Trump dregur Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu

Donald Trump, Banda­ríkja­for­seti, til­kynnti fyrir skömmu að Banda­ríkin yrðu ekki hluti af Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald J. Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti fyrr í dag, við Hvíta húsið í Washington DC, að hann hefði ákveðið að draga Banda­ríkin út úr Par­ís­ar­sátt­mál­anum um aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum.

Ákvörðun hans tekur gildi strax í dag, en Trump sagði að samn­ing­ur­inn væri slæmur fyrir banda­ríska hags­muni; bæði vinnu­markað og aðra hags­muni. Hann sagð­ist til­bú­inn að semja aftur. „Við munum samt hafa hreint loft og hreint vatn,“ sagði hann.

Frum­kvöð­ull­inn Elon Musk, stofn­andi raf­bíla­fram­leið­ands Tesla Motors, sagði sig strax úr ráð­gjafa­ráði Trumps eftir ákvörð­unin varð ljós.

Xi Jinping, for­seti Kína, og leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ríkja hafa lýst því yfir að ákvörðun Banda­ríkj­anna hafi ekki áhrif á aðild þeirra að sam­komu­lag­inu, en Ísland er meðal þeirra ríkja sem á aðild að því. Það skuld­bindur þjóðir heims­ins til að draga úr mengun af manna­völdum.

Rex Tiller­son utan­rík­is­ráð­herra, og fyrr­ver­andi for­stjóri olíu­ris­ans Exxon Mobile, hafði ráð­lagt Trump að styðja Par­ís­ar­sam­komu­lagið.

Fjöl­miðlar í Banda­ríkj­unum hafa und­an­farna daga flutt fréttir af því, að Trump hafi ætlað sér að fara út úr sam­komu­lag­inu, þar sem hann hafi talið það slæmt fyrir Banda­ríkin, svo tíð­indin voru ekki óvænt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár