Íslensk náttúra komin að þolmörkum - Þjónusta þarf að batna

Í skýrslu um þol­mörk í ferða­þjón­ust­unni segir að rann­sóknir hafi sýnt, um langt ára­bil, að víða sé komið að þol­mörkum þegar kemur að ágangi á ferða­manna­stöðum.

Rann­sóknir haf sýnt, í næstum tvo ára­tugi, að margir vin­sælir ferða­manna­staðir í íslenskri nátt­úru hafa lengi verið undir of miklu álagi og liggja við skemmdum.

Í skýrslu Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ráð­herra ferða­mála, iðn­aðar og nýsköp­unar, er fjallað ítar­lega um stöðu ferða­þjón­ust­unnar í land­inu, og þá ekki síst hvað rann­sóknir sýni, þegar kemur að við­horfi ferða­manna til Íslands sem áfanga­staðar.

Íslensk nátt­úra er það sem dregur ferða­menn til Íslands, að miklu leyti, og segir í skýrsl­unni vís­bend­ingar séu uppi um það, að nátt­úran sé víða fótum troðin. „Það er ein­kenn­andi fyrir nið­ur­stöður hversu við­kvæm íslensk nátt­úra er og hversu illa hún virð­ist þola umferð ferða­manna. Sterkar vís­bend­ingar eru um að nátt­úran sé veikasti hlekk­ur­inn í keðj­unni. Strax um alda­mótin 2000 var þol­mörkum hennar náð í Skafta­felli, á Lónsör­æfum og í Land­manna­laugum þegar umferð ferða­manna var til­tölu­lega lítil miðað við það sem nú er. Alls staðar þar sem þol­mörk nátt­úr­unnar voru rann­sökuð var þol­mörkum náð. Þónokkur frið­lýst svæði og nátt­úru­vætti eru á válista Umhverf­is­stofn­unar yfir svæði í hættu vegna álags ferða­manna. Rann­sóknir á þol­mörkum nátt­úr­unnar hafa m.a. sýnt fram á að gróð­ur­lendi Íslands er mis­á­l­ags­þolið gagn­vart umferð ferða­manna. Gras­lendi er harð­gerð­ast en mos­lendi er við- kvæm­asta gróð­ur­lendið. Upp­lýs­ingar af þessu tagi ber að hafa í huga við skipu­lag og stjórnun ferða­manna­staða,“ segir í skýrslu ráð­herra.

Þá er fjallað um það sér­stak­lega, að rann­sóknir sýni að mikið svig­rúm sé til þess að bæta þjón­ustu, og birt­ist það meðal ann­ars í við­horfskönn­unum ferða­manna.

Það var þing­flokkur Vinstri grænna sem kall­aði eftir skýrslu ráð­herra um þol­mörkin í ferða­þjón­ust­unni. Eins og marg hefur verið fjallað um þá hefur vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ust­unni á Íslandi leitt til alls konar hlið­ar­á­hrifa í sam­fé­lag­inu, sem kalla mætti vaxt­ar­verki. Fjöldi ferða­manna á ári hefur farið úr 450 þús­und árið 2010 í 2,3 millj­ónir í fyrra, og er búist við því að þeim haldi áfram að fjölga, þó hlut­falls­lega muni hægja nokkuð á vext­inum miðað við und­an­farin ár.

Nýlega kynntu íslensk stjórn­völd áform um stór­fellda upp­bygg­ingu og fjár­fest­ingar á ferða­manna­stöðum, vítt og breitt um landið. Samtals voru það fjár­fest­ingar upp á 2,8 millj­arða króna.

Í skýrsl­unni er vöxt­ur­inn á Íslandi settur í alþjóð­legt sam­hengi, og rætt um að hann væri búinn að vera langt yfir alþjóð­legu með­al­tali und­an­farin ár. Samt sem áður er talið að ferða­þjón­usta muni vaxa hratt og mikið á næstu árum á alþjóða­vísu, þar sem fólk sækir ein­fald­lega meira í að ferð­ast en áður. Vaxandi kaup­máttur hjá stórum hópum, ekki síst í Asíu, hefur ýtt undir enn meira mik­il­vægi ferða­þjón­ust­unnar í heim­inum. „Allt bendir til þess að ferða­mönnum haldi áfram að fjölga á heims­vísu næstu ár. Ferða­mála­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna spáir áfram­hald­andi vexti í alþjóð­legum ferða­lögum árið 2018 miðað við 2017 eða um 4–5%.17 Lang­tíma­spá stofn­un­ar­innar gerir ráð fyrir því að árlegur vöxtur verði að með­al­tali um 3,3% fram til árs­ins 2030 og að fjöldi manna sem ferð­ist yfir landa­mæri verði um 1,8 millj­arðar það ár,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár