Mynd: Kristinn Magnússon

Uppreisnarmaður í fangelsi

Níels Ársæls­son varð skip­stjóri á tog­ara rúm­lega tví­tugur. Skip­herra varð­skips lét manna fall­byssu og beindi að skipi hans. Síðan hefur hann barist við kerfið. Sviðsett brott­kast vakti lands­at­hygli. Sjö árum eftir gjald­þrot var enga vægð að fá og hann settur í fang­elsi vegna vörslu­gjalda.

Dvölin í fang­els­inu er það þung­bærasta sem ég hef gengið í gegnum í líf­inu. Fang­elsið á Akureyri er ein­hver ömur­leg­asti staður sem ég get hugsað mér,“ segir Níels Ársæls­son, 55 ára fyrr­ver­andi útgerð­ar­maður og skip­stjóri frá Tálkna­firði, sem lauk afplánun vegna vörslu­gjalda fyrir tæpu ári síðan. Mörgum árum eftir brotið var hann skyndi­lega læstur inni með nauðgurum og morð­ingjum í fang­els­inu á Akureyri. Hann hefur síð­ustu 35 ár staðið í slags­málum við kerfið. Stundum hefur Níels, sem jafnan er kall­aður Nilli, tapað en jafn­harðan risið upp aftur og tekið nýjan slag. 

Mörg af málum hans hafa vakið þjóð­ar­at­hygli. Rúmlega tví­tugur var hann skip­stjóri á eigin tog­ara og neit­aði að hleypa varð­skips­mönnum um borð. Það var ekki fyrr en búið var að manna fall­byssu skips­ins og beina að skipi hans að hann lét undan þrá­beiðni lög­manns síns að hlýða skip­unum varð­skips­manna. Seinna vakti enn meiri athygli þegar hann sýndi sjón­varps­mönnum brott­kast um borð í Bjarma BA-326. Honum hafði verið lofað trún­aði en skipið þekkt­ist og hann var ákærður fyrir að fleygja 53 fiskum. Málið mark­aði upp­haf þess að Níels lenti í gríð­ar­legum fjár­hags­erf­ið­leikum og end­aði í fang­elsi. Kerfið vildi koma honum í bönd.  

Fátækt í Breiðholti

Í dag rekur hann fisk­búð­ina Sjáv­ar­höll­ina í Hóla­garði ásamt félaga sínum, Hinrik Matth­í­assyni. Í Efra-Breið­holti er fátæktin mikil. Níels þekkir sjálfur örbirgð­ina og hefur samúð með fólk­inu sem bankar bak­dyra­megin hjá fisk­búð­inni til að biðja um gef­ins þunnildi af fiski eða hrygg til að sjóða upp í súpu. 

„Fátæktin hér er meiri og sár­ari en ég held að fólk geri sér grein fyrir. Ég hef mikla samúð með fólk­inu hérna. Þótt ég hafi lengst af búið við allsnægtir í líf­inu komu tímar þar sem fjöl­skylda mín leið mik­inn skort. Ég veit hvernig til­finn­ing það er og gef það sem ég get af fiski sem ekki selst. Og það er oft bankað á bak­dyrnar. Það er mjög sjaldan sem ég þarf að fara með fiskúr­gang héðan. Hér nýtir fólk allt til matar. Taí­lend­ing­arnir sjóða hausa, bein og fiskaf­ganga í súpu og sósur og ná sér þannig í nær­ingu. Það er skömm að því að á Íslandi sé slík fátækt á borð við það sem þarna sést,“ segir Níels.

Bræður dæmdir

Níels losn­aði úr fang­elsi 19. júní 2014 eftir að hafa afplánað síð­ustu mán­uð­ina á áfanga­heim­il­inu Vernd í Reykja­vík. Hann sat inni í fram­haldi þess að útgerð hans og fisk­eld­is­fyr­ir­tæki  á Tálkn­ar­firði fóru í þrot og tug­millj­ónir vörslu­gjalda voru ekki greiddar. Hann og bróðir hans, sem var fram­kvæmda­stjóri beggja félag­anna, voru dæmdir til að greiða rúm­lega 40 millj­ónir króna eða fara að öðrum kosti í fang­elsi. Hann gat engan veg­inn borgað sekt­ina. Það liðu fimm ár frá því dómur féll árið 2006 þar til yfir­völd buðu Níelsi, örfáum dögum fyrir firn­ingu dóms­ins, að gegna sam­fé­lags­þjón­ustu. Þá hófst atburða­rás þar sem póli­tíkusar beittu sér bein­línis gegn því að hann afplán­aði með vinnu. Heima á Tálkna­firði var hann rek­inn úr sam­fé­lags­þjón­ustu við sund­laug­ina. Þar kom við sögu mág­kona hans, Eyrún Ingi­björg Sig­þórs­dóttir, odd­viti Tálkna­fjarð­ar­hrepps. Níels Ársælson, fimm barna faðir og eig­in­maður, var fluttur með lög­reglu­valdi til Reykja­víkur og settur í Hegn­ing­ar­húsið á Skóla­vörðu­stíg. Fjöl­skylda hans var án fyr­ir­vinnu og framundan voru dökkir mán­uðir pen­inga­leysis og þeirra þján­inga sem fylgir fang­elsun. Níels félst á að segja Stund­inni sögu sína. Við hitt­umst í fisk­búð­inni hans í Hóla­garði. Það er fámennt í búð­inni. Við hverfum aftur til upp­hafs fer­ils­ins. 

Uppreisnarmaður
Upp­reisn­ar­maður Níels hefur verið í bar­áttu gegn kerf­inu allt frá því hann var skip­stjóri á tog­ar­anum Einari Bene­dikts­syni BA. Lífs­hlaup hans hefur ein­kennst af átökum vegna kvóta­kerf­is­ins.

Tvítugur skipstjóri

Níels var aðeins tví­tugur þegar hann varð skip­stjóri og fiskaði strax vel. Faðir hans, Ársæll Egilsson, var afla­sæll skip­stjóri og hafði kennt syni sínum eitt og annað. Níels var gríð­ar­lega metn­að­ar­fullur og fór fljót­lega í eigin útgerð. Fyrsti bát­ur­inn hans var Sæhrímnir, sem hann keypti frá Þingeyri. Sá bátur var fljót­lega dæmdur í úreld­ingu. Þá keypti hann Fálkann frá Vest­manna­eyjum, 59 tonna bát. Veið­arnar gengu vel en svo kom reið­arslagið 19. sept­em­ber 1981. 

„Við vorum á leið um Látr­a­röst í ofsveðri að koma úr róðri þegar við fengum á okkur heift­ar­legan brot­sjó. Það kom leki að bátnum og við sendum út neyð­ar­kall. Okkur tókst að sigla út úr röstinni og suður fyrir Bjarg­tanga inn í Keflavík. Það vildi okkur til happs að tog­ar­inn Ingólfur GK var í grennd við okkur og kom siglandi og beið átekta. Við vorum að bíða eftir varð­skipi með dælur. Þetta horfði mjög illa og stöðugt kom meiri sjór í skipið. Áhöfnin var í miklum háska og ég sendi þrjá menn og skips­hund­inn yfir í Ingólf með gúmm­báti. Skömmu síðar fór Fálkinn á hlið­ina. Ég og stýri­mað­ur­inn, Ólafur Ingi­mars­son, sem vorum eftir í bátnum, komumst út um brú­ar­glugga og biðum hjálpar, sitj­andi á kili. Við komumst svo um borð í Ingólf. Þarna hefði ekki mátt neinu muna. Þetta var nán­ast krafta­verk þar sem allt þurfti að ganga upp,“ segir Níels. 

Eftir björg­un­ina byrj­aði Níels strax að huga að nýju skipi. Því fór víðs fjarri að háskinn í Látr­a­röst sæti í honum. 

„Ég vildi kom­ast sem fyrst á sjó­inn aftur. Á þessum tíma kunni ég ekki að hræð­ast. Ég var ungur og vit­laus. Strax eftir slysið byrj­aði ég að líta í kringum mig eftir nýju skipi,“ segir Níels. 

Togarakaup

Níels setti sig í sam­band við Benedikt Sveins­son, lög­mann og Engeying, sem þá rak skipa­sölu og varð seinna einn af umsvifa­mestu mönnum íslensks athafna­lífs. Níels var með hug­mynd um að kaupa tog­ara. Hann fékk Bjarna V. Magn­ús­son, for­stjóra Íslensku umboðs­söl­unnar, í lið með sér og það var stofnuð útgerð sem Níels og félagar áttu 75 pró­senta hlut í á móti 25 pró­sentum Íslensku umboðs­söl­unnar. 

Eftir að Íslend­ingar færðu út fisk­veiði­lög­sög­una sátu Eng­lend­ingar uppi með fjöld­ann allan af tog­urum sem engin verk­efni voru fyrir. Benedikt og Níels brugðu sér til Bret­lands til að skoða skip. 

„Þegar við hittum for­stjóra breska útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Boston Deep Sea ltd, benti hann yfir flot­ann sem lá bund­inn í höfn­inni í Lowestoft. Þetta voru 80 skip. Hann sagði mér að velja hvert þeirra sem ég vildi. Ég valdi mér skip sem var aðeins átta ára gam­alt. Umsamið kaup­verð var 300 þús­und pund sem var hrakvirði,“ segir hann.  

Níels taldi úti­lokað að hann fengi lán til kaupanna frá Fisk­veiða­sjóði. Ástæðan var sú að þar réði Land­sam­band íslenskra útgerð­ar­manna miklu. 

„Menn þurftu að vera inn­múr­aðir til að fá lán. Ég stakk upp á því við Benedikt að við fengjum lán í breskum banka til kaupanna. Hann horfði á mig hissa og taldi það vera úti­lokað. Ég benti honum á þann mögu­leika að breska útgerðin tæki lánið og fram­seldi okkur. Það gekk allt upp og við fengum erlent lán frá Lloyds Bank of London með skip­inu,“ segir Níels. 

Ráðherrakaup

Enn var þó langt í land með að klára kaupin að fullu. Níels þurfti að fá leyfi lang­tíma­lána­nefndar í gegnum við­skipta­ráðu­neytið þar sem fram­sókn­ar­mað­ur­inn og ráð­herr­ann, Tómas Árnason, réði ríkjum. 

„Við höfðum leitað til for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, Stein­gríms Her­manns­sonar, sem var þing­maður okkar og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Þetta þvæld­ist eitt­hvað fyrir Tómasi, sem var þing­maður Aust­firð­inga, og hann taldi frá­leitt að hann væri að tryggja þessi skipa­kaup fyrir útgerð vestur á fjörðum. Svo féllst hann á þetta gegn því að Aust­firð­ingar fengju skip á sömu kjörum. Það varð úr að svipað stórt skip var keypt til Breið­dals­víkur. Þegar ég stóð í þessu brasi öllu saman sá ég ekki fyrir þær ofsóknir og öll þau læti sem átti eftir að verða í kringum útgerð­ina,“ segir Níels. 

Steingrímur „plataður“

Eftir að kaupin á breska tog­ar­anum voru ráðin var komið að því að gefa skip­inu nafn. Þar dugði ekk­ert minna en þjóð­skáldið og athafna­mað­ur­inn Einar Bene­dikts­son sem birt­ist Níels í draumi. Togarinn fékk nafn hans, og hét Einar Bene­dikts­son BA 377. Níels og hans menn voru bjart­sýnir þegar siglt var af stað til Íslands. En það átti mikið eftir að ganga á í sögu útgerð­ar­innar. Bjart­sýnin sem réði ríkjum á heim­leið­inni reynd­ist vera byggð á ósk­hyggju. Þær reglur voru í gildi á þessum tíma að ekki mátti flytja inn fiski­skip til Íslands nema sam­bæri­legt skip hyrfi úr rekstri. 

„Það varð úr þessu mikið hneyksli þegar Stein­grímur Her­manns­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra sagð­ist hafa verið plat­aður til að leyfa mér að koma með skipið. Þá hafði komið á dag­inn að það vant­aði upp á að það væri tonn á móti tonni til að full­nægja reglum um að ég mætti flytja inn skipið. Ég hafði gefið upp eldri mæl­ingu vegna Sæhrímnis sem leiddi af sér að það vant­aði nokkur tonn upp á. En þarna fékk ég strax aðra útgerð­ar­menn upp á móti mér. Augu Krist­jáns Ragn­ars­sonar, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra LÍÚ, beindust að mér. Ára­tuga­langt stríð þeirra við mig hófst,“ segir Níels. 

Afinn
Afinn Hér er Níels með tveimur af barna­börnum sínum, Tristan Erni og Alex­ander Hrafni Ársæls­sonum.

Tekinn af varðskipi

Eftir heim­kom­una til Íslands hófst strax und­ir­bún­ingur til að fara á veiðar. Það var mik­ils virði að geta veitt upp á grunn­slóð, inni í svoköll­uðum hólfum. Þar giltu ákveðnar reglur um stærð skipa og afl véla þeirra. Vél Einars Bene­dikts­sonar hafði verið mæld 910 hest­öfl þegar dælur og bún­aður var kom­inn við hana. Aftur á móti var hún yfir 1000 hest­öfl á gólfi verk­smiðj­unnar sem fram­leiddi hana en þá var eng­inn bún­aður við hana. Út frá þessu gekk Níels þegar hann hóf veiðar inni í hólfi út af Vík í Mýrdal. 

„Ég taldi mig hafa fullan rétt á að veiða upp að 4 sjó­mílum þar sem vélin væri innan við 1000 hest­öfl. Þessu var Sigl­inga­mála­stofnun ósam­mála og sendi Land­helg­is­gæsl­una til að stöðva mig. Ég var í mokveiði þegar flug­vélin kom og kall­aði mig upp og fyr­ir­skip­aði mér að hætta veiðum og halda þegar til hafnar. Ég þvertók fyrir það og sagð­ist vera í fullum rétti. Flug­vélin sveim­aði yfir mér í tvo tíma og þeir reyndu að fá mig til að hætta veiðum. Ég gaf mig ekki. Þá gáfust þeir upp og köll­uðu til varð­skip,“ segir Níels. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár