta lands­manna) en færir eignir í verð­bréfum inn á nafn­virði. Og rík­ustu Íslend­ing­arnir eiga næstum öll verð­bréf á Íslandi.

Alls nam verð­bréfa­eign þjóð­ar­innar 422,3 millj­örðum króna í lok árs 2015 og hafði þá auk­ist um 38,3 millj­arða króna á einu ári. Rík­asta tíu pró­sent Íslend­inga átti 361,5 millj­arða króna í verð­bréfum í lok árs 2015 og því lá fyrir að 86 pró­sent allra verð­bréfa var í eigu þess hóps. Af þeirri 38,3 millj­arða króna virð­is­aukn­ingu verð­bréfa sem varð á árinu 2015 fóru 35,5 millj­arðar króna, eða 93 pró­sent, til rík­ustu 20 þús­und Íslend­ing­anna á vinnu­mark­aði.

7. októ­ber birti Kjarn­inn svo frétta­skýr­ingu sem byggði á nýjum tölum Rík­is­skatt­stjóra um stað­tölur skatta. Í þeim tölum var hægt að sjá út hversu mikið Íslend­inga þén­uðu í fjár­magnstekjur á árinu 2015. Það eru tekjur sem þeir höfðu af eignum sín­um: t.d. vöxtum af inn­láns­reikn­ingum eða skulda­bréfa­­eign, tekjur af útleigu hús­næð­is, arð­greiðsl­­ur, hækkun á virði hluta­bréfa eða hagn­aður af sölu fast­­eigna eða verð­bréfa.

Í töl­unum kom í ljós að tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna þén­aði sam­tals 42 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2015. Um er að ræða undir tvö þús­und fram­telj­end­ur. Þessi hópur tók til sín 44 pró­sent af öllum fjár­magnstekjum sem urðu til hér­lendis á árinu 2015. Það þýðir að 99 pró­sent þjóð­ar­innar skipti með sér 56 pró­sent fjár­magnstekna.

Það vantar inn erlendu eignirnar sem skotið var undan

Þá vantar inn allar erlendu eign­irnar sem þessi hópur á, og er ekki talin fram hér­lend­is. Sam­kvæmt tölum Seðla­bank­ans eiga Íslend­inga rúm­lega eitt þús­und millj­arða króna erlend­is. Þar af eru t.d. 32 millj­arðar króna á Tortóla-eyju, sem er þekkt lág­skatta­svæði. Í Pana­ma-skjöl­unum var upp­lýst að tæp­lega 600 Íslend­ingar ættu um 800 félög sem Mossack Fon­seca, lög­fræði­stofa sem sér­hæfir sig í „skatta­hag­ræði“ og í að fela eign­ir, sá um fyrir þá.

Kjarninn, í sam­starfi við Reykja­vík Media og fleiri fjöl­miðla, fjall­aði ítar­lega um þær upp­lýs­ingar sem birt­ust í skjöl­unum á síð­asta ári.

Lyk­ilfrétta­skýr­ingar sem Kjarninn vann að voru meðal ann­ars um umsvif Bakka­var­ar­bræðra – við­skipta­manna sem flutt hafa millj­arða króna frá aflands­svæðum til Íslands eftir hrun – á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og skýr­ingar um umsvif hjón­anna Ingi­bjargar Pálma­dóttur og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar í Panama. Í báðum til­fellum var rakið ítar­lega, eftir lang­vinna rann­sókn­ar­vinnu, hvernig þetta íslenska við­skipta­fólk kom sér upp stórum sjóðum í gegnum aflands­fé­lagastrúktúr settum upp af íslenskum fyr­ir­tækjum í Lúx­em­borg og hvernig það not­aði það fé til að fjár­magna umfangs­mikil umsvif sín á Íslandi eftir banka­hrunið. Þessir ein­stak­lingar voru áður í for­svari fyrir þær tvær við­skipta­blokkir sem kost­uðu íslenska líf­eyr­is­sjóði, og þar með eig­endur þeirra, mest fé í hrun­inu.

Kjarninn tók þátt í ítarlegri umfjöllun íslenskra fjölmiðla um Panamaskjölin. Jóhannes Kr. Kristjánsson er tilnefndur til Blaðamannaverðlauna fyrir ítarlegar rannsóknir á þeim skjölum og birtingu á þeim í samstarfi við aðra miðla.
Kjarninn tók þátt í ítar­legri umfjöllun íslenskra fjöl­miðla um Panama­skjölin. Jóhannes Kr. Krist­jáns­son er til­nefndur til Blaða­manna­verð­launa fyrir ítar­legar rann­sóknir á þeim skjölum og birt­ingu á þeim í sam­starfi við aðra miðla.

Samhliða opin­ber­aði Kjarninn hvernig félag Ingi­bjargar frá Panama, sem Jón Ásgeir stýrði, fékk að greiða 2,4 millj­arða króna skuld sem tengd­ist íslenskum félögum, meðal ann­ars með skulda­bréfum útgefnum af Íbúða­lána­sjóði. Heimild sem Seðla­bank­inn veitti fyrir þessum gern­ingi er ein­stök og bank­inn hefur ekki feng­ist til að svara frek­ari spurn­ingum um hann, þrátt fyrir ítrek­aðar umleit­anir.

Þann 25. apríl birti Kjarninn svo frétta­skýr­ingu þar sem í fyrsta sinn var opin­berað að fjöl­skylda Dorritar Moussaieff, eig­in­konu þáver­andi for­seta Íslands, ætti félag sem skráð væri á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og að það félag kæmi fyrir í gögnum frá Mossack Fonseca. Nokkrum dögum áður hafði Ólafur Ragnar Grímsson neitað því með öllu í við­tali við banda­rísku sjón­varps­stöð­ina CNN að hann eða fjöl­skylda hans væri tengd aflands­fé­lögum. Ólafur Ragnar hafði þá ákveðið að bjóða sig fram á ný til for­seta Íslands, en hætti við í byrjun maí.

Allt þetta þjón­aði þeim til­gangi að sýna les­endum Kjarnans fram á þann aðstöðumun og þá mis­skipt­ingu gæða og auðs sem er inn­gró­inn í íslenskt sam­fé­lag.

Ljóst er að aflands­fé­laga­eign Íslend­inga er mun víð­tæk­ari vegna þess að Mossack Fon­seca var ekki eina stofan sem þjón­u­staði Íslend­inga. Vís­bend­ingar um umfang þeirrar eignar komu fram í skýrslu um aflandseignir Íslend­inga og skattaund­an­skot vegna þeirra, sem var birt snemma í jan­úar eftir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir Kjarnans um birt­ingu á skýrsl­unni. Hún hafði þá verið til­búin í rúma þrjá mán­uði, eða frá því fyrir kosn­ing­arnar 29. októ­ber 2016. 

Í skýrsl­unni kom fram að aflands­fé­laga­væð­ingin hafi haft tugi millj­arða króna af íslenskum almenn­ingi í vand­goldnum skatt­greiðslum og búið til gríð­ar­legan aðstöðumun þeirra sem hafa, bæði lög­lega og ólög­lega, getað falið fé í erlendum skatta­skjólum þegar illa árar í íslensku efna­hags­lífi en stýrt fé aftur heim til að kaupa eignir á bruna­út­sölu í nið­ur­sveiflum. Þessi aðstöðu­munur hefur haft marg­vís­leg áhrif á íslenskt sam­fé­lag. Vald og eignir hafa safn­ast saman á hendur þeirra sem hafa getað komið aftur til baka með oft á tíðum illa fengið fé.

Tvær þjóðir í einu landi

Í frétta­skýr­ingum Kjarnans um mis­skipt­ingu auðs og gæða var sýnt fram á það svart á hvítu að það er stað­reynd að lít­ill hópur eigna­fólks hagn­ast á sam­fé­lags­gerð okkar langt umfram það sem þorri þjóð­ar­innar ger­ir. Og þar var sýnt fram á að hún væri að aukast. 

Árið 1997 átti rík­asta tíund lands­manna 56,3 pró­sent af öllu eigin fé í land­inu. Tíu árum síðar hafði eigið fé Íslend­inga fjór­fald­ast, enda banka- og eigna­bóla þá þanin til hins ítrasta, og rík­ustu tæp­lega 20 þús­und Íslend­ing­arnir áttu 2,5 sinnum meira eigið fé en öll þjóðin hafði átt sam­an­lagt tíu árum áður. Þá nam hlut­deild þess­arar rík­ustu tíundar í heildar eigin fé Íslend­inga 62,8 pró­sent­um.

Eftir banka­hrunið tap­aði stór hluti lands­manna miklu af eignum sínum. Það átti sér­stak­lega við um þá sem áttu ekki mikið annað en t.d. eigið fé í hús­næði. Þótt ríkir Íslend­ingar hafi einnig tapað miklu áttu þeir enn mikið eigið fé í lok árs 2009. Alls lá 77,3 pró­sent alls eigin fjár hjá rík­ustu tíund lands­manna á þeim tíma. Ríkasti fimmt­ungur lands­manna átti á þeim tíma 103 pró­sent af öllu eigin fé lands­manna. Það þýðir að restin, 80 pró­sent lands­manna, var sam­an­lagt með nei­kvætt eigið fé.

Síðan hefur hlut­falls­leg eign þeirra á eigin fé lands­manna dreg­ist saman, sér­stak­lega sam­hliða mik­illi aukn­ingu á eign allra hópa í fast­eignum sínum. Alls hefur eigið fé í fast­eignum Íslend­inga auk­ist úr 1.146 millj­örðum króna í 2.285 millj­arða króna frá lokum árs 2010 og fram að síð­ustu ára­mótum. Af þeirri hreinu eign sem orðið hefur til frá 2010 hafa 527,4 millj­arðar króna runnið til þeirra tíu pró­sent Íslend­inga, alls 20.251 fjöl­skyldna, sem eiga mest.

Ofan á þetta hefur Kjarninn greint Leið­rétt­ing­una, 72,2 millj­arða króna milli­færslu af fé úr rík­is­sjóði til hluta þjóð­ar­innar, mest allra miðla. Í þeim grein­ingum hefur meðal ann­ars komið fram að tekju­hæstu tíu pró­sent lands­manna hafi fengið um 30 pró­sent þeirrar upp­hæðar í sinn hlut og að eigna­meiri helm­ingur þjóð­ar­innar hafi fengið 52 millj­arða króna út úr Leið­rétt­ing­unni. Það var 72 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar. Á meðal þeirra sem fengu háar fjár­hæðir var stór­eigna­fólk.

Gríðarlega mikilvægir almannahagsmunir

Fram­setn­ing ofan­greindra stað­reynda, sam­hengi þeirra og grein­ing á þeim er mik­il­vægur grund­völlur fyrir vit­ræna umræðu um kjarna póli­tískra átaka, skipt­ingu þeirra gæða sem verða til í íslensku sam­fé­lagi.

Umfjöllun Kjarnans, rann­sókn­ar­blaða­mennska hans, eft­ir­fylgni og aðhald hefur sýnt íslenskum almenn­ingi umfangið, sam­hengið, áhrifin og afleið­ing­arnar. Hún átti þátt í að stuðla að mestu póli­tísku svipt­ingum sem átt hafa sér stað í Íslands­sög­unni. Hún hafði bein áhrif á for­seta­kosn­ingar og hún leiddi til þess að hul­iðs­hjálmi var lyft. Nú er mis­skipt­ing auðs og gæða, aflands­fé­lög og skattaund­an­skot, og umræða um mis­jafnt aðgengi að tæki­færum, upp­lýs­ingum og fjár­magni ann­arra á meðal þeirra mála sem eru efst á baugi hjá eft­ir­lits­stofn­unum og á hinu póli­tíska sviði. Það er meðal ann­ars afleið­ing af margra ára umfjöllun starfs­manna Kjarnans um þessa sam­fé­lags­legu mein­semd og kröfur blaða­manna hans um upp­lýs­ingar frá stjórn­sýsl­unni um umfang vand­ans og aðgerðir til að berj­ast gegn honum.

Um er að ræða gríð­ar­lega mik­il­væga almanna­hags­muni.

Skýr­ingin hefur verið upp­færð með þeim hætti að tíund­irnar end­ur­spegli ekki ein­stak­linga heldur fjöl­skyldur (ein­stak­linga og sam­skatt­aða).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár