„Í öllum kreppum felast nýir möguleikar“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að í næstu aðgerðum stjórn­valda þurfi að horfa til lít­illa fyr­ir­tækja, ein­yrkja og náms­manna. Hún segir Íslend­inga eina ekki geta ráðið því hvaða heims­mynd blasi við þegar far­ald­ur­inn verður lið­inn hjá.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir gaf munn­lega skýrslu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og við­bragða stjórn­valda við upp­haf þing­fundar í dag og fór þar yfir þær aðgerðir sem næstar eru á dag­skrá hjá stjórn­völdum. Hún sagði að stjórn­völd gerðu nú ráð fyrir því að fram­lengja hluta­bóta­leið­ina, en að rík­is­stjórnin gerði ráð fyrir því að gera hugs­an­lega ein­hverjar breyt­ingar á henni, „út frá þeirri reynslu sem komin er á leið­ina“.

„Upp­haf­lega mark­miðið var að þessi leið væri fyrir launa­fólk í land­inu, fyrst og fremst, til þess að tryggja afkomu launa­fólks og þess vegna var hún mjög opin og sam­þykkt mjög opin hér á Alþingi. Þetta þarf að meta núna þegar við skoðum fram­kvæmd leið­ar­innar,“ sagði Katrín.

For­sæt­is­ráð­herra sagði einnig að það stytt­ist í að við færum að sjá fram­kvæmd brú­ar­lána með rík­is­á­byrgð, en hún sagði að Seðla­bank­inn og ríkið væru við það að ná samn­ingum um fram­kvæmd­ina, ef samn­ingar hefðu þá ekki þegar náðst fyrr í dag.[links]

Katrín sagð­ist einnig ánægð með sam­stöð­una í sam­fé­lag­inu, en fór líka fram á það að sjö fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi drægju millj­arða­kröfur sínar á hendur rík­inu vegna mak­rílút­hlut­anna til baka og sýndu með því ábyrgð.

Lítil fyrirtæki, einyrkjar og námsmenn

Hún sagði að það blasti við að rík­is­stjórnin þyrfti að kynna frek­ari aðgerðir til skemmri tíma til að hjálpa litlum fyr­ir­tækjum sem hefðu þurft að loka vegna sótt­varna­ráð­staf­ana, ein­yrkjum sem ekki gætu sinnt vinnu sinni og náms­mönnum, sem margir hverjir hafa ekki fengið sum­ar­störf.

[adspot]

Hún sagði einnig að þegar far­ald­ur­inn væri lið­inn hjá myndi ný heims­mynd blasa við, sem erfitt væri að sjá fyrir sér á þessum tíma­punkti. „Sumt munum við ekki ráða við, um það hvernig málin þró­ast, en við getum ráðið við ansi margt. Eins og ég hef ítrekað sagt stendur íslenskt sam­fé­lag vel til þess að takast á við þennan far­aldur,“ sagði Katrín og nefndi sterka stöðu rík­is­fjár­mál­anna, lágt vaxta­stig og sam­fé­lags­legar stoðir eins og skóla­kerfið og heil­brigð­is­starfið.

„Í öllum kreppum fel­ast nýir mögu­leikar. Við höfum tæki­færi til að byggja hér upp á sviði nýsköp­unar, rann­sókna og þró­unar,“ sagði Katrín og bætti við að mögu­lega myndi far­ald­ur­inn virka eins og „hrað­all fyrir fjórðu iðn­bylt­ing­una“ þar sem vænt­an­legar breyt­ingar myndu ganga yfir hraðar.

Þá hefði far­ald­ur­inn minnt á það hversu hátt hlut­fall mat­væla á Íslandi væri inn­flutt. „Getum við ekki gert betur í því að fram­leiða aukið hlufall okkar mat­væla hér heima, og vera þannig öðrum minna háð um inn­flutn­ing mat­væla?“ spurði for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár