Ung kona vaknaði ekki á aðfangadag - safnað fyrir fjölskylduna

Fjöl­skylda Ástrósar Kristrún­ar­dóttur náði ekki að vekja hana á aðfanga­dags­morgun. Aðstand­endur fjöl­skyld­unnar og Ástrósar hafa stofnað til söfn­unar henni til hjálpar.

Ung kona vaknaði ekki á aðfangadag - safnað fyrir fjölskylduna

Ung kona, Ástrós Kristrún­ar­dóttir, lést á aðfanga­dag, í blóma lífs­ins. Ástrós var aðeins 22 ára gömul. Fjöl­skylda hennar náði ekki að vekja hana um  morg­un­inn.

Safnað er fyrir fjöl­skyldu Ástrósar til þess að hjálpa henni með kostnað vegna jarð­ar­farar og afleið­inga áfalls­ins af miss­inum. Í sam­tali við Stundina segir frænka Ástrósar, Sólveig Harpa Helga­dóttir, að Ástrós hafi verið elskuð af fjöl­skyldu sinni. Fjöl­skyldan þarfn­ist nú stuðn­ings.

„Elsku Ástrós. Unga og fal­lega frænka okkar lést á aðfanga­dag. Sorgin og sökn­uð­ur­inn er mik­ill fyrir fjöl­skyldu hennar og vini,“ segir Sólveig Harpa í Facebook-færslu. „Þetta er erf­iður tími fyrir þennan hræði­lega missi því langar mig, fyrir hönd stór­fjöl­skyld­unnar, að setja af stað söfnun fyrir fjöl­skyldu hennar sem nú þarf að und­ir­búa jarð­ar­för og erfi­drykkju fyrir stóran fjölda fólks sem vill kveðja þessa ást­kæru, ynd­is­legu og lit­ríku stelpu sem fór alltof fljótt frá okkur.“

Vinkona Ástrósar lýsir einnig eftir stuðn­ingi fyrir fjöl­skyldu hennar í Facebook-hópnum Góða systir.

Ástrós var fædd 24. júlí 1994.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár