Gera ráð fyrir fundi um aflandsskýrsluna í vikunni

Gert er ráð fyrir því að fundur verði hald­inn í efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis í þess­ari viku til þess að ræða um skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, óskaði eftir því þann 7. jan­úar síð­ast­lið­inn að fundur yrði hald­inn í nefnd­inni vegna máls­ins. Fund­ur­inn hefur hins vegar ekki verið boð­aður.

Katrín segir í sam­tali við Kjarnann að hún muni senda ítrekun um málið í dag, enda sé búið að tefja málið. Upp­haf­lega hafi átt að halda fund­inn síð­ast­lið­inn fimmtu­dag en því var frestað meðal ann­ars vegna þess að óskað var eftir því að fund­ur­inn yrði sendur út í beinni útsend­ingu á vef Alþingis. Það síð­asta sem nefnd­ar­menn hafi heyrt var að fund­ur­inn yrði hald­inn öðru hvoru megin við helg­ina. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist í sam­tali við Kjarnann gera ráð fyrir að fund­ur­inn verði hald­inn í vik­unni, en ekk­ert fund­ar­boð hafi borist.

Búið var að stað­festa að Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, gæti mætt á fund­inn og svarað fyrir skýrsl­una þrátt fyrir að hann sé ekki lengur fjár­mála­ráð­herra.

Logi segir að hann hafi skilið það sem svo að Bjarni muni mæta fyrir nefnd­ina. Fund­ur­inn verði tví­þættur þegar hann verður hald­inn, ann­ars vegar muni Bjarni mæta og svara spurn­ingum um inni­hald skýrsl­unnar og aðdrag­anda birt­ingar hennar, og hins vegar muni skýrslu­höf­undar mæta fyrir nefnd­ina.

Benedikt Jóhann­es­son er ennþá for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar þings­ins, en hann er nú orð­inn fjár­mála­ráð­herra og því þarf að kjósa nýjan for­mann. Tveir full­trúar í nefnd­inni til við­bótar eru orðnir ráð­herrar og munu því einnig víkja úr nefnd­inni, Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra og Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Brynjar Níelsson er vara­for­maður nefnd­ar­innar, en hvorki náð­ist í hann né Gylfa Ólafsson, aðstoð­ar­mann fjár­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár