Rafmögnuð spenna fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum

Demókratar hafa lagt áherslu á að fólki nýti kosn­inga­rétt­inn. Repúblikanar horfa til hagtalna og segja; sjáið, okkur gengur vel, kjósið okkur.

Hinar svo nefndu mið­kjör­tíma­bils kosn­ingar (Midterm elections) fara fram á morgun og er óhætt að segja að spennan sé raf­mögnuð. Demókratar hafa lagt meg­in­á­herslu á það að hvetja fólk til að kjósa, enda benda kann­anir til þess að kjör­sókn geti ráðið miklu um það hvernig fer.

Á vissan hátt er þetta fyrsta stóra prófið sem Donald Trump Banda­ríkja­for­seti og Repúblikanar fara í gegnum frá því að Trump tók við stjórn­ar­taumunum sem for­seti í byrjun árs 2017 eftir að hafa verið kos­inn í nóv­em­ber 2016.

Kannanir hafa sýnt að mjótt er á munum víða og því mikil spenna í kort­unum. Kosið er um öll 435 sætin í full­trúa­deild og 35 sæti af 100 í öld­unga­deild­inni.

Samkvæmt spá FiveT­hir­tyEight, sem vinnur spá sína úr fjölda skoð­ana­kann­ana, munu Demókratar að öllum lík­indum vinna slag­inn í full­trúa­deild­inni og ná þar meiri­hluta en Repúblikanar þykja lík­legir til að halda völdum í öld­unga­deild­inni.

Eins og staða mála er nú hafa Repúblikanar meiri­hluta í báðum deildum og hafa því átt auð­veld­ara með að koma málum í gegn, þar á meðal fjöl­mörgum umdeildum stefnu­málum Trumps Banda­ríkja­for­seta.

Öld­unga­deildin er efri deild Banda­ríkja­þings en neðri deildin er full­trúa­deildin. Lög­gjaf­ar­vald­inu í þing­inu eru þannig skipt milli þess­ara deilda. Til að lög telj­ist gild þarf að sam­þykki beggja deilda.

Samhliða kosn­ing­unum verður kosið um ýmis önnur mál í ríkjum Banda­ríkj­anna, svo sem lög­leið­ingu kanna­bis­efna, umhverf­is­skatta, skipu­lags­mál og emb­ætti rík­is­skatt­stjóra í 36 ríkjum. Rík­is­stjórar hafa mikil áhrif og völd, og marka meðal ann­ars kjör­dæma­línur sem munu skipta miklu máli fyrir kosn­ing­arnar 2020.

Mikil spenna er víða, meðal ann­ars í Florída, Texas og Nevada, þar sem mjótt er á munum milli helstu keppi­nauta.

Kosningaþátttaka og konur

Spennan fyrir mið­kjör­tíma­bils kosn­ing­arnar nú snýr ekki síst að kosn­inga­þátt­töku og hvernig mun ganga að fá konur til að mæta á kjör­stað.

Þær eru af mörgum taldar geta ráðið úrslitum um það hvernig fer. Samkvæmt könn­unum eru þær mun lík­legri til að kjósa Demókrata, vítt og breitt um landið, en staðan er þó mis­jöfn eftir ríkjum.

Kannanir hafa verið að sýna stuðn­ing við Trump - sem síðan hefur afger­andi áhrif á það hvernig kosið verður í mið­kjör­tíma­bils­kosn­ing­unum - frá um 49 pró­sent karla en um 32 pró­sent kvenna, af þeim sem gefa upp afstöðu sína. Þessi munur hefur aldrei verið meiri í könn­unum, sem horft til síð­ustu þriggja ára­tuga í Banda­ríkj­unum.

Obama stígur fram

Í ljósi þess hvernig aðdrag­andi þessar kosn­inga hefur verið, þar sem kast­ljósið hefur ekki síst verið á Trump, mál­flutn­ingi hans og stefnu­málum, þá er fast­lega búist við að við­horf kjós­enda almennt til for­set­ans - bæði með og á móti - muni hafa mikil áhrif á útkom­una í kosn­ing­unum.

Barack Obama, fyrr­ver­andi for­seti og for­veri Trumps, hefur stigið inn á svið stjórn­mál­anna á und­an­förnum vikum og farið milli ríkja til að styðja við fram­bjóð­endur Demókrata. Hann sagði í ræðu í Nevada á dög­unum að kom­andi kosn­ingar væru mik­il­væg­ustu kosn­ingar í Banda­ríkj­unum sem núver­andi kyn­slóð Banda­ríkja­manna hefði upp­lifað.

Ef Repúblikanar myndi ná að halda sömu valda­hlut­föllum, myndi klofn­ingur þjóð­ar­innar aukast enn frekar og valda miklum usla. Hann sagði enn fremur, að Trump og Repúblikanar hefðu sýnt að þeim væri ekki treystandi, og það sem nú þegar hefði sést á kjör­tíma­bili Trumps væri bara byrj­unin. „Kjósið, og segið vinum ykkar og nágrönnum að gera það,“ sagði Obama.

Þetta snýst um efnahagsmálin

Repúblikanar - og þá ekki síst Trump sjálfur - hafa lagt mikla áherslu á efna­hags­málin. Hag­töl­urnar eru helstu rök­semdir þeirra, en atvinnu­leysi er nú með allra minnsta móti og mælist 3,7 pró­sent. Þá hefur hag­vöxtur einnig verið við­var­andi nokkuð mik­ill, eða á bil­inu 2,5 til 4 pró­sent, und­an­farin miss­eri. „Hagkerfi okkar hefur aldrei verið betra, aldrei,“ sagði Trump á kosn­inga­fundi í Florida í síð­asta mán­uði. Þessi orð hafa ómað ótt og títt á kosn­inga­fundum Repúblik­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár