Þriðji orkupakkinn og kjarasamningar hafa lítil áhrif á fylgi flokka

Engar merkj­an­legar breyt­ingar eru á fylgi stjórn­mála­flokka milli mán­aða, þrátt fyrir að kjara­samn­ingum við rúm­lega helm­ing vinnu­mark­aðar hafi verið lokið og að þriðji orku­pakk­inn hafi átt hið póli­tíska svið vikum saman.

Svo virð­ist sem stór mál sem taka mikið pláss á vett­vangi stjórn­mál­anna, gerð kjara­samn­inga við stærstu verka­lýðs­fé­lög lands­ins og átök um þriðja orku­pakk­ann, hafi lítil sem engin áhrif á fylgi flokka.

Í nýj­ustu könnun Gallup, sem birt var um helg­ina, kemur fram að sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna mælist 44,9 pró­sent, eða 0,7 pró­sentu­stigum minna en fyrir mán­uði. Sam­eig­in­legt fylgi þeirra þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka sem eru fylgj­andi inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans mælist nú 38,3 pró­sent en var 37,8 pró­sent í lok mars.

Fylgi þeirra tveggja flokka á þingi sem eru yfir­lýst á móti þriðja orku­pakk­anum, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins, stendur nán­ast í stað milli mán­aða. Það mælist nú 12,4 pró­sent en var 12,6 pró­sent í síð­ustu mæl­ingu á undan.

Eina mark­verða breyt­ingin sem könnun Gallup sýnir er auk­inn stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina, og þar getur hlut­verk hennar í að loka erf­iðum kjara­samn­ingum hafa verið ráð­andi breyta. Stuðn­ingur við hana mælist nú 51,6 pró­sent og hefur ekki mælst svo hár frá því í júní í fyrra. Aukin stuðn­ing við rík­is­stjórn virð­ist þó ekki skila sér í auknu fylgi við rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þrjá.

Stjórnarflokkarnir tapa en innan skekkjumarka

Nokkur stöð­ug­leiki hefur ríkt í fylgi flokka síð­ast­liðið ár og virð­ist fylgið fyrst og síð­ast fær­ast á milli blokka, form­legra og óform­legra, sem mynd­ast hafa á átta flokka Alþingi. Þó virð­ist vera að atkvæði geti blætt milli Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks ann­ars vegar og Mið­flokks og Flokks fólks­ins hins vegar. Dæmi um það sáust í fyrra­haust.

Fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja: Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, mæld­ist 49,0 pró­sent fyrir ári síðan en mælist nú 44,9 pró­sent.

Munurinn þar á virð­ist að mestu leyti markast á upp­gangi Sós­í­alista­flokks Íslands, sem bauð í fyrsta sinn fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í fyrra og náði inn einum manni. Hann virð­ist að mestu taka fylgi af Vinstri grænum og mælist nú með 3,6 pró­sent fylgi.

Í nýj­ustu könn­un­inni dregst sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja saman um 0,6 pró­sent, sem er innan skekkju­marka. Vinstri græn bæta við sig 1,7 pró­sentu­stigi og myndu fá 13,3 pró­sent atkvæða. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn (23,5 pró­sent) og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn (8,0 pró­sent) tapa hins vegar báðir lít­il­lega fylgi milli kann­ana. Ef áfram fer sem horfir munu stjórn­ar­flokk­arnir þrír eiga í erf­ið­leikum með að end­ur­nýja stjórn­ar­sam­starf sitt.

Mjög stöðugt fylgi miðjuflokka í andstöðu

Sam­eig­in­legt fylgi Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar, þriggja flokka sem vinna umtals­vert saman og hafa for­ystu­menn þeirra hafa ámálgað að ættu að mynda hluta næstu rík­is­stjórnar, virð­ist líka vera afar stöðugt. Það mælist nú 38,3 pró­sent en var 37,8 pró­sent í síð­ustu mæl­ingu á undan, sem er breyt­ing innan skekkju­marka.

Fyrir einu ári síðan var fylgi flokk­ana þriggja 37,4 pró­sent sam­kvæmt mæl­ingum Gallup eða mjög svipað og það mælist nú. Ef kosið yrði í dag það gætu þessir þrír flokkar vel við unað enda mælist sam­eig­in­legt fylgi þeirra 10,3 pró­sentu­stigum hærra en það sem flokk­arnir þrír fengu í kosn­ing­unum haustið 2017.

Sam­fylk­ingin (16,2 pró­sent) mælist stærst flokk­ana þriggja, Píratar (11,1 pró­sent) koma þar á eftir en vart er mæl­an­legur munur á fylgi þeirra og Við­reisnar (11,0 pró­sent).

Hafa misst þriðjung af fylgi sínu

Hinir tveir flokk­arnir í stjórn­ar­and­stöðu, Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins, eiga mun oftar mál­efna­lega sam­leið en aðrir flokkar sem til­heyra henni. Hún hefur birst mjög skýrt í nokkrum málum síð­ustu miss­eri, sér­stak­lega í and­stöðu við þriðja orku­pakk­ann og frum­varp um þung­un­ar­rof.

Þrátt fyrir umtals­verða fyr­ir­ferð þeirra mála sem flokk­arnir leggja mikla áherslu á í umræð­unni þá skilar það þeim ekki neinni fylg­is­aukn­ingu. Sam­eig­in­legt fylgi þeirra tveggja mælist nú 12,4 pró­sent og Flokkur fólks­ins (4,0 pró­sent) myndi ekki ná manni inn á þing ef kosið yrði í dag. Mið­flokk­ur­inn mælist með 8,9 pró­sent fylgi sem undir kjör­fylgi flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum. Í þeim kosn­ingum, sem fram fóru í októ­ber 2017, fengu Flokkur fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn saman 17,8 pró­sent atkvæða. Flokk­arnir tveir hafa því saman tapað um þriðj­ungi atkvæði sinna það sem af er kjör­tíma­bili.

Sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna tveggja er nán­ast það sama nú og það mæld­ist fyrir um ári síðan, í maí 2018, þegar það mæld­ist 12,1 pró­sent.

Klaustur skilaði fylginu til baka til stjórnarflokka

Vendi­punktur varð í íslenskum stjórn­málum með hinu svo­kall­aða Klaust­urs­máli, sem var opin­berað í lok nóv­em­ber í fyrra. Í því voru opin­ber­aðar upp­tökur af drukknu tali sex þing­manna, tveimur úr Flokki fólks­ins og fjórum úr Mið­flokknum, á Klaustur Bar 20. nóv­em­ber 2018 þar sem þeir ræddu meðal ann­ars útdeil­ingu sendi­herra­emb­ætta og póli­tíska greiða ásamt því að ræða með niðr­andi, og á stundum kyn­ferð­is­legum, hætti um aðra stjórn­mála­menn, fatl­aða og sam­kyn­hneigða.

Þegar Klaust­ur­málið varð hafði mælst skriður á fylgi Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins og sam­eig­in­legt fylgi þeirra hafði risið jafnt og þétt í nokkrum könn­unum í röð, mest á kostnað rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Í nóv­em­ber mæld­ist það 18,2 pró­sent, eða rétt yfir kjör­fylgi þeirra. Fylgi Mið­flokks­ins var mun meira á þeim tíma, eða 12 pró­sent, en Flokkur fólks­ins var að mæl­ast nokkuð örugg­lega inni á þingi með 6,2 pró­sent fylgi.

Ljóst er að málið hefur kostað flokk­anna umtals­vert fylgi, eða um þriðj­ung, og lítið virð­ist ganga, að minnsta kosti enn sem komið er, að ná því til baka. Á þessu virð­ast stjórn­ar­flokk­arnir þrír græða en sam­eig­in­legt fylgi þeirra var komið niður í 41,5 pró­sent fyrir Klaust­urs­málið en mælist nú, líkt og áður sagði, 44,9 pró­sent. Auk þess virð­ist hluti fylg­is­ins skila sér til Sós­í­alista­flokks­ins.

Miðju­blokk Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar virð­ist hins vegar ekki verða fyrir neinum telj­andi áhrifum af mál­inu, þrátt fyrir að þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hafi skömmu síðar verið sendur í leyfi fyrir að hafa beitt blaða­mann kyn­ferð­is­legri áreitni og með því brotið siða­reglur flokks­ins. Hann er nú snú­inn aftur til starfa.

Sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna þriggja mæld­ist 38,7 pró­sent áður en að Klaust­urs­málið kom upp en mælist nú, líkt og áður sagði, 38,3 pró­sent sem er munur innan skekkju­marka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár