Safna fyrir ungri móður sem lenti í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut

Vinir og vanda­menn Krist­ínar Geirs­dóttur, sem slas­að­ist alvar­lega í bílslysi á Reykja­nes­braut­inni í októ­ber, standa nú fyrir söfnun handa fjöl­skyld­unni. Kristín var í fæð­ing­ar­or­lofi þegar slysið varð, en hún og mað­ur­inn hennar, Sveinn Ingi Bjarna­son eiga þriggja mán­aða gamlan son.

Safna fyrir ungri móður sem lenti í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut

Söfnun er hafin fyrir Kristínu Geirs­dóttur, sem slas­að­ist alvar­lega í bílslysi á Reykja­nes­braut­inni þann 17. októ­ber síð­ast­lið­inn. Kristín var í fæð­ing­ar­or­lofi þegar slysið varð en hún og mað­ur­inn hennar, Sveinn Ingi Bjarna­son, eiga þriggja mán­aða gamlan son, Leonard Aaron. 

Fjölskyldan
Fjöl­skyldan Kristín og Sveinn Ingi ásamt Leonard Aaroni.

„Hún meidd­ist mjög alvar­lega og lá á gjör­gæslu í fimm daga. Kristín bein­brotn­aði víðs­vegar um lík­amann, fékk mar á lungu og skurði í and­lit. Hún fór í stórar aðgerðir og þarf nú aðstoð við flestallar athafnir dag­legs lífs. Ljóst er að margra mán­aða end­ur­hæf­ing er framundan,“ segir í færslu sem Erla Dögg Krist­jáns­dóttir, vin­kona Krist­ínar, deilir á Facebook. 

„Álagið er mikið á litlu fjöl­skyld­unni um þessar mundir, jafnt and­legt sem fjár­hags­legt. Til að mæta tekju­tapi og óvæntum útgjöldum sem framundan eru hjá Kristínu og fjöl­skyldu hennar höfum við vinir hennar ákveðið að hefja söfnun til að auð­velda þeim lífið á þessum erf­iðu tímum. Þeir sem vilja styðja við bakið á þeim geta lagt inn á reikn­ing Krist­ínar: 0544-26-006584 kt. 031084-2299,“ skrifar Erla Dögg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár