Arion banki færði niður eignir um 2,1 milljarð

Arion banki hefur þurft að færa niður virði eigna vegna gjald­þrots WOW air og Primera air, sem bæði voru lán­takar hjá bank­anum og eru nú bæði gjald­þrota.

Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni.
Höf­uð­stöðvar Arion banka í Borg­ar­túni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Arion banki færði niður eignir um 2,1 millj­arð króna á fyrri helm­ingi árs­ins 2019. Sú nið­ur­færsla var, sam­kvæmt fjár­festa­kynn­ingu vegna nýjasta upp­gjörs bank­ans, aðal­lega vegna WOW air og TravelCo, félags sem hýsir leif­arnar af starf­semi Primera Air, en bæði félögin, sem voru í miklum við­skiptum við Arion banka, eru farin í þrot.

[links]Arion banki eign­að­ist öll hluta­bréf í TravelCo í júní síð­ast­liðnum. Fyr­ir­tækið var stofnað í kjöl­far falls Primera Air og rekur ferða­skrif­stofur á Íslandi, í Dan­mörku, Sví­þjóð, Nor­egi og Finn­land­i. Arion ætlar sér að reyna að selja það sem allra fyrst. Starf­semi TravelCo á Íslandi hefur farið fram undir merkjum ferða­skrif­stof­anna Heims­ferða og Terra Nova.

Í fjár­festa­kynn­ing­unni segir að þótt ferða­mönnum muni fækka um tæp­lega fimmt­ung frá síð­asta ári þá hafi eyðsla á hvern ferða­mann auk­ist umtals­vert frá gjald­þroti WOW air í lok mars. Bankinn telur nýj­ustu tölur úr ferða­þjón­ust­unni afar jákvæðar fyrir geir­ann og efna­hags­kerfið í heild. Íslenskt efna­hags­líf sé vel í stakk búið til að takast á við þá lend­ingu sem þú á sér stað í ljósi þess að eign­ar­staða gagn­vart útlöndum er jákvæð og skulda­staða kerf­is­ins í heild er sögu­lega lá, jafn hjá opin­bera geir­anum og einka­geir­anum.

Arðsemi eiginfjár slök

Arion banki hagn­að­ist um 2,1 millj­arð króna á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2019. Það er umtals­vert minni hagn­aður en á sama tíma­bili í fyrra þegar hann var 3,1 millj­arður króna. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins nemur hagn­aður bank­ans alls 3,1 millj­arði króna en var fimm millj­arðar króna á sama tíma­bili í fyrra. Þetta kemur fram í hálfs­árs­upp­gjöri Arion banka sem birt var á fimmtu­dag.

[adspot]Arð­semi eigin fjár Arion banka var áfram að vera slök á árs­fjórð­ungn­um, eða 4,3 pró­sent. Hún var 5,9 pró­sent á sama tíma­bili í fyrra en ein­ungis 2,1 pró­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2019. Helsta ástæðan fyrir slakri arð­semi er Valitor, dótt­ur­fé­lag bank­ans sem er til sölu, en arð­semi eigin frá væri 6,6 pró­sent ef Valitor er und­an­skil­ið. Tap Valitor á fyrstu sex mán­uðum árs­ins var 2,8 millj­arðar króna.

Eigið fé bank­ans var 195 millj­arðar króna og eignir þess 1.233 millj­arðar króna í lok árs­fjórð­ungs­ins. Eig­in­fjár­hlut­fallið var því 22,8 pró­sent í lok júní.

Markmiðið tíu prósent arðsemi

Markmið Arion banka er að arð­semi eigin fjár verði tíu pró­sent. Til að ná því mark­miði hefur bank­inn verið að breyta fjár­mögnun sinni með umfangs­mik­illi útgáfu víkj­andi skulda­bréfa, lækkun hluta­fjár með end­ur­kaupum á bréfum hlut­hafa, útgreiðslu arðs, auk­inni áherslu á staf­ræna þjón­ustu og lækkun á rekstr­ar­kostn­aði, en mark­mið bank­ans er að kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans verði undir 50 pró­sent í nán­ustu fram­tíð. Það er nú 54,2 pró­sent.

Þá vill bank­inn selja ýmsar eignir. Á meðal þeirra eru Valitor, Stakks­berg, sem heldur á kís­il­verk­smiðju United Silicon í Helguvík, og áður­nefnt TravelCo.

Bene­dikt Gísla­son, banka­stjóri Arion banka, sagði í til­kynn­ingu til Kaup­hallar að afkoman á árs­fjórð­ungnum hafi ekki verið nógu góð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár