Undanfarna daga hefur verið mikil umræða á vöntun á jákvæðri umfjöllun um málefni líðandi stundar. Ég er hér mjög sammála þessu að sumu leyti. En það má ekki rugla saman gagnrýnni umræðu um spillingu í þjóðfélaginu og umfjöllun um jákvæða framvildu innan samfélagsins.
[caption id="attachment_12170" align="alignright" width="150"] Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor í Sjálfbærnivísindum við Háskóla Íslands.[/caption]
Tökum sem dæmi ,,positive news” í Bretlandi sem var stofnað eftir því sem ég best veit 2001. Þetta var fyrst einungis prentaður miðill sem nú er einnig hægt að nálgast á netinu. Ég nálgaðist þetta blað á umhverfisráðstefnum og las frá a til ö með mikilli ánægju þegar ég bjó í Bretlandi. Áhersla fréttablaðsins var og er að benda á það jákvæða sem fram fer í samfélaginu – allt sem kemur að umhverfis- og sjálfbærnimálum, samfélaginu, samfélagslegu réttlæti, jafnrétti, hjálpar- og þróunarstarfi og skyldum atriðum. Svona blað og fréttamiðlun ættum við að stofna til á Íslandi. Ég hef rætt þetta við nokkra sem tóku því vel, en ekkert hefur farið af stað (enn!).
Á Íslandi ríkir ótrúleg hefð fyrir því að ekki eigi eða megi fjalla um þau mál sem betur mætti fara í þjóðfélaginu. Þetta var rætt um í Víðsjá á RUV í gær. Sem sé, gagnrýnin hugsun er illa séð eins og Helga Vala Helgadóttir fjallaði um í Kvennablaðinu í gær. Þetta hefur verið mjög í umræðunni sl. daga og má nefna áramótaræður leiðtoga þjóðarinnar – ekki ómerkilegra fólk en forsetinn, forsætisráðherrann, nýskipaður unhverfisráðherra og biskupinn – sem öll hafa lagt út frá því að umræðan sé allt of neikvæð í samfélaginu og að ekki sé horft á það jákvæða sem erlendir sérfræðingar og aðrir bendi á um Ísland.
[quote font="0" align="right"]En þessi mál eru alls óskyld! Að fjalla á jákvæðan máta um ósérhlífið fólk sem vinnur fyrir samfélagið og/eða umhverfið er eitt – en að þagga niður í umræðu um spillingu, innanbúðabrask, frændsemi með meiru er allt annað![/quote]
En þessi mál eru alls óskyld! Að fjalla á jákvæðan máta um ósérhlífið fólk sem vinnur fyrir samfélagið og/eða umhverfið er eitt – en að þagga niður í umræðu um spillingu, innanbúðabrask, frændsemi með meiru er allt annað! Nú fer fram mikil barátta um völdin á Íslandi eins og þær hamfarir sem hafa átt sér stað í DV undanfarna mánuði sýna fram á og Björn Þorláksson fjallar um í Akureyri vikublað 7. janúar.
Ég hvet alla sem vilja láta í sér heyra – ekki vera feimin. Komið með vandamálið upp á yfirborðið og vinnið að því með öðrum að bæta umræðuhefðina, réttlætið og samfélagið. Saman getum við breytt Íslandi til hins betra.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir