Stjórnvöld láta gera úttekt á starfsemi Matvælastofnunar

Gunnar Bragi Sveins­son, starf­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, ætlar að láta gera úttekt á ýmsum þáttum í rekstri og starfs­um­hverfi Mat­væla­stofn­unar. Þeir Bjarni Snæbjörn Jónsson stjórn­un­ar­ráð­gjafi og Ólafur Odd­geirs­son dýra­læknir og fram­kvæmda­stjóri ráð­gjafa­fyr­ir­tæks­is­ins Food Control Consultants Ltd í Skotlandi munu gera úttekt­ina.

Úttektin er gerð eftir upp­ljóstr­anir um starfs­hætti Brú­neggja og afskipti Mat­væla­stofn­unar af starf­sem­inni þar. Unnið er að end­ur­skoðun laga um Mat­væla­stofnun í ráðu­neyt­inu og gert er ráð fyrir að úttekt á stofn­un­inni liggi fyrir í lok febr­úar og muni verða notuð við end­ur­skoð­un­ina.

Gunnar Bragi segir í frétta­til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu að öllum megi vera ljóst að það sé mik­il­vægt að traust ríki um starf­hætti Mat­væla­stofn­unar. „Við höfum fengið mjög hæfa ein­stak­linga til að yfir­fara verk­ferla, laga­legt umhverfi og stjórn­sýslu á sviði dýra­vel­ferðar og mat­væla­eft­ir­lits. Með þessu vil ég stuðla að því að við lærum af þeim mis­tökum sem kunna að hafa verið gerð í ein­stökum málum og tryggjum að laga­leg umgjörð sé í sam­ræmi við almenna hags­muni.“

Þeir Bjarni Snæbjörn og Ólafur munu fara yfir verk­ferla Mat­væla­stofn­unar þegar kemur að eft­ir­liti með lögum um dýra­vel­ferð og mat­væla­eft­ir­lit og greina starfs­að­ferðir og bera saman við það sem almennt ger­ist hjá sam­bæri­legum stofn­unum í Evrópu. Sér­fræð­ingar ráðu­neyt­is­ins munu yfir­fara lög sem gilda um starf­semi Mat­væla­stofn­unar og beit­ingu þeirra og greina hvort skortur á laga­úr­ræðum hamli því að stofn­unin geti veitt almenn­ingi og opin­berum stofn­unum upp­lýs­ingar úr eft­ir­lits­skýrslum.

Þá verður gerð athugun á rekstri, skipu­lagi og stjórnun og hvernig ráðu­neytið sinnir almennum eft­ir­lits­skyldum sínum með starf­semi Mat­væla­stofn­unar. Loks er óskað eftir ábend­ingum um það sem betur má fara varð­andi fram­an­greinda þætti, til­lögum um breyt­ingar á lögum og öðru því sem telja má að geti eflt fram­kvæmd með lögum um dýra­vel­ferð og mat­væla­eft­ir­lit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár