Bóndinn Ragna Aðal­steins­dóttir, 91 árs bóndi á Lauga­bóli, sem er síð­asti bær­inn í dalnum. Hún er sátt við sitt og ekk­ert á förum. Mynd: Róbert Reynisson

„Ég ætla að verða 100 ára”

Ragna Aðal­steins­dóttir, bóndi á Lauga­bóli, sinnir búi sínu þótt hún sé 91 árs. Hú hefur lifað meiri raunir en flestir. Tvö af þremur börnum fór­ust. Missti einnig tvö barna­börn. Þá hefur hún séð á bak nánum vinum. Hún lá lær­brotin úti í sex tíma um hávetur. Bjarg­vættur hennar fórst skömmu síðar.

Ég fer ekki héðan af sjálfs­dáðum. Ég læt frekar flæma mig í burtu,“ segir Ragna Aðal­steins­dóttir, 91 árs bóndi á Lauga­bóli í Laug­ar­dal.

Bærinn hennar Rögnu er síð­asti bær­inn í dalnum. Þar sem áður var blóm­leg byggð eru nú allir bæir í eyði nema Laugaból. Síðast fóru Hrafna­björg í eyði þegar Sigurjón bóndi Sam­ú­els­son brá búi og fór á elli­heim­ili fyrir tæpum tveimur árum.

Þegar við rennum í hlað á Lauga­bóli blasir við að snyrti­mennska er í fyr­ir­rúmi. Á meðan ill­gresið leggur undir sig jarð­irnar í kring er Ragna með skrúð­garð á hlað­inu. Hann heitir Bjarka­lundur eftir syni hennar heitnum. Og með­fram sól­pall­inum við íbúð­ar­húsið vaxa skraut­blóm. Á hlað­inu eru trakt­orar og hey­vinnslu­tæki sem líta út eins og ný. Varla er að sjá rispu á lakki. Laugaból er dálítið eins og vin í eyði­mörk.

Áður hafði verið eins konar fjar­bú­skapur á Birnu­stöðum, hinum nágranna­bænum, en þar gáfust menn svo upp og hurfu á braut. Óræktin tók yfir. Rögnu leist reyndar aldrei á þá búskap­ar­hætti að koma aðeins á nokk­urra daga fresti til að gefa kind­unum. Hún vill vera nálægt sínum kindum. Ragna er ekki með nein áform um að skera niður bústofn­inn. Hún er með rúm­lega 150 kindur.  

Bölvuð tófan

„Búskap­ur­inn hefur gengið vel þrátt fyrir bölv­aða tóf­una sem á það til að leggj­ast á féð. Nýlega drap tófa fyrir mér full­orðna kind með því að bíta framan af snoppu hennar. Önnur kind drukkn­aði í ánni en lömbin hennar tvö lifðu af. Mig grunar að hún hafi verið að verja lömbin sín fyrir dýr­bítnum og dottið aftur fyrir sig í ána. Lömbin lifðu af þannig að henni hefur tek­ist að verja þau. Það er mikið af tófu hér í nágrenn­inu. Þetta svæði heyrir undir refa­skyttu á Hólmavík sem kemst engan veg­inn yfir það allt. Því fjölgar tóf­unni. Það sést varla kind lengur í heima­land­inu. Þær eru flúnar í burtu undan refnum,“ segir Ragna.

Hún er lítið hrifin af þeirri vernd­ar­starf­semi sem á sér stað varð­andi tóf­una. Í Súðavík er Mel­rakka­setur Íslands þar sem tóf­unni er hampað.

„Það er algengt að aka fram á minka og refi á leið­inni til Ísa­fjarðar. Og ástandið versnar eftir því sem nær dregur Súðavík. Á Mel­rakka­setr­inu hafa menn haldið villt dýr, sem er bannað sam­kvæmt lögum. Dæmi er um að dýr hafi verið sótt í Heydal og haldið á Mel­rakka­setr­inu yfir sum­arið en síðan sleppt aftur. Þessi dýr sækja svo inn fyrir girð­ingar. Þegar búið er að kappala dýr þurfa þau að bjarga sér ein­hvern veg­inn. Þá er stutt í að þau sæki í fé,“ segir Ragna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár