„Komi nefndin með tillögur um grundvallarbreytingar, þá verða þær einfaldlega stöðvaðar“

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins greina blaða­kon­unni Agnesi Braga­dóttur frá því í nafn­lausum við­tölum að þeir hafi engar áhyggjur af nefnd­inni um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi. Grund­vall­ar­breyt­ingar verði hvort sem er stöðv­aðar á Alþingi.

„Komi nefndin með tillögur um grundvallarbreytingar, þá verða þær einfaldlega stöðvaðar“

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins ætla að koma í veg fyrir hvers kyns grund­vall­ar­breyt­ingar á gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi, óháð því hver nið­ur­staða þverpóli­tískrar nefndar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra verður. Þeir greina frá þessu undir nafn­leynd í við­tali við blaða­kon­una Agnesi Braga­dóttur í Morg­un­blað­inu.

„Menn eru ekk­ert að stressa sig á þessu, því komi nefndin með til­lögur um grund­vall­ar­breyt­ingar, þá verða þær ein­fald­lega stöðv­aðar í þing­inu. Þetta er nú ekki ýkja flókið,“ er haft eftir ónafn­greindum þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík í frétt­inni sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í gær.  

Eins og Stundin greindi frá í fyrra hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þegið meira en 20 millj­ónir frá hand­höfum kvóta á tíma­bil­inu 2013 til 2015. Um er að ræða 28 pró­sent af öllum styrkjum lög­að­ila til flokks­ins. Á sama tíma­bili voru veiði­gjöld styrk­veit­end­anna lækkuð auk þess sem reynt var að úthluta þeim tug­millj­arða mak­ríl­kvóta.

Í síð­ustu viku gekk Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra úr röðum Við­reisnar, frá skipan nefndar til að móta til­lögur um hvernig tryggja megi sann­gjarna gjald­töku fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni.

Nefndin er skipuð sam­kvæmt til­nefn­ingum allra stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á Alþingi og mun skila til­lögum til ráð­herra í formi laga­frum­varps ekki seinna en 1. des­em­ber næst­kom­andi.

Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun gegna for­mennsku í nefnd­inni. Eins og Stundin fjall­aði um í síð­ustu viku hefur Þor­steinn, á tíma­bil­inu 1996 til 2012, ítrekað varað við gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi og meðal ann­ars talað gegn því að tekið sé upp veiði­leyfa­gjald eða auð­linda­skattur á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Þegar rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Stein­gríms J. Sig­fús­sonar lagði fram frum­varp til laga um veiði­gjöld í mars 2012, full­yrti Þor­steinn að ef lögin yrðu að veru­leika myndu flest útgerð­ar­fyr­ir­tæki á Íslandi leggja upp laupana.  Þá hefur hann lagst gegn upp­boði afla­heim­ilda, en upp­boðs­leið í sjáv­ar­út­vegi var á meðal helstu kosn­inga­lof­orða Við­reisnar í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga. 

Að því er fram kemur í frétt Agnesar Braga­dóttur í Morg­un­blað­inu eru þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins óánægðir með að Viðreisn eigi tvo full­trúa í nefnd­inni en aðrir flokkar aðeins einn. Hins vegar hafa þing­menn­irnir litlar áhyggjur, enda telja þeir ólík­legt að neitt komi út úr starfi nefnd­ar­innar sem byggj­andi verði á. 

Eft­ir­far­andi er haft eftir þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins: „Ef þessi svo­kall­aða þverpóli­tíska nefnd skilar frum­varpi sem felur í sér bylt­ing­ar­kenndar breyt­ing­ar­til­lögur sem grafa undan góðu sjáv­ar­út­vegs­kerfi okkar, þá verður það frum­varp ein­fald­lega stöðvað á Alþingi og þar munu Sjálf­stæð­is­flokkur og örugg­lega Fram­sókn­ar­flokkur og fleiri ná saman. Við látum ekki eyði­leggja gott kerfi, þótt við séum vissu­lega opnir fyrir ein­hverjum breyt­ingum, svo sem á reglum um fram­sal og veiði­skyldu.“

„Þá verður það frum­varp ein­fald­lega stöðvað á Alþingi og þar munu Sjálf­stæð­is­flokkur og örugg­lega Fram­sókn­ar­flokkur og fleiri ná saman“

Fram kemur að fleiri þing­menn flokks­ins séu á sama máli og hafi efa­semdir um að nokkuð raun­hæft komi út úr störfum nefnd­ar­innar. Þess vegna hafi þeir litlar áhyggjur af því hvernig hún er mönnuð. „Komi nefndin með til­lögur um grund­vall­ar­breyt­ingar, þá verða þær ein­fald­lega stöðv­aðar í þing­inu,“ full­yrðir ónafn­greindur þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins úr Reykja­vík. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins úr Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum eru þau Guð­laugur Þórð­ar­son, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Birgir Ármanns­son, Brynjar Níelsson, Sigríður Á. Andersen og Hildur Sverr­is­dóttir. 

Þingmenn úr hinum stjórn­ar­flokk­unum hafa talað á þá leið að þeir bindi miklar vonir við störf hinnar þverpóli­tísku nefndar um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi. Þannig hefur t.d. Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, lagst gegn upp­boði við­bót­ar­kvóta á þeirri for­sendu að slíkt kunni að trufla vinnu nefnd­ar­innar. „Ég ótt­ast að þessi inn­grip í þetta afla­hlut­deild­ar­kerfi gæti haft nei­kvæð áhrif á þá vinnu sem er að fara í gang í þessum töl­uðu orðum og ég bind svo miklar vænt­ingar við,“ sagði hún í umræðum á Alþingi þann 3. maí. „Ég trúi því að sú vinna skili nið­ur­stöðum sem hafi lang­tíma­hags­muni í huga. Ég nýt þess að vera full­trúi Við­reisnar í nefnd­inni. Ég hlakka til vinn­unnar. Ég mun í anda Við­reisnar halda þar á lofti sjón­ar­miðum um útboðs­leið­ina.“ 

„Ég trúi því að sú vinna skili nið­ur­stöðum
sem hafi lang­tíma­hags­muni í huga“

Frétt Agnesar Braga­dóttur og ummæli þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins báru á góma í Silfrinu í morgun. Karl Pétur Jónsson, aðstoð­ar­maður Þor­steins Víglunds­sonar félags­mála­ráð­herra, sagð­ist ekki hafa neinar áhyggjur af þeim upp­lýs­ingum sem þar komu fram. 

Frétta­mað­ur­inn Kristinn Hrafns­son sagði hins vegar að ummæli þing­mann­anna hefðu afhjúpað skipun nefnd­ar­innar sem sýnd­ar­gjörn­ing. Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, hefur tekið sama pól í hæð­ina. „Það kemur ekki til greina að auka gjald­töku fyirr afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins munu stöðva það og segj­ast treysta á Fram­sókn­ar­flokk­inn og „fleiri“ til að tryggja þá nið­ur­stöðu. Þeir hafa engar áhyggjur af mál­inu. Skipun nefnd­ar­innar er því leik­sýn­ing og aldrei hefur staðið til að auka gjald­töku af fisk­veiði­auð­lind­inni,“ skrif­aði hann á Facebook í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár