Næst umsvifa­mestir í Panama­skjöl­unum Sigurður Bollason og Magnús Ármann eru næst umsvifa­mestir í Panama­skjöl­unum á eftir feðg­unum Björgólfi Guð­munds­syni og Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni. Rúmlega tutt­ugu skúffu­fé­lög tengj­ast þeim.

Panamaskjölin: Notaði börnin sín í skattaskjóli

Sigurður Bollason fjár­festir skuld­batt þrjú börn sín sem lög­ráða­maður þeirra í við­skiptum félaga í skatta­skjólum. Fjögurra og sex ára gömul börn eru skráðir eig­endur skúffu­fé­laga. Sigurður og við­skipta­fé­lagi hans, Magnús Ármann, eru næst umsvifa­mestir í Panama­skjöl­unum á eftir Björg­ólfs­feðgum. Arð­greiðslur frá félögum hjá Mossack Fonseca nema á sjötta millj­arð króna. Millj­arðar voru afskrif­aðir hjá þeim báðum eftir hrun en Panama­skjölin sýna miklar eignir þrátt fyrir það.

Þrjú börn fjár­fest­is­ins Sigurðar Bolla­sonar voru látin vera þátt­tak­endur í við­skiptum hans í gegnum skatta­skjól á árunum eftir banka­hrunið þegar þau voru á aldr­inum eins dags gömul til sex ára. Fjögurra og sex ára gömul börn Sigurðar voru til dæmis skráðir eig­endur skúffu­fé­lags í Panama, Berwyn Consultants Co SA., sem stund­aði lána­við­skipti við félög tengdum Sigurði eftir efna­hags­hrunið 2008. Sigurður og eig­in­kona hans, Nanna Björk Ásgríms­dóttir, voru með pró­kúru­um­boð yfir Berwyn Consultans og var Nanna Björk jafn­framt með umboð til að stýra banka­reikn­ingi félags­ins hjá úti­búi sviss­neska bank­ans Credit Suisse í Singapúr. 

Þetta kemur fram í umfjöllun Stund­ar­innar og Reykja­vík Media sem birt er í prentút­gáfu Stund­ar­innar í dag.

Börnin voru auk þess per­sónu­lega lán­veit­endur Panama­fé­lags­ins en í des­em­ber árið 2010 lán­uðu þau Berwyn Consultants meðal ann­ars tvær millj­ónir evra, rúm­lega 300 millj­ónir króna. Þremur vikum áður höfðu þau lánað sömu upp­hæð til ann­ars skúffu­fé­lags, Kaywell Equties Inc., sem þau voru sjálf skráðir eig­endur að sam­kvæmt Panama­skjöl­unum. Í skjölum um það félag  kemur fram að upp­runi fjár­magns­ins í því sé „sjóður Bollason-fjöl­skyld­unnar“ án þess að til­greint sé hvar sá sjóður er. Sigurður sjálfur lán­aði svo pen­inga til þessa félags, Kaywell Equities, og und­ir­rit­aði hann skjöl fyrir hönd félags­ins sem lög­ráða­maður barn­anna. Ólögráða börnin voru því skráð fyrir tveimur skúffu­fé­lögum og veru­legum eignum á þessum tíma, rúmum tveimur árum eftir íslenska efna­hags­hrunið, en það voru lög­ráða­menn þeirra sem skuld­bundu þau og félög þeirra í umræddum við­skiptum. 

Hinn 22. októ­ber 2010 lán­aði svo annað barn Sigurðar tvær millj­ónir evra, rúm­lega 300 millj­ónir króna, til skúffu­fé­lags­ins Chiron Group. Þetta var einum degi eftir að barnið fædd­ist. Tekið skal fram samt að tölvu­póst­ur­inn með umræddum lána­samn­ingi er sendur árið 2012 og virð­ist lána­samn­ing­ur­inn þannig vera dag­settur aft­ur­virkt. Þann 22. des­em­ber 2010 lán­aði barnið, sem þá var rúm­lega tveggja mán­aða, tvær millj­ónir evra, rúm­lega 300 millj­ónir króna, til Kaywell Equities Inc. Tæpu ári síðar lán­aði barnið skúffu­fé­lag­inu Trecon Trading Inc. tvær millj­ónir evra, nærri 330 millj­ónir króna. Tvö eldri börn Sigurðar höfðu þá lánað Trecon Trading sömu upp­hæð fyrr í þessum sama mán­uði. Þannig runnu mörg hund­ruð millj­ónir til og frá börnum Sigurðar og Nönnu Bjarkar til félaga í skatta­skjólum og út úr þeim.

„Þessi mál sýndu meðal ann­ars að menn voru með fjár­muni geymda þarna úti“

Þessar upp­lýs­ingar koma fram í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu en Sigurður og við­skipta­fé­lagi hans, Magnús Ármann, eru saman tengdir og eða skráðir fyrir rúm­lega tutt­ugu skúffu­fé­lögum í gegnum lög­manns­stof­una Mossack Fonseca í Panama. Gögnunum frá Mossack Fonseca var lekið til þýska blaðs­ins Süddeutsche Zeitung sem fékk alþjóð­legu blaða­manna­sam­tökin ICIJ í lið með sér til að vinna með gögnin. Íslenskur sam­starfs­að­ili ICIJ er fjöl­mið­ill­inn Reykja­vík Media ehf. og vinnur Stundin grein­ina í sam­vinnu við þann fjöl­miðil. 

Aðkoma þriggja barna Sigurðar og Nönnu Bjarkar er eina dæmið um það í Panama­skjöl­unum, að minnsta kosti þeim hluta sem snerta Ísland og íslenska fjár­festa, að fjár­festar noti börn sín sem aðila í við­skiptum í gegnum skúffu­fé­lög í skatta­skjólum.

Stundin og Reykja­vík Media ehf. gerðu árang­urs­lausar til­raunir til að ná tali af Sigurði Bolla­syni og Nönnu Björk Ásgríms­dóttur til að spyrja þau út í við­skipti þeirra í skatta­skjólum. Magnúsi Ármanni voru sömu­leiðis sendir tölvu­póstar með beiðnum um við­tal um gögnin frá Mossack Fonseca. 

Næst umsvifamestir í Panamaskjölunum

Ástæðan fyrir því að fjallað er um þá Sigurð og Magnús saman er sú að þeir tengj­ast svo mörgum skúffu­fé­lögum sam­eig­in­lega. Sigurður og Magnús eru langt í frá með þekkt­ari og umsvifa­mestu fjár­festum lands­ins en um þá báða hefur samt verið fjallað umtals­vert í íslenskum fjöl­miðlum á árunum fyrir og eftir íslenska efna­hags­hrunið. 

Magnús er nokkuð þekkt­ari á Íslandi en Sigurður, meðal ann­ars vegna aðkomu hans að Imon-mál­inu svo­kall­aða sem sner­ist um sölu Lands­banka Íslands á hluta­bréfum í bank­anum til félags hans, Imon, skömmu fyrir hrunið 2008. Bankinn veitti þá fimm millj­arða króna lán til kaupanna á hluta­bréf­unum. Þrír stjórn­endur Lands­bank­ans voru dæmdir í fang­elsi fyrir mark­aðs­mis­notkun í Imon-mál­inu um haustið 2015. Magnús var hins vegar ekki ákærður í mál­inu enda voru það starfs­menn bank­ans sem frömdu brot í því.

Magnús fjall­aði um aðkomu sína að mál­inu í grein­inni „217 sinnum sekur“ í Frétta­blað­inu í febr­úar 2011 eftir að sér­stakur sak­sókn­ari hafði sent honum bréf og sagt honum að rann­sókn Imon-máls­ins beind­ist ekki að honum. „Það hefði verið heppi­legra fyrir mig, svo ekki sé sterkara að orði kveðið, að sak­leysi mitt hefði verið stað­fest fyrr. En það er ekki á allt kosið. Ég get líka skilið – upp að ákveðnu marki – hvað fjöl­miðlar hafa gert sér mik­inn mat úr Imon-mál­inu. En í mörgum af þessum 217 fréttum var farið yfir strikið og ég og mitt fólk meitt að óþörfu – og að ósekju. Ég vona að því linni núna.“

Við­skipti Sigurðar Bolla­sonar og Magnúsar Ármanns í gegnum Mossack Fonseca eru það umfangs­mikil að úr hópi íslenskra fjár­festa eru ein­ungis feðgarnir Björgólfur Thor Björg­ólfs­son og Björgólfur Guð­munds­son tengdir fleiri félögum. Um er að ræða 23 félög í til­felli þeirra Sigurðar og Magnúsar og er þá auð­vitað einnig átt við félög eins og Berwick Consultants þar sem Sigurður var með pró­kúru­um­boð þótt börn hans hafi verið skráðir eig­endur félags­ins. Líkt og kom fram í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar voru þeir Björg­ólfs­feðgar tengdir, beint eða óbeint, við meira en 50 skúffu­fé­lög á árunum fyrir íslenska efna­hags­hrunið.

Milliliðurinn
Milli­lið­ur­inn Þor­steinn Ólafsson hjá eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Arena Wealth Mana­gement í Lúx­em­borg hefur verið milli­liður í við­skiptum fjöl­margra íslenskra fjár­festa við Mossack Fonseca eftir hrun. Fyrir hrun starf­aði hann í Lands­bank­anum í Lúx­em­borg og þjón­u­staði marga sterk­efn­aða athafna­menn.

Við­skipti þeirra Sigurðar og Magnúsar við Mossack Fonseca áttu sér að hluta til stað í gegnum Lands­bank­ann í Lúx­em­borg á árunum fyrir hrunið en eftir það fluttu þeir við­skipti sín yfir til fyr­ir­tæk­is­ins Arena Wealth Mana­gement í Lúx­em­borg, líkt og gildir um ýmsa aðra íslenska fjár­festa sem áður stund­uðu við­skipti við Lands­bank­ann. Starfs­maður og hlut­hafi í Arena Wealth Mana­gement, Þor­steinn Ólafsson, er það nafn sem oft­ast kemur fram í Panama­skjöl­unum vegna við­skipta þeirra Magnúsar og Sigurðar og var hann meðal ann­ars með pró­kúru­um­boð í ein­staka félögum vegna við­skipta þeirra. Áður hafði Þor­steinn verið með pró­kúru­um­boð í ein­staka félögum sem Magnús og Sigurður tengd­ust gegnum Lands­bank­ann í Lúx­em­borg. 

Tekið skal fram að við­skipti í gegnum félög í skatta­skjólum og á lág­skatta­svæðum eru ekki ólög­leg sem slík; við­skipti sem tengj­ast slíkum félögum eru ein­ungis ólög­leg ef þau eru notuð til að brjóta lög, til dæmis með því að fela fjár­muni frá skatta­yf­ir­völdum sem gefa á upp til skatts. Stundin og Reykja­vík Media ehf. hafa ekki heim­ildir fyrir því hvaða skatta­legu afleið­ingar – ef ein­hverjar – þessi umfangs­miklu við­skipti Magnúsar og Sigurðar við Mossack Fonseca höfðu.

Mega börn taka lán? 

Eitt af því sem vekur athygli við lán­veit­ing­arnar til og frá börnum Sigurðar og Nönnu Bjarkar og félaga í þeirra eigu er auð­vitað sú spurn­ing hversu langt for­eldrar mega ganga í því að skuld­binda börn sín fjár­hags­lega og eða nota nöfn þeirra og kenni­tölur í ein­staka við­skiptum. Umræða um þetta kom upp á Íslandi árið 2009 þegar í ljós kom að nokkrir stofn­fjár­eig­endur í spari­sjóðnum Byr höfðu notað ólög­ráða börn sín til að geta keypt meira stofnfé í spari­sjóðnum þegar það var aukið með lánsfé frá Glitni árið 2007. Þessir stofn­fjár­eig­endur tóku lán hjá Glitni í nafni barn­anna sinna til að kaupa stofn­féð. 

Einn þeirra var Einar Örn Jónsson, kenndur við Nóatún, sem faðir hans stofn­aði, og sagði hann við DV að  ekki hafi verið væn­legt fyrir eig­endur stofn­fjár í Byr ef eign­ar­hlutur þeirra hefði þynnst út í kjöl­far stofn­fjár­aukn­ing­ar­innar.  Einar Örn sagði að áhættan af því að taka lán fyrir börnin svo þau gætu verið þátt­tak­endur í stofn­fjár­aukn­ing­unni hjá Byr hafi ekki átt að vera nein og því hafi verið „freist­andi“ að taka slík lán fyrir þau: „Ef það er engin áhætta í þessu, hvort sem það eru börn eða aðrir, hlýtur að vera ákaf­lega freist­andi að taka slík lán […] Við fengum svo bara fjár­mála­kerfið á hlið­ina en á þessum tíma voru menn öðru­vísi stemmdir og töldu ekki mikla áhættu í þessu.“

Þegar þessar fréttir um barna­lánin til stofn­fjár­haf­anna í Byr voru sagðar birti emb­ætti Umboðs­manns barna til­kynn­ingu á vef­síðu emb­ætt­is­ins þar sem sagði meðal ann­ars. „Vegna umræðu um lán­veit­ingar Glitnis til barna frá eins árs aldri vill umboðs­maður barna árétta að lán­veit­ingar til barna eru ekki heim­ilar nema að fengnu leyfi yfir­lög­ráð­anda (sýslu­manns) og þá aðeins að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum. Það kemur skýrt fram í lög­ræð­is­lögum nr. 71/1997 að ófjár­ráða börnum er óheim­ilt að stofna til skulda, sbr. 7. mgr. 75. gr.  Eins kemur fram í 76. gr. lag­anna að lög­gern­ingar ófjár­ráða barna, sem þau hafa ekki heim­ild til að gera, binda þau ekki.“ Samkvæmt þessu þarf emb­ætti sýslu­manns að sam­þykkja lán­veit­ingar til barna til þess að þær séu heim­ilar. 

Umboðs­maður barna, Margrét María Sig­urð­ar­dóttir, er í fríi erlendis og gat því ekki tjáð sig um lán­veit­ing­arnar og aðkomu barn­anna þriggja að lána­við­skipt­unum í skatta­skjóli. Meg­in­reglan er hins vegar sú að börn mega ekki taka lán og skulda og fjár­mála­fyr­ir­tæki mega ekki veita þeim slíka fyr­ir­greiðslu.

Félög á Íslandi töpuðu en félög í skattaskjólum áttu eignir

Þeir Sigurður Bollason og Magnús Ármann unnu lengi saman á árunum fyrir hrunið 2008. Þeir keyptu meðal ann­ars 40 pró­senta hlut í tísku­vöru­fyr­ir­tæk­inu Karen Millen árið 2011 ásamt Kaup­þingi. Þann hlut seldu þeir til Baugs árið 2005. Á árunum þar á eftir fjár­festu þeir svo meðal ann­ars í Baugi, FL Group og fjöl­miðla­fyr­ir­tæki Baugs, Dagsbrún. Þeir Magnús og Sigurður sátu um tíma báðir í stjórn FL Group á árunum fyrir hrunið. Þeir unnu einnig báðir um tíma með enska fjár­fest­inum Kevin Stanford sem var eig­in­maður Karen Millen, sem tísku­vöru­versl­unin heitir eftir. Segja má til ein­föld­unar að þeir Sigurður og Magnús hafi fyrir hrun haft tals­verð tengsl við Jón Ásgeir Jóhann­es­son og fjár­fest­ingar sem hann kom að, beint eða óbeint.

Sigurður fjár­festi fyrir um tíu millj­arða króna í Existu, Glitni og Lands­bank­anum rétt fyrir efn­hags­hrunið árið 2008 og tók emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara meðal ann­ars af honum skýrslu  sem vitni í árs­byrjun 2011 vegna rann­sóknar á meintri mark­aðs­mis­notkun bank­ans. Í yfir­lýs­ingu vegna þess­ara við­skipta sagði Sigurður: „Ég hef verið beð­inn um að gefa skýrslu sem vitni sem ég geri fús­lega […] Beið ég mikið fjár­hags­legt tjón af þessum við­skiptum.“ Sigurður hafði á þessum tíma flutt lög­heim­ili sitt til Lúx­em­borgar líkt og ýmsir aðrir íslenskir fjár­festar, meðal ann­ars Magnús Ármann. 

Óvanalegar arðgreiðslur
Óvana­legar arð­greiðslur Arð­greiðsl­urnar úr félögum þeirra Sigurðar og Magnúsar í skatta­skjólum eru óvenju­legar en sam­tals var um að ræða á fimmta millj­arð króna.

Í ágúst árið 2011 greindi DV frá sam­tals ell­efu millj­arða króna gjald­þrotum tveggja eign­ar­halds­fé­laga Sigurðar sem notuð voru í umræddum hluta­bréfa­við­skiptum. Annað félag Sigurðar hafði fengið fjög­urra millj­arða króna lán frá Glitni til að kaupa hluta­bréf í bank­anum árið 2008 og hitt félag hans hafði fengið 3,5 millj­arða króna að láni til að kaupa 1,4 pró­senta hlut í Lands­bank­anum í júlí og ágúst árið 2008, það er að segja rétt fyrir banka­hrunið. 

Þótt Sigurður seg­ist hafa tapað miklu per­sónu­lega á umræddum hluta­bréfa­við­skiptum þá liggur ekki fyrir hversu mikið það tap var. Hins vegar liggur fyrir að félög sem Mossack Fonseca stofn­aði fyrir hann og aðila honum tengdum áttu eignir upp á hund­ruð millj­ónir króna sem lán­aðar voru á milli félaga honum tengdum.

Mörg félög Magnúsar á Íslandi hafa orðið gjald­þrota á liðnum árum og skilið eftir sig miklar skuldir. Til að mynda félagið Sólmon ehf. sem kröfu­hafar lýstu 3,3 millj­örðum króna í en átti engar eignir og félagið Runnur ehf. sem rúm­lega tveimur millj­örðum króna var lýst í án þess að félagið ætti neinar eignir til skipt­anna. DV greindi frá því árið 2009 að Runnur ehf. og annað félag því tengt, Runnur 2 ehf., hefðu skuldað Byr um 4,3 millj­arða króna sem höfðu verið afskrif­aðir árið 2009. Magnús Ármann var einn stærsti stofn­fjár­eig­andi Byrs fyrir hrunið en eig­endur sjóðs­ins ákváðu að greiða 13,5 millj­arða króna arð út úr honum í apríl 2008. Eign­ar­halds­fé­lag Magnúsar tók við um millj­arðs króna arði vegna þess­arar arð­greiðslu. 

Félög þeirra Sigurðar og Magnúsar á Íslandi skilja því eftir sig umtals­verðar skuldir en Panama­skjölin varpa ljósi á arð­greiðslur um umsvif þeirra á lág­skatta­svæðum fyrir og eftir hrunið árið 2008.

Rannsókn skattayfirvalda á erlendum kreditkortum

Árið 2009 greindi frétta­stofa Stöðvar 2 frá því að bæði Sigurður og Magnús tengd­ust rann­sóknum skatta­yf­ir­valda á Íslandi á notkun erlendra greiðslu­korta á Íslandi og var haft eftir Bryndísi Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra að grunur léki á að um 30 ein­stak­lingar hefðu komið veru­legum fjár­hæðum undan skatta­yf­ir­völdum á Íslandi með slíkri kredit­korta­notkun. Í frétt Stöðvar 2 var bent sér­stak­lega á að Magnús væri sá ein­stak­lingur sem notað hefði slík kredit­kort mest á Íslandi, eða fyrir allt að um 40 millj­ónir króna á ári. 

Panama­skjölin varpa meðal ann­ars ljósi á þetta þar sem í þeim er að finna gögn sem sýna að árið 2004 var ákveðið að tvö Tortóla­fé­lög ættu að greiða kredit­korta­reikn­inga þeirra Sigurðar Bolla­sonar og Magnúsar Ármanns. Í til­felli Magnúsar var um að ræða félagið Yucca Global S.A. og í til­felli Sigurðar var um að ræða félagið Whiteside Invest S.A. Stjórn­ar­menn beggja félag­anna skrif­uðu undir yfir­lýs­ingar þess efnis. Tortóla­fé­lög borg­uðu því sann­ar­lega kredit­korta­reikn­inga þeirra Magnúsar og Sigurðar eins og fram kom á sínum tíma.

Í sam­tali við Stundina segir Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri að rann­sóknum emb­ætt­is­ins á þessum málum sé lokið. Einhver þess­ara mála hafi farið fyrir yfir­skatta­nefnd og verið lokið með sekt­ar­greiðslum á meðan ein­hver mál, hún nefnir tvö, hafi farið fyrir dóm og orðið opin­ber þannig. „Þessi mál voru þannig í nokkrum til­fellum að farið var í hús­leitir og skil­aði það miklu þar sem hald var lagt á lyk­il­gögn. Það sem við erum að gera núna er að reyna að afla gagna frá Lúx­em­borg en það var ekki hægt á sínum tíma. Það var bara allt lokað,“ segir Bryndís og bætir því við að ein­hver slík kredit­korta­mál séu enn þá á borði hér­aðs­sak­sókn­ara, áður sér­staks sak­sókn­ara. „Þessi mál sýndu meðal ann­ars að menn voru með fjár­muni geymda þarna úti, sem við svo sem reyndar vissum.“

Ekki liggur fyrir hvernig mál Sigurðar og Magnúsar end­uðu í með­förum skatta­yf­ir­valda á Íslandi. 

Fjárfestir á Íslandi í gegnum Lúxemborg

Sigurður Bollason er enn þá skráður með lög­heim­ili í Lúx­em­borg en kona hans er skráð til heim­ilis í ein­býl­is­húsi í Skild­inga­nesi. Húsið var í eigu hennar þar til árið 2010 þegar félag í Lúx­em­borg, Artémis Capital S.A.R.L., eign­að­ist það. Ekki kemur fram í afsali húss­ins hver á þetta félag en ljóst er út frá Pana­ma­gögn­unum að nær öllum við­skiptum Sigurðar er stýrt frá Lúx­em­borg. Félagið í Lúx­em­borg, sem á húsið í Skild­inga­nesi, kemur hins vegar fram í Panama­skjöl­unum sem eig­andi reikn­ings í Lúx­em­borg sem Mossack Fonseca er beðið um að leggja fjár­muni inn á. 

Sigurður hefur byrjað að hasla sér völl á Íslandi aftur og á þessu ári hefur verið greint frá því að hann hafi keypt sig inn í fjöl­miðla­fyr­ir­tækið 365 í gegnum félagið Grandier S.A. í Lúx­em­borg en það á nú tæp­lega níu pró­senta hlut í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu og er fjórði stærsti hlut­haf­inn. Kaup Sigurðar á hlut í 365 eru alls ekki fyrstu við­skiptin sem hann stundar sem tengj­ast fyr­ir­tækjum Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar. 

„Skuld­ar­inn, Maggi ehf., á í alvar­legum fjár­hags­erf­ið­leikum“

Þá á félagið Grandier ehf., sem skráð er til heim­ilis í hús­inu í Skild­inga­nesi, tæp­lega sjö pró­senta hlut í Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands en félagið keypti hlut­inn nú í vor á um 1200 millj­ónir króna. Meðal eig­enda Grandier ehf., sam­kvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins frá því fyrr á árinu, er breski fjár­festir­inn Don McCarthy, sem var hlut­hafi í Baugi Group á árunum fyrir hrunið 2008 og einn af við­skipta­fé­lögum Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar í gegnum árin. Engar hlut­hafa­upp­lýs­ingar er að finna um Grandier ehf. í gagna­grunni Láns­trausts. Stjórn­ar­maður félags­ins er hins vegar Þor­steinn Ólafsson, sá sami og stýrt hefur við­skiptum þeirra Magnúsar og Sigurðar í Lúx­em­borg um ára­bil. 

Við­skipti Sigurðar á Íslandi í dag fara því fram í gegnum Lúx­em­borg.

Á bak við prókúru og handhafabréf
Á bak við pró­kúru og hand­hafa­bréf Af þeim rúm­lega 20 félögum sem við­skipta­fé­lag­arnir Sigurður Bollason og Magnús Ármann tengj­ast í Pana­ma­gögn­unum eru þeir form­legir hlut­hafar í aðeins einu. Flest félögin eru í eigu „hand­hafa“ en þeir Sigurður og Magnús eru ýmist báðir eða annar með pró­kúru í þeim, sem felur þeim ótak­mörkuð völd til að sýsla með félögin og eigur þeirra.

Rúmlega fimm milljarða arður 

Eitt af því sem vekur sér­staka athygli í Panama­skjöl­unum er að eitt félagið sem þeir Sigurður Bollason og Magnús Ármann stýrðu, Katla Invest­ments, fékk heim­ild til að greiða hlut­höfum félags­ins út arð upp á 28 millj­ónir punda, á tæp­lega 3,8 millj­arða króna. Magnús og Sigurður voru báðir með pró­kúru fyrir félagið auk starfs­manns Lands­bank­ans í Lúx­em­borg, Þor­steins Ólafs­sonar. Þetta kemur fram í skjali frá stjórn­ar­mönnum Kötlu Invest­ments hjá Mossack Fonseca sem dag­sett var í ágúst árið 2006. Þessi arð­greiðsla er svo stað­fest í árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2006 þar sem sést greiðsla 3,8 millj­arða króna til hlut­hafa.

Skjalið um arð­greiðsl­una var dag­sett aftur í tím­ann og fetti starfs­maður Mossack Fonseca, Egbert Wetherborne, fingur út í þetta í tölvu­pósts­sam­skiptum um aðgerð­ina. „Við getum skrifað undir heim­ild­ina en það verður dýr­ara en ella þar sem við erum að tala um heim­ild sem er dag­sett eitt ár aftur í tím­ann og búið er að leysa fyr­ir­tækið upp. Þegar tekið er til­lit til þess­ara tveggja þátta verður kostn­að­ur­inn 450 doll­arar. Þar að auki þurfum við yfir­lýs­ingu um skað­leysi frá við­skipta­vin­inum til að verja okkur gegn afleið­ingum þess­arar ákvör­unar.“ Með síð­ast­nefndu orð­unum var ýjað að því að lán­veit­endur eða kröfu­hafar Kötlu Invest­ments gætu haft eitt­hvað út á arð­greiðsl­una að setja og vildi Mossack Fonseca ekki vera í þeim sporum að geta átt yfir höfði sér mál­sókn frá þeim.

Katla Invest­ments hafði fengið millj­arða króna að láni frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg á þessum tíma. Meðal ann­ars fékk félagið rúm­lega 55 millj­óna punda lán, ríf­lega sjö millj­arða króna, í maí árið 2006. Eitt af því sem umrætt félag gerði sam­kvæmt Pana­ma­gögn­unum var að halda utan um hluta­bréf í bresku smá­sölu­keðj­unni Rubicon Retail Limited sem átti breskar tísku­vöru­versl­anir sem hétu Warehouse og Principles. Félagið seldi hluta­bréf í þessu fyr­ir­tæki til Baugs­fé­lags­ins BG Holding ehf. um vorið 2006. Samkvæmt fréttum frá þessum tíma yfir­tók félagið Mosaic Fashions, sem Baugur átti 40 pró­senta hlut í, Rubicon Retail Limited á þessum tíma. Katla Invest­ments var því mjög umsvifa­mikið félag á þessum árum. 

Við þessa arð­greiðslu bæt­ist svo 14 milljón punda arð­greiðsla út úr Kötlu Invest­ments árið 2005 eða rúm­lega 1500 millj­ónir króna. Heild­ararð­greiðslan út úr þessu félagi til hlut­hafa þess nam því rúm­lega fimm millj­örðum króna á tveimur árum. 

Fleiri arðgreiðslur 

Í Panama­skjöl­unum er svo að finna önnur dæmi um arð­greiðslur þar sem 164 millj­ónir króna voru greiddar út úr félag­inu Procon Industrial Holdings Ltd. í októ­ber árið 2004. Samkvæmt skjali um það félag frá árinu 2005 voru Magnús Ármann og Sigurður Bollason einu hlut­hafar þess. Þetta félag hélt utan um hluta­bréf í bresku tísku­vöru­keðj­unni Karen Millen sam­kvæmt skjölum í Pana­ma­gögn­unum. Eins og áður segir keypti félag í meiri­hluta­eigu Baugs hf. Karen Millen árið 2004 og má vænt­an­lega rekja arð­greiðsl­una frá Procon Industrial Holdings Ltd. til þess­ara við­skipta sem áttu sér stað um sum­arið 2004. Þá var greiddur 400 þús­und doll­ara, rúm­lega 28 millj­óna króna, arður út úr félag­inu Whitesand Invest S.A., sem var í eigu þeirra Magnúsar og Sigurðar, á Tortóla í mars árið 2006. Í októ­ber 2007 var svo greiddur út 100 þús­und evru arður, rúm­lega 8,5 millj­ónir króna, úr Whitesand Invest.

Í miðju efna­hags­hrun­inu árið 2008, nánar til­tekið þann 3. októ­ber, var und­ir­ritað skjal sem heim­il­aði 450 þús­und evra, rúm­lega 70 millj­óna króna arð­greiðslu út úr félag­inu Stanford Managers á Tortóla til Whitesand Invest Ltd. Félagið Stanford Managers hafði meðal ann­ars fengið 3 millj­arða króna lán frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg á árunum fyrir hrunið, fyrst tvo millj­arða og svo einn millj­arð króna til við­bótar í febr­úar árið 2007. Sigurður Bollason var bæði með pró­kúru­um­boð fyrir Stanford Managers og fyrir móð­ur­fé­lag þess, Whitesand Invest. 

Eitt af því athygl­is­verð­asta í Pana­ma­gögn­unum er umfang lán­veit­ing­anna frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg til félaga tengdum Sigurði Bolla­syni og Magnúsi Ármanni. Auk áður­nefndra lána fékk félagið Anfort Capital S.A., sem Magnús Ármann var með pró­kúru fyrir, til dæmis 2,5 millj­arða króna lán­veit­ingu frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg árið 2005. Lánið var til að stunda gjald­miðla­við­skipti og skrif­aði Þor­steinn Ólafsson undir það fyrir hönd Lands­bank­ans í Lúx­em­borg auk ann­ars starfs­manns. 

Umfangsmikið félag virkt á Íslandi og Þýskalandi eftir hrun

Eitt umfangs­mesta félag Magnúsar Ármanns í Pana­ma­gögn­unum var félagið Yucca Glocal S.A. sem fékk meðal ann­ars 1,9 millj­óna punda, um 250 millj­óna króna, lán frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg árið 2004. Lánið var veitt til að fjár­festa í hlutafé. Þetta félag, Yucca Global S.A., var virkt alveg þar til í apríl árið 2011 og greiddi meðal ann­ars út tveggja millj­óna doll­ara arð, ríf­lega 120 millj­ónir króna, til Magnúsar Ármanns í sept­em­ber árið 2007. 

Félagið var meðal ann­ars þátt­tak­andi í við­skiptum Magnúsar Ármanns á Íslandi og í Þýska­landi eftir hrunið 2008. Í Þýska­landi tók félagið þátt í fjár­fest­ingum félags­ins Admirals­plast Produktions GmbH í Berlín í Þýska­landi en eins og komið hefur fram fjár­festi Magnús Ármann í leik­húsi þar í borg sem heitir Admirals Palast. Íslenski tón­list­ar­mað­ur­inn Helgi Björns­son var hlut­hafi í rekstr­ar­fé­lagi leik­húss­ins auk þess sem hann átti hlut í fast­eign­inni ásamt Magnúsi Ármanni. 

Keypti í 365
Keypti í 365 Sigurður Bollason keypti hlut í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu 365 fyrr á árinu en hann og Magnús Ármann hafa í nokkur skipti átt í við­skiptum í fyr­ir­tækjum sem tengj­ast Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni sem sést hér með eig­in­konu sinni, Ingi­björgu Pálma­dóttur. Fyrir hrun áttu þeir meðal ann­ars hluta­bréf í FL Group.

Í Panama­skjöl­unum kemur fram, í skjali frá árinu 2009, að lög­mað­ur­inn Bernard Bogason, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ingur FL Group og við­skipta­fé­lagi Magnúsar, fær umboð frá Yucca Capital til að gera samn­ing við rekstr­ar­fé­lag leik­húss­ins í Berlín en það fór svo í þrot árið 2010 sam­kvæmt frétt í DV árið 2010. Rekstr­ar­fé­lag leik­húss­ins fór meðal ann­ars illa á upp­setn­ingu á leik­riti Mel Brooks, The Producers, og tap­aði um 100 millj­ónum króna á því sam­kvæmt við­tali við Helga í DV. „Þessi rekstur er mjög áhættu­samur og það þarf lítið út af að bera. Við lentum til dæmis mjög illa í því í fyrra þegar The Producers, sem er Mel Brooks-sýn­ing, flopp­aði hjá okkur. Þetta var mjög stór sýn­ing og mikil fjár­fest­ing. Þar töp­uðum við ein­hverjum 100 millj­ónum og við vorum nán­ast við dauð­ans dyr.“ Í frétt DV kom fram að Magnús Ármann, eða aðilar á hans vegum, héldu áfram utan um eign­ar­hlut í leik­hús­inu í Berlín og virð­ist þetta eign­ar­hald meðal ann­ars hafa verið í gegnum Yucca Capital S.A. 

Yucca Capital S.A. var líka notað til fjár­fest­inga Magnúsar Ármanns á Íslandi þar sem félagið fjár­festi í tveimur skulda­bréfum upp á sam­tals rúm­lega tíu millj­ónir punda, vel á annan millj­arð króna, sem eign­ar­halds­fé­lag Magnúsar á Íslandi, Maggi ehf., gaf út  á árunum 2005 og 2006. Skulda­bréfin áttu að greið­ast í árs­lok 2008 en þetta var ekki gert. Í skjali í Pana­ma­gögn­unum kemur fram að Yucca Capital færði kröf­urnar á hendur Magga ehf. til eign­ar­halds­fé­lags í Hollandi, Golden Gate Manag­ment BV. í nóv­em­ber árið 2009. Samkvæmt sam­komu­lag­inu átti Yucca Global að fá 50 pró­sent af þeim fjár­munum sem end­ur­greiddir yrðu vegna skulda­bréf­anna. Í sam­komu­lag­inu kom hins vegar fram að fjár­hags­staða Magga ehf. væri ekki góð: „Skuld­ar­inn, Maggi ehf., á í alvar­legum fjár­hags­erf­ið­leikum. Ljóst er að félagið getur ekki staðið við fjár­hags­legar skuld­bind­ingar sínar. Í raun er Maggi ehf. að reyna að semja um skulda­upp­gjör sem myndi leiða til þess að skulda­bréfin yrðu verð­metin á 543 þús­und evrur sem eig­in­fjár­fram­lag inn í félagið eða annað félag sem allar skuldir skuld­ar­ans yrðu færðar inn í.“

Skuldir Magga ehf., sem nú heitir F 41 Holding ehf., umfram eignir félags­ins, námu tæp­lega 2,5 millj­örðum króna í árs­lok 2014. Félagið var yfir­tekið af eign­ar­halds­fé­lagi í eigu Bern­hards Boga­sonar árið 2010 en fram að því átti Magnús Ármann það per­sónu­lega. Einn stærsti lán­veit­andi félags­ins var áður­nefnt félag Yucca Capital S.A. en er vænt­an­lega núna áður­nefnt hol­lenskt fyr­ir­tæki Golden Gate Mana­gement BV. Maggi ehf. fjár­festi fyrir hrun í í fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Materia Invest ehf. og BT eign­ar­halds­fé­lagi ehf. Meðal eigna Magga ehf. var félagið BT eign­ar­halds­fé­lag ehf. sem átti hluti í tveimur fast­eignum í Berlín, meðal ann­ars áður­nefndu leik­húsi. 

Ótrúleg umsvif og ósvaraðar spurningar

Umsvif þeirra Sigurðar Bolla­sonar og Magnúsar Ármanns í Panama­skjöl­unum eru ótrú­lega mikil; svo mikil að bara það að fara í gegnum gögn þeirra félaga og eign­ar­halds­fé­laga sem tengj­ast þeim er margra daga verk. Gögnin svara hins vegar ekki fjöl­mörgum spurn­ingum um umsvif þeirra. Til að mynda; hversu mikið af lán­unum hjá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg voru greidd til baka og hversu mikið af þeim voru afskrifuð? Hvaða skatta­legu afleið­ingar við­skipti þeirra í skatta­skjólum höfðu fyrir þá liggur heldur ekki fyrir og hvort skatta­yf­ir­völd á Íslandi hafi skoðað þessi umsvif þeirra sér­stak­lega. Þá liggur ekki fyrir hversu miklar eignir þeir eiga sam­kvæmt opin­berum skatta­upp­lýs­ingum á Íslandi þar sem báðir hafa um langt ára­bil verið búsettir erlendis og þeir greiða því ekki skatta á Íslandi. 

Umfang umsvifa þeirra hjá Mossack Fonseca liggur hins vegar fyrir en ekki er hægt, út frá gögn­unum, að full­yrða hvað varð um alla þá millj­arða sem runnu til félaga þeim tengdum á árunum fyrir hrunið. Gögnin um þá bregða hins vegar afhjúp­andi ljósi á hvernig íslenskir fjár­festar hafa notað félög í skatta­skjólum í við­skiptum sínum á liðnum árum. Og í til­felli þeirra Sigurðar og Magnúsar, öfugt við ýmsa aðra fjár­festa, er ljóst að þeir tóku millj­arða króna í arð út úr þessum félögum í skatta­skjólum sem kom fram í gögnum Mossack Fonseca.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið undanfarið ár