Ásmundur Friðriksson: Tjáningarfrelsi á Íslandi aðeins fyrir útvalda

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að þeir sem vekja athygli á hætt­unni sem steðji að nágranna­ríkjum Íslands séu „skotnir niður og ataðir auri í sam­fé­lags­um­ræð­unni“ á Íslandi.

Ásmundur gerði hryðju­verkin í Kaup­manna­höfn um helg­ina að umtals­efni á Alþingi í dag undir liðnum störf þings­ins. Hann sagði að með morð­unum hefði „gildum frelsis og laga“ verið mót­mælt. „Nú lýsa trú­bræður morð­ingj­ans yfir stuðn­ingi við hann. Í nágranna­löndum okkar er opin umræða um þá hættu sem steðjar að hinum frjálsa heimi og þjóð­fé­lögum vegna fjölg­unar á árásum ein­stak­linga og hvers konar öfga­hópa. Hér á landi á engin slík umræða sér stað og spurn­ingin hvað við ætlum lengi að skila auðu í þeirri umræðu um öryggi íbú­anna.“

Ásmundur sagði að á Íslandi hefð­ust menn öðru­vísi að. „Þeir sem vekja athygli á hætt­unni sem steðjar að nágrönnum okkar eru skotnir niður og ataðir auri í sam­fé­lags­um­ræð­unni sem aldrei kemst á það stig að rætt sé um mál­efnið.“

Hann sagði tján­ing­ar­frelsið vera fótum troðið og að það virð­ist oft á tíðum aðeins vera fyrir útvalda. Hann fagn­aði því að Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra hefði hafið umræðu um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir. „Tökum umræð­una um þá ógn sem steðjar að í nágranna­löndum okkar, en við getum ekki tekið þá áhættu að hún ber­ist ekki hingað,“ sagði Ásmundur að lokum.

Um miðjan jan­úar spurði Ásmundur að því á Facebook síðu sinni hvort bak­grunnur múslima á Íslandi hafi verið kann­aður, og hvort ein­hverjir þeirra hafi farið í þjálf­un­ar­búðir hryðju­verka­manna eða barist í löndum þar sem „óöld ríkir meðal múslima.“ Hann sagð­ist í kjöl­farið vera að vekja umræðu um þessi mál. „Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum að hafa áhyggjur af því að hér leyn­ist slíkt fólk. Ég hef ekki hug­mynd um það. Mér finnst að við eigum að taka umræð­una um það. Hvað við viljum gera og hvernig við viljum standa að þessu,“ sagði hann í við­tali við Vísi.

Hann var í kjöl­farið harð­lega gagn­rýndur bæði innan flokks og utan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár