Barátta á göngu­stígunum: „Þetta kom eins og massíf skriða“

Lög­reglan varar við hjól­reiða­mönnum í keppn­is­skapi á göngu­stígum borg­ar­innar. 67 ára gam­all maður, Eiríkur Ein­ars­son, lenti í stymp­ingum við hóp sport­hjól­reiða­manna á gang­stíg á Sel­tjarn­ar­nesi.

Barátta á göngu­stígunum: „Þetta kom eins og massíf skriða“
Eiríkur Ein­ars­son Eiríkur var á kvöld­göngu með vin­konu þegar hann lenti í stymp­ingum við flokk hjól­reiða­manna sem kom á miklum hraða. Mynd: Kristinn Magnússon

Eiríkur Ein­ars­son, 67 ára gam­all maður á Sel­tjarn­ar­nesi sér eftir því að hafa misst stjórn á skapi sínu á göngu­stíg á Sel­tjarn­ar­nesi á dög­unum þegar með­limir í hópi hrað­skreiðra hjól­reiða­manna rák­ust utan í hann.

Eiríkur Ein­ars­son var á rólegri kvöld­göngu ásamt vin­konu við sjáv­ar­síð­una þegar hann lenti í átök­unum. Aðal­varð­stjóri hjá lög­regl­unni segir að hags­muna­á­rekstrum hjólandi og gang­andi á stígum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins fari fjölg­andi og að hjól­reiða­menn í óhóf­legum keppn­is­ham valdi hættu á stíg­unum.

„Þetta kom fyrir mig eins og massíf skriða sem lenti á mér. Skyndi­lega kom yfir okkur heil skriða af hjól­reið­ar­mönnum á mjög hrað­skreiðum hjólum. Hjól­reið­ar­menn­irnir voru í Tour de France-galla og á milljón króna hjólum,“ segir Eiríkur.

Hjól­reiða­menn sem voru á svæð­inu þegar atvikið átti sér stað lýsa atburð­unum öðru­vísi og kvarta undan því að verða fyrir aðkasti á stígum og götum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár