Lán Gildis til íbúðakaupa tífölduðust frá 2015 til 2018

Gildi hefur mark­visst reynt að hemja aukn­ingu í sjóðs­fé­laga­lánum með því að þrengja láns­skil­yrði. Það virð­ist hafa tek­ist þar sem sjóð­ur­inn lán­aði mjög svipað magn af pen­ingum vegna íbúða­kaupa á fyrstu tíu mán­uðum 2019 og hann gerði á sama tíma í fyrra.


Líf­eyr­is­sjóðnum Gildi hefur tek­ist að hemja útlán sín til íbúða­kaupa á þessu ári með þeim árangri að sjóð­ur­inn lán­aði sjóðs­fé­lögum aðeins lægri upp­hæð á fyrstu tíu mán­uðum þessa árs en á sama tíma­bili í fyrra. Það gerði sjóð­ur­inn með því að þrengja veru­lega á lána­skil­yrðum sínum.

Þetta kom fram i kynn­ingu Árna Guð­munds­sonar, fram­kvæmda­stjóra Gildis, á fundi sjóðs­fé­laga og full­trúa­ráðs líf­eyr­is­sjóðs­ins sem fram fór á mið­viku­dag.

Sjóðs­fé­laga­lán Gildis, sem eru fyrst og fremst til íbúð­ar­kaup­enda, juk­ust mjög skarpt á und­an­förnum árum Í árs­lok 2015 voru þau 2,2 millj­arðar króna en höfðu tífald­ast um síð­ustu ára­mót og voru orðin 22 millj­arðar króna. Þar af bætt­ust 9,2 millj­arðar króna, eða rétt tæpur helm­ingur við­bót­ar­innar, við á árinu 2018. Fjöldi veittra lána jókst líka mjög hratt og fór úr því að vera 230 árið 2015 í að vera 1.366 allt árið í fyrra.

[adspot]Þá greip Gildi í taumanna og þrengdi lána­skil­yrðin sín. Það var gert um síð­ustu ára­mót. Á meðal þess sem Gildi gerði var að lækka veð­hlut­fall sjóðs­fé­lags­lána niður í 70 pró­sent. Það höfðu hinir tveir stóru líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, LSR og líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, gert áður og fyrir vikið jókst ásókn í lán hjá Gildi.

Þessi aðgerð virð­ist hafa virkað til að koma í veg fyrir áfram­hald­andi vöxt. Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2019 hefur Gildi lánað 17,2 millj­arða króna í sjóðs­fé­laga­lán, sem er 200 millj­ónum krónum minna en sjóð­ur­inn gerði á sama tíma­bili í fyrra. Auk þess hefur hann veitt 12 færri lán í ár en á sama tíma­bili í fyrra, eða alls 1.072 tals­ins.

Lægstu vextir sem Gildi býður nú eru á verð­tryggðum breyti­legum lánum, en þeir eru 2,46 pró­sent. Sjö líf­eyr­is­sjóðir bjóða sínum sjóðs­fé­lögum upp á betri vexti en það. Lægstu vext­irnir sem eru í boði í þeim lána­flokki eru hjá Birtu, 1,64 pró­sent, en þar er hámarks­lánið reyndar 65 pró­sent af kaup­verði.

Verzlunarmenn hafa haldið vöxtum óbreyttum í fjóra mánuði

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, hefur líka gripið til aðgerða til að hamla lán­töku hjá sér. Hann hefur nú haldið breyti­legum verð­tryggðum vöxtum sínum óbreyttum frá því í ágúst­byrjun, eða í fjóra mán­uði. Þá var ákveðið að breyta því hvernig vext­irnir væru ákveðnir og fallið frá því að láta ávöxtun ákveð­ins skulda­bréfa­flokks ráða þeirri för. Þess í stað er ein­fald­lega um ákvörðum stjórnar líf­eyr­is­sjóðs­ins að ræða, en ekki hefur verið greint frá því hvort hún byggi á ein­hverju öðru en ein­ungis vilja þeirra sem í stjórn­inni sitja. Frá því í nóv­em­ber 2018 og fram í maí 2019 lækk­uðu breyti­legir verð­tryggðir vextir Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna úr 2,62 pró­sent í 2,06 pró­sent, eða um 0,56 pró­sentu­stig. Þá tók stjórn sjóðs­ins ákvörðun um að frysta þá fram í ágúst og hækka þá svo upp í 2,26 pró­sent, þar sem þeir hafa verið síðan.

Í októ­ber ákvað sjóð­ur­inn svo að breyta lána­reglum sínum þannig að skil­yrði fyrir lán­töku voru veru­lega þrengd og hámarks­fjár­hæð lána var lækkuð um tíu millj­ónir króna. Auk þess var ákveðið að hætta að lána nýjum lán­tak­endum verð­tryggð lán á breyti­legum vöxt­um, en þau hafa verið einna hag­kvæm­ustu lánin sem í boði hafa verið á und­an­förnum árum.

Þetta var gert með þeim rökum að sjóð­ur­inn væri komin út fyrir þau þol­mörk sem hann ræður við að lána til íbúð­ar­kaupa. Frá haustinu 2015 og fram í októ­ber­byrjun 2019 juk­ust sjóðs­fé­lags­lán úr því að vera sex pró­sent af heild­ar­eignum sjóðs­ins í að verða 13 pró­sent. Alls námu sjóðs­fé­laga­lánin um 107 millj­örðum króna í byrjun síð­asta mán­aðar og um 25 millj­arðar króna til við­bótar voru sagðir vera að bæt­ast við þá tölu þegar tekið væri til­lit til fyr­ir­liggj­andi umsókna um end­ur­fjár­mögn­un.

Það voru ein­fald­lega ekki til lausir pen­ingar til að halda áfram á sömu braut og líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefði þurft að losa um aðrar eignir að óbreyttu til að þjón­usta eft­ir­spurn­ina eftir íbúða­lánum. Það var stjórn hans ekki til­búin að gera.

Hægist heilt yfir á útlánum sjóða

Þessar ákvarð­anir stærstu sjóð­anna, sem eru til þess fallnar að hægja á lán­töku hjá þeim, hafa skilað því að ný útlán líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðsl­um, dróg­ust saman um 15 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 miðað við sama tíma­bil í fyrra.

[adspot]Frá byrjun árs og til loka sept­em­ber­mán­aðar 2019 lán­uðu sjóð­irnir 65,9 millj­arða króna til sjóðs­fé­laga, að uppi­stöðu vegna hús­næð­is­kaupa, en á sama tíma­bili 2018 námu útlánin 77,9 millj­örðum króna.

Útlán í sept­em­ber­mán­uði voru 12 pró­sent lægri í ár en í fyrra. Það er þó aukn­ing frá þeirri stöðu sem var uppi í sum­ar, þegar sam­drátt­ur­inn var sem mest­ur. Í júlí, júlí og ágúst 2018 lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir alls 29,8 millj­arða króna til sjóðs­fé­laga sinna. Á sama tíma­bili í ár lán­uðu þeir 21,4 millj­arða króna.

Útlánin dróg­ust því saman um 28 pró­sent milli sumra.

Þrátt fyrir að upp­hæð­irnar sem sjóð­irnir hafa lánað hafi dreg­ist veru­lega saman er fjöldi veittra lána á fyrstu níu mán­uðum árs­ins nán­ast sá sami og hann var á sama tíma­bili í fyrra, eða 5.765. Það eru ein­ungis 14 færri lán en líf­eyr­is­sjóðir lands­ins veittu á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum árs­ins 2018. Með­al­talslán­veit­ing er því að drag­ast veru­lega sam­an. Hún var 13,5 millj­ónir króna í fyrra en er 11,4 millj­ónir króna nú, og 16 pró­sent lægri en á sama tíma­bili í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár