Hundrað börn missa foreldri sitt ár hvert

Hér á landi misstu að jafn­aði um hund­rað börn for­eldri sitt árlega á tíma­bil­inu 2009 til 2018 . Í heild­ina misstu 1001 börn for­eldri sitt á síð­ustu tíu árum eða alls 649 for­eldrar, þar af voru 448 feður og 201 móðir.

Á síð­ustu tíu árum missti að jafn­aði 101 barn for­eldri sitt árlega. Alls lét­ust 649 for­eldrar barna á árunum 2009 til 2018, þar af voru 448 feður og 201 móðir. Þá lét­ust flestir for­eldr­arnir af völdum ill­kynja æxlis eða tæp­lega 40 pró­sent. Þetta kemur fram á vef Hag­stof­unnar en þetta er í fyrsta sinn sem Hag­stofan tekur saman tölur um fjölda barna sem lenda í þess­ari stöðu á ári hverju á Íslandi.

16 prósent foreldra létust af völdum sjálfsvígs

Á árunum 2009 til 2018 misstu 1001 börn for­eldri á tíma­bil­inu 2009 til 2010, alls 525 drengir og 482 stúlkur. Þá lét­ust mun fleiri feður á tíma­bil­inu eða alls 448 en 201 móðir. Flestir feðra sem lét­ust voru eldri en 49 ára eða 38 pró­sent. Næst­flestir voru milli 40 og 49 ára, eða um 31 pró­sent af heild­ar­fjölda feðra. Flestar mæður sem lét­ust voru á aldr­inum 40 til 49 ára, alls 42 pró­sent en næst­stærsti hóp­ur­inn var á aldr­inum 30 til 39 ára eða tæp­lega 28 pró­sent.

Algeng­ast var að for­eldrar lét­ust af völdum ill­kynja æxlis eða alls 257 for­eldrar. Næstal­geng­ast var að for­eldri lét­ist vegna ytri orsaka áverka og eitrana, tæp­lega 34 pró­sent til­vika eða 218 manns. Hag­stofan skoð­aði sér­stak­lega tvo und­ir­flokkar dauðs­falla af völdum ytri orsaka áverka og eitrana, ann­ars vegar óhöpp og hins vegar sjálfs­víg og vís­vit­andi sjálfs­skaði. Meiri­hluti for­eldra sem lét­ust af völdum ytri orsaka, lét­ust af völdum sjálfs­vígs og vís­vit­andi sjálfs­skaða, alls 106. Það eru 48 pró­sent af heild­ar­fjölda for­eldra sem lést af völdum ytri orsaka og 16,3 pró­sent af heild­ar­fjöld­anum.

Þegar dán­ar­or­sakir eru skoð­aðar eftir kyni og ald­urs­flokkum má sjá að langal­geng­asta dán­ar­or­sök ungra mæðra og ungra feðra, þeirra sem eru 29 ára eða yngri, eru ytri orsakir. Alls lét­ust 89 pró­sent feðra og 73 pró­sent á þessum aldri vegna ytri orsaka. Meðal for­eldra sem voru eldri en 49 ára var algeng­asta dán­ar­or­sökin hins vegar ill­kynja æxli, 69 pró­sent mæðra og 50 pró­sent feðra á þessum aldri.

Mikilvægt að skapa lagalega umgjörð til að hlúa að þessum börnum

Í dag, mánudag­inn 29. apríl, fer ráðstefnan „Hvað verður um mig“ þar sem fjallað verður um rétt barna, stöðu þeirra og þarfir við fráfall for­eldris. Í til­kynn­ingu frá Krabba­meins­fé­lag­inu segir að tölur Hag­stof­un­anr sem fjallað er um hér að ofan gefa til kynna hversu mik­il­vægt sé að skapa laga­lega umgjörð til að hlúa að þessum börnum og fjöl­skyldum þeirra.

„Það er stórt og óaft­ur­kræft áfall þegar for­eldri barns fellur frá og hefur mikil áhrif á líf þess. Það er sorg­leg stað­reynd að á hverju ári lenda börn í þess­ari stöðu og samfélagið allt þarf að standa með þeim og sam­ein­ast um að tryggja vel­ferð þeirra, eftir áfallið og eins lengi og þörf krefur, á þann hátt að þeim vegni sem allra best eftir miss­inn,“ segir Halla Þor­valdsdóttir, fram­kvæmda­stjóri Krabba­meinsfélags Íslands. 

Á ráð­stefn­unni verða kynntar verða rannsóknir um upp­lifun barna eftir fráfall for­eldris og hvernig nýta megi þær upplýsingar til að skapa umgjörð fyrir fagfólk og þá sem standa að börnunum. Jafn­framt verður greint frá rannsóknum á stöðu barna sem aðstand­enda krabba­meins­sjúklinga en flest börn missa for­eldri sitt vegna ill­kynja æxlis. Ráð­stefnan fer fram klukkan 15 til 17:30 í húsi Íslenskrar erfða­grein­ingar að Sturlugötu 8 í Reykjavík en ráðstefn­unni verður einnig streymt beint á heimasíðu Krabba­meinsfélags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár