Prófessor kallar vændi „atvinnutækifæri“ fyrir konur

Stjórn­mála­fræði­pró­fess­or­inn Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son seg­ist ekki skilja hvers vegna þeir sem aðhyll­ast kven­frelsi séu and­snúnir því að konur nýti sér atvinnu­tæki­færi í vænd­is­geir­anum.

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, stjórn­mála­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, seg­ist ekki skilja hvers vegna kven­frels­is­sinnar séu mót­fallnir því að konur stundi vændi. Lýsir hann vændi sem „atvinnu­tæki­færi“ fyrir konur og hvetur til umburð­ar­lyndis gagn­vart því svo lengi sem hvergi er „nein nauð­ung á ferð“. 

„Mér er ekki alveg ljóst, hvers vegna kven­frels­is­sinnar eru á móti því, að konur noti þetta atvinnu­tæki­færi“

„Aðal­at­riðið um vændi er, hvort upp­lýst sam­þykki beggja liggi fyrir. Ef svo er, þá er auð­vitað ekk­ert á móti því, að þóknun komi fyrir blíðu. Mér er ekki alveg ljóst, hvers vegna kven­frels­is­sinnar eru á móti því, að konur noti þetta atvinnu­tæki­færi, sé hvergi nein nauð­ung á ferð. Er þetta ekki dæmi um, að sumar konur séu á móti öðrum konum, frekar en að konur séu almennt á móti körlum?“ skrifar hann á Facebook-síðu sinni. Hannes Hólm­steinn kennir meðal ann­ars stjórn­mála­heim­speki við Háskóla Íslands og er einn áhrifa­mesti hug­mynda­fræð­ingur frjáls­hyggju á Íslandi. Hann vinnur nú að skýrslu fyrir fjár­mála­ráðu­neytið um erlenda áhrifa­þætti í íslenska banka­hrun­inu.

Hannes hvetur til þess að sið­ferði­leg álita­mál séu skoðuð í ljósi tveggja lög­mála eða rök­semda sem hann lýsir svo: „1) Ef menn brjóta ekki rétt á öðrum með því að kaupa eða selja vændi, þá eiga aðrir ekki að skipta sér af því. 2) Ef afleið­ing­arnar af að banna vændi eru verri en afleið­ing­arnar af þvi að leyfa það, þá getur verið skyn­sam­legt að leyfa það. Önnur rökin eru réttindarök, hin nytjarök.“

Í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar í dag er fjallað um þau rök sem færð hafa verið með og á móti sænsku leið­inni í vænd­is­málum, sem felur í sér að ólög­legt sé að kaupa vændi og eiga milli­göngu um að selja vændi. Þá er fjallað um hin ólík­ustu við­brögð við hug­myndum Amnesty um afglæpa­væð­ingu vændis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár