Ein af hverjum fjórum konum fer ekki í sund vegna slæmrar líkamsmyndar

Dove á Íslandi hrindir af stað her­ferð­inni #Sönn­Feg­urð. Stuðla að bættri lík­ams­mynd kvenna á Íslandi. Vöru­merkja­stjóri gefur lítið fyrir gagn­rýni á tví­skinn­ung snyrti­vöru­fyr­ir­tæk­is­ins.

Ein af hverjum fjórum konum fer ekki í sund vegna slæmrar líkamsmyndar

Snyrti­vöru­fyr­ir­tækið Dove á Íslandi hrinti í dag af stað her­ferð­inni #Sönn­Feg­urð en mark­mið þess er að stuðla að bættri lík­ams­mynd stúlkna og kvenna á Íslandi. Í fyrsta mynd­band­inu, sem birt var á Facebook-síðu fyr­ir­tæk­is­ins í dag, er tekin fyrir sund­menn­ingin á Íslandi. „Sundið er rót­gróið í hugum okkar allra. Við höfum sund­laugar út um allt land, heitt vatn og allir fara í sund. En út frá þess­ari könnun sem við gerðum þá sýndi það sig að ein af hverjum fjórum stúlkum á aldr­inum 18 til 25 ára, eða 25%, fer ekki í sund vegna slæmrar lík­ams­myndar. Þetta voru mjög slá­andi nið­ur­stöður,“ segir Brynja Georgs­dóttir, vöru­merkja­stjóri Dove, í sam­tali við Stundina.

 

 

 

Dove spurði stúlkur í 7 ára bekk um hvaða til­finn­ingar það vekur þegar spurt er um sund­ferðir. Konur á háskóla­aldri voru síðan spurðar sömu spurn­ingar og svörin voru tölu­vert ólík. Sjö ára hugsa stelpur um að synda, fara í renni­braut­ina og hafa gaman með vin­konum sínum. Háskóla­stelp­urnar höfðu hins vegar áhyggjur af lík­ama sínum. „Eins og mér finnst gott og þægi­legt að liggja í heita pott­inum þá er samt alltaf hnútur í mag­anum,“ segir ein þeirra. „Ég hef alveg sjáf­s­traust, en það er eins og það klæð­ist ein­hvern veg­inn af mér á sama tíma og ég klæði mig úr föt­unum í klef­anum.“

„Ég hef alveg sjáf­s­traust, en það er eins og það klæð­ist ein­hvern veg­inn af mér á sama tíma og ég klæði mig úr föt­unum í klef­anum.“

Halda námskeið í menntaskólum

„Við erum að fara svip­aða leið og Dove hefur gert víða erlendis með því að horfa meira til sam­fé­lags­ins,“ segir Brynja. Fyr­ir­tækið leggur verk­efn­inu lið með fjár­fram­lagi en með kaupum á hverri Dove vöru renna átta krónur í sjóð sem er ætlað er að vinna að bættri lík­ams­mynd stúlkna á Íslandi. Sjóð­ur­inn mun meðal ann­ars fjár­magna nám­skeið sem haldin verða af Sigrúnu Dan­í­els­dóttur sál­fræð­ingi, og öðru fag­fólki, í mennta­skólum hér á landi. „Við sjáum fram á að við getum byrjað með þessi nám­skeið í haust. Þá heldur hún nám­skeið með hóp af stelpum en það hefur sýnt sig að eftir svona nám­skeið að bæði þessi hugsun inn á við og lík­ams­virð­ing eflist mikið,“ segir Brynja. 

Tvískinnungur snyrtivörufyrirtækis

Her­ferðir Dove á heims­vísu hafa löngum verið gagn­rýndar. Bent hefur verið á að fyrst og fremst séu þetta aug­lýs­inga­her­ferðir sem bein­ast einmitt að því að fá konur til þess að kaupa sér snyrti- og fegr­un­ar­vörur. Sigrún Dan­í­els­dóttir er meðal þeirra sem hefur bent á þennan tví­skinn­ung, en í pistli frá árinu 2013 segir hún: „Sumum fannst fárán­legt að snyrti­vöru­fyr­ir­tæki héldi á lofti boð­skap um heil­brigða lík­ams­mynd þegar það er á sama tíma að við­halda þeirri hug­mynd að hlut­verk kvenna sé að vera fal­legar. Aðrir fögn­uðu því ein­fald­lega að millj­ónir kvenna, sem fá almennt aðeins þau skila­boð frá aug­lýsendum að þær séu ómögu­legar – en geti bætt úr því með því að kaupa réttu vör­una – fái nú loks að heyra að þær séu í lagi eins og þær eru. Aug­lýs­ingar hafa mikil áhrif og það sé nú betra að áhrifin séu upp­byggj­andi frekar en nið­ur­ríf­andi.“

„Þá má kannski alltaf gagn­rýna það hvað vöru­merkið er að gera en við erum að leggja mál­efn­inu gott lið.“ 

Brynja vill ekki taka afstöðu til þess­arar gagn­rýni þegar blaða­maður bendir henni á tví­skinn­ung­inn, en bendir á að vöru­merkið sem slíkt sé að setja fjár­magn í mjög gott mál­efni. „Þá má kannski alltaf gagn­rýna það hvað vöru­merkið er að gera en við erum að leggja mál­efn­inu gott lið,“ segir hún. 

Þess má einnig geta að Unilever, móð­ur­fyr­ir­tæki Dove á heims­vísu, á fleiri snyrti­vöru­fyr­ir­tæki – þar á meðal Axe sem selur snyrti­vörur fyrir karla. Aug­lýs­ingar Axe hafa verið gagn­rýndar fyrir að ýta undir kynja­stað­al­myndir og við­halda þannig vanda­mál­inu sem Dove aug­lýs­ing­arnar eiga að vinna gegn. Hér fyrir neðan má sjá eina slíka aug­lýs­ingu. 

„Dove er vöru­merki. Hvaða móð­ur­fyr­ir­tæki á það og hvað móð­ur­fyr­ir­tækið gerir með önnur vöru­merki er ekki það sem maður á að horfa á,“ segir Brynja og bendir á að eign­ar­hald vöru­merkj­anna sé flókið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
6
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár