Fylgi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar minnkar en Vinstri græn og Viðreisn bæta við sig

Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn tapa fylgi milli mán­aða. Píratar, Sam­fylk­ing, Mið­flokkur og Flokkur fólks­ins standa nán­ast í stað en Vinstri græn og Viðreisn bæta við sig fylgi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 20,2 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun MMR sem birt var í dag og er sem fyrr stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt mæl­ingum. Þetta er samt sem áður næst minnsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með í könn­unum MMR það sem af er kjör­tíma­bili. Lægst mæld­ist fylgi hans í nóv­em­ber 2018, eða 19,8 pró­sent. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins minnkar um 2,3 pró­sentu­stig milli mán­aða. Flokk­ur­inn fékk 25,2 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í októ­ber 2017.

Sam­fylk­ingin er næst stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt MMR með 14,1 pró­sent fylgi, sem er nán­ast sama fylgi og flokk­ur­inn mæld­ist með fyrir mán­uði, þegar það var 14,3 pró­sent. Sam­fylk­ingin fékk 12,1 pró­sent fylgi í kosn­ing­unum 2017.

Vinstri græn end­ur­heimta stöðu sína sem þriðji stærsti flokkur lands­ins, þótt þau deili því sæti með öðrum, og mæl­ast nú með 13,4 pró­sent fylgi og bæta við sig 3,3 pró­sentu­stigum milli mán­aða. Fylgi flokks­ins hefur ekki mælst meira frá því í maí í fyrra, eða í eitt ár. Vinstri græn eru þó enn tölu­vert frá kjör­fylgi sínu, sem var 16,9 pró­sent.

Píratar mæl­ast með jafn mikið fylgi og Vinstri græn. Það er nán­ast sama fylgi og flokk­ur­inn fékk í síð­ustu könnun, og 4,2 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2017.

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins heldur áfram að dala hægt og rólega eftir að hafa tekið kipp upp á við í kjöl­far Klaust­ur­máls­ins. Nú segj­ast 9,8 pró­sent lands­manna að þeir myndu kjósa flokk­inn sem er 1,4 pró­sentu­stigum færri en fyrir mán­uði síðan og tæpu pró­sentu­stigi minna fylgi en í síð­ustu kosn­ingum.

Mið­flokk­ur­inn kemur á hæla Fram­sókn­ar­flokks­ins með 9,2 pró­sent fylgi sem er nákvæm­lega sama hlut­fall og sagð­ist fylgja flokknum að málum fyrir mán­uði síðan, en 1,7 pró­sentu­stigi frá kjör­fylgi hans.

Viðreisn mælist nú jafn stór og Mið­flokk­ur­inn hjá MMR með 9,2 pró­sent fylgi, sem er 1,4 pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu mæl­ingu og 3,5 pró­sentu­stigum meira en í kosn­ing­unum 2017.

Flokkur fólks­ins myndi rétt sleppa yfir fimm pró­sent þrösk­uld­inn, og inn á þing, ef kosið yrði núna með 5,1 pró­sent fylgi. Það er nán­ast sama fylgi og hann mæld­ist með síð­ast en 1,8 pró­sentu­stigi undir árangri flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum.

Sós­í­alista­flokkur Íslands heldur áfram að mæl­ast ágæt­lega og er nú með 4,2 pró­sent fylgi, sem er 1,4 pró­sentu­stigi meira en í könnun MMR sem birt var í apríl.

Stuðningur við ríkisstjórn 40 prósent

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er 43,4 pró­sent og dregst saman 2,4 pró­sentu­stig milli mán­aða. Alls hafa Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Framsókn tapað 9,4 pró­sentu­stigum af fylgi frá síð­ustu kosn­ingum, sam­kvæmt könn­unum MMR.

Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn mæl­ast nú saman með 36,7 pró­sent fylgi í könn­unum MMR en fengu 28 pró­sent í kosn­ing­unum 2017. Fylg­is­aukn­ing Við­reisnar milli mán­aðar hækkar sam­eig­in­legt fylgi þeirra lít­il­lega.

Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins mæl­ast saman með 14,3 pró­sent fylgi hjá MMR, sem er tölu­vert frá þeim 17,8 pró­sentum sem flokk­arnir tveir fengu í síð­ustu kosn­ing­unum.

Eftir að hafa risið á und­an­förnum mán­uðum fellur stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina niður í 40,4 pró­sent í könn­unum MMR. Það er minnsti stuðn­ingur við hana sem mælst hefur á þessu ári.

Munur á könnunum

Athygli vekur að könnun MMR sýnir aðeins aðra stöðu en nýjasta könnun Gallup, sem birt var um helg­ina. Þar mæld­ist sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna aðeins meira, eða 44,9 pró­sent, en staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins (23,5 pró­sent) mælist sterk­ari og fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins (8,0 pró­sent) umtals­vert minna.

[links]Sam­fylk­ingin mælist líka stærri hjá Gallup en MMR (16,2 pró­sent) sem og Viðreisn (11,0 pró­sent) en fylgi Pírata mælist þar minna (11,1 pró­sent).

Fylgi Mið­flokks­ins (8,9 pró­sent) er á mjög svip­uðum slóðum hjá Gallup og MMR en fyrr­nefna fyr­ir­tækið mælir Flokk fólks­ins (4,0 pró­sent) með það lítið fylgi að hann næði ekki inn manni á þing.

Mestu munar þó um mæl­ingu á stuðn­ingi við rík­is­stjórn­ina. MMR mælir hann, líkt og áður sagði, sem 40,4 pró­sent og á nið­ur­leið en Gallup segir hann vera 51,6 pró­sent og á upp­leið.

Í könnun MMR var fram­kvæmdin þannig að ein­stak­lingar eldri en 18 ára voru valdir handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR. Alls svör­uðu 941 könn­un­inni sem var fram­kvæmd 30. apríl til 3. maí 2019.

Nið­ur­stöður Gallup eru úr net­könnun sem fyr­ir­tækið gerði dag­ana 5. til 30. apríl 2019. Heild­ar­úr­taks­stærð var 5.189 og þátt­töku­hlut­fall var 57,7 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár