„Ég verð bara að standa vörð um börnin mín – það gerir það enginn annar“

Börn af erlendum eða blönd­uðum upp­runa verða fyrir for­dómum í skóla­kerf­inu og sam­kvæmt föður barna, sem orðið hafa fyrir aðkasti vegna húð­litar síns, er lítið um úrlausnir hjá skól­unum þegar kemur að þessum málum.

Fólk með annað lit­ar­haft en gengur og ger­ist á Íslandi þarf að búa við for­dóma – þá aug­ljósu og hina leyndu – og eru börn þar ekki und­an­skilin. Íslenskur faðir barna af erlendum upp­runa sem nú stunda nám í yngri bekkjum grunn­skóla segir að um leið og börnin hófu grunn­skóla­göngu sína hafi farið að bera á for­dómum í garð þeirra.

„Okkur nátt­úru­lega dauð­brá og létum þá vita sem áttu þarna hlut að máli,“ segir hann í sam­tali við Kjarnann. Alltaf hafi verið sama við­kvæðið – öllum hafi fund­ist miður að heyra af for­dómunum en engar afleið­ingar hafi verið fyrir hin börnin sem sýndu for­dómana. „Það eru bara inn­an­tóm orð sem koma og það er það sem krist­all­ast í kringum þetta. Allir eru rosa hissa og sorg­mæddir og finnst leið­in­legt að heyra, og þar fram eftir göt­unum, en svo nær það ekki lengra. Því miður.“

Hann gagn­rýnir skóla­yf­ir­völd og Reykja­vík­ur­borg þar sem hann er búsettur og segir að hann vilji að almennt verði tekið á þessum málum. Hann kýs að segja frá reynslu fjöl­skyld­unnar og barna sinna nafn­laust.

Öðruvísi börn fá þau skilaboð að þau séu ekki fullgildir meðlimir í samfélaginu

„Það er stað­reynd að kyn­þátta­for­dómar eru á öllum stöðum í sam­fé­lag­inu – hvort sem þeir eru ómeð­vit­aðir eða með­vit­aðir,“ segir fað­ir­inn og talar þar af reynslu þar sem börnin hans hafi þurft að upp­lifa slíkt. Hann nefnir enn fremur að lítið sé um fyr­ir­myndir fyrir börnin í opin­berri umræðu eða í fjöl­miðlum þar sem frekar séu valdir hvítir við­mæl­endur en fólk með annan húð­lit.

„Þótt þetta sé kannski ekk­ert stór­mál eitt og sér þá er þetta eins og í mál­tæk­inu: „Dropinn holar stein­inn.“ Það eru alltaf ein­hver smá­at­riði hér og smá­at­riði þar sem verða þess vald­andi að skóla­kerfið og sam­fé­lagið gefur þessum börnum sem eru öðru­vísi þau skila­boð að þau séu ekki full­gildir með­limir í sam­fé­lag­inu og hafi ekki sömu mögu­leika. Þetta fær að við­gang­ast og það er ekki tekið á þessu af neinni festu,“ segir hann.

Börn manns­ins hafa verið kölluð ýmsum nöfnum á skóla­göngu sinni, á borð við „drulli“, „kúkur“ og „nig­ger“.

„Í mínum augum er þetta allt grafal­var­legt. Mér finnst vera galið að það sé í boði að meta alvar­leika brots­ins – bara það að láta svona út úr sér er mjög alvar­legt.“

Hann til­kynnti fram­kom­una til skóla­yf­ir­valda en hann segir að það hafi engar afleið­ingar haft fyrir ger­endur eða for­eldra, ein­ungis hafi verið talað við ger­endur og for­eldr­arnir látnir vita. Honum finnst að bæði skóla­yf­ir­völd og sveit­ar­fé­lög þurfi að taka á mál­unum af meiri festu.

Barnið hefur fengið að heyra að hvítir séu betri en brúnir

Faðirinn hefur haft spurnir af skóla í Reykja­vík sem skil­greinir for­dóma sem ofbeldi og að þar sé rætt við þá nem­endur sem verða upp­vísir af því að sýna for­dóma. Þá sé hringt heim til for­eldra og þeir látnir vita um málið. Farið sé fram á það að nem­and­inn biðj­ist afsök­unar á orðum eða gjörðum sínum – og atvikið skráð í Mentor.

„Mér finnst þetta vera góð vinnu­brögð. Þarna eru skýr skila­boð send um að þetta sé ekki liðið.“

Ummælin sem við­höfð hafa verið uppi við börnin hans í skól­anum eru til að mynda að hvítir séu betri en brúnir, þau séu ljót af því að þau séu brún og þau geti ekki tekið þátt í elt­inga­leik af því að ein­hver barn­anna fái hroll þegar þau komi við svona brúna húð.

Jafn­framt þurfa þau að sitja undir röngum full­yrð­ingum, eins og „ þú hleypur ekki hrað­ast í bekknum af því að þú tekur svo stór skref“, þar sem lítið er gert úr lík­am­legu atgervi þeirra.

Faðirinn nefnir að auð­vitað séu þessi mál snúin. Í þessu til­felli sé hægt að spyrja hvort um sé að ræða hreina og klára öfund eða hvort húð­litur komi mál­inu við. Það sé erfitt að segja. „Ég sem for­eldri verð nátt­úru­lega samt að taka lægsta sam­nefnar­ann í þessu og draga þá ályktun að það sé verið að taka þau niður af því að þau séu öðru­vísi. Stundum hef ég rangt fyrir mér, ég við­ur­kenni það. Stundum er ég allt of agressífur hvað þetta varðar. Stundum hef ég hugsað eftir á hvort þessi hegðun hafi snú­ist um eitt­hvað annað. En ég verð bara að standa vörð um börnin mín, það gerir það eng­inn annar.“

Hann bendir á að þarna sé verið að planta einu litlu fræi sem muni hafa áhrif seinna á sjálfs­mynd­ina. „Það er nátt­úru­lega sárt að heyra svona frá bekkj­ar­fé­lögum,“ segir hann.

Ekki nóg að hringja bara heim – meira þarf að gera

Í eitt skiptið óskaði fað­ir­inn eftir því að nem­andi sem sagði for­dóma­full orð við barnið hans bæð­ist afsök­unar og að atvikið yrði skráð í Mentor. Svarið sem hann fékk var að í málum þar sem for­dóma­full hegðun væri sýnd hefði skól­inn haft það verk­lag að ein­ungis upp­lýsa for­eldra. Málinu væri því lokið af hálfu skól­ans.

Faðirinn telur að ekki sé nóg að hringja heim, heldur þurfi meira að koma til. Hann greinir jafn­framt frá því að ein­ungis einu sinni hafi bekkj­ar­systk­ini komið heim og beðist afsök­unar – af átta eða níu til­vikum.

„Það held ég að sé besta for­vörnin, að þegar þú gerir eitt­hvað þá þarftu að gang­ast við því sem þú sagðir og biðj­ast afsök­unar. Ég held reyndar að að stórum hluta sé þetta for­eldra­vanda­mál. Þeir þurfa að upp­fræða börnin sín og ekki leyfa þeim að kom­ast upp með svona hegðun. For­varn­irnar byrja á heim­il­inu – það er alveg á krist­al­tæru,“ segir hann og bætir því við að skóla­yf­ir­völd þurfi auð­vitað einnig að gera eitt­hvað í þessu. „Jú, það er ýmis fræðsla sem stendur til boða en mér finnst að fræðsla eigi að vera skylda í öllum skólum. Það verður að ræða og fræða starfs­fólk, nem­endur og for­eldra um fjöl­menn­ingu með það að mark­miði að upp­ræta þessa mein­semd.“

Afskiptaleysið erfiðast

Fordómar eiga sér þó ekki ein­ungis stað á skóla­lóð­inni heldur í frí­stund og í íþróttum einnig. Faðirinn segir að barnið hans hafi orðið fyrir for­dómum við íþrótta­iðkun og að mun betur hafi verið tekið á málum þar. Hann telur þó að upp­lýs­inga­flæðið á milli allra aðila sem um ræðir þurfi að vera betra. „Kyn­þátta­for­dómar fara ekk­ert í frí eftir skóla­tíma,“ segir hann.

Hann seg­ist þó mest vera von­svik­inn með það hversu kerfið sé seint til og lít­ill áhugi sé til staðar til að taka málin föstum tökum. „Það er þetta afskipta­leysi sem er svo erfitt. Og það er alvar­legt. Þetta er jafn alvar­legt að snúa blindu auga á ein­elti og að gera það sama gagn­vart fólki með annan húð­lit.“

Faðirinn seg­ist jafn­framt átta sig á því að þessi mál séu flókin en að ekk­ert muni breyt­ast nema ræða þetta. „Maður verður svo leiður á því að reyna að tala við til dæmis Reykja­vík­ur­borg um að gera ein­hverjar breyt­ingar. Af hverju ekki að senda skýr skila­boð um að kyn­þátta­for­dómar verði ekki liðnir? Af hverju þarf ég að flytja milli sveit­ar­fé­laga eða skóla svo þessi mál verði með­höndluð betur?“ Hann segir að það eigi ekki að þurfa. „Ég á að geta valið mér hverfi til að búa í án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því hvernig barn­inu mínu reiðir af í skóla og frí­stundum af því það er með annan húð­lit.“

Öráreiti alls staðar

Börnin þurfa einnig að búa við það að verða fyrir öráreiti á götum úti. Faðirinn segir að þetta sé alls staðar – til að mynda sé mikið horft á börnin í sundi og í almanna­rýmum. Jafn­framt „djöflist“ ókunn­ugt fólk í hár­inu á þeim án þess að spyrja um leyfi. Hann segir að börnin séu hætt að kippa sér upp við þetta enda sé þetta því miður orðin hluti af veru­leika þeirra.

„Þau hafa „sætt sig“ við þetta og eru hætt að tala um þessa hluti. Jafn­framt hafa komið tíma­bil þar sem þau hafa sagt að þau vilji ekki vera svona á lit­inn,“ segir faðir barn­anna og áréttar að sam­fé­lagið í heild sinni og stofn­anir innan þess verði að takast á við þetta vanda­mál saman og stoppa öráreiti og for­dóma.

Faðirinn rifjar í þessu sam­hengi upp rasísk ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra sem hann við­hafði í vetur um fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna, Vigdísi Häsler, en málið var til umfjöll­unar í fjöl­miðlum á sínum tíma. Ráð­herr­ann á að hafa vísað til hennar sem „hinnar svörtu“.

Málið fordæmisgefandi – Telur ráðherrann hafa komist of auðveldlega frá því

Vigdís sagði í yfir­lýs­ingu að orðin sem ráð­herr­ann hefði notað hefðu verið mjög sær­andi og að það væri ekki hennar að bera ábyrgð á þeim. „Duldir for­dómar eru gríð­ar­legt sam­fé­lags­mein og grass­era á öllum stigum sam­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn.“

Sigurður Ingi baðst afsök­unar og sætt­ust þau síðar – og er mál­inu lokið af hálfu þeirra beggja.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra. Mynd: Birgir Þór
Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór

Föðurnum finnst ráð­herr­ann aftur á móti hafa kom­ist allt of auð­veld­lega frá því máli. „Væri ekki hægt að skora á hann að fara í skóla og ræða þessi mál – þar sem hann myndi við­ur­kenna hvað hann gerði? Það yrði ágætis heilun fyrir hann og aðra.“

Hann telur að málið sé for­dæm­is­gef­andi, þ.e. ef ráð­herra getur sagt svona hluti af hverju ættu þá aðrir ekki að tala með sama hætti. Hann er harður á því að afsök­un­ar­beiðnin sé ekki nóg.

Ekkert annað en ofbeldi

Varðandi for­dóma í skólum þá telur fað­ir­inn að skrá eigi til­vik þar sem börn sýna for­dóma sem ofbeldi til þess að senda skýr skila­boð út í sam­fé­lagið að þetta sé ekki liðið. Svo sé það á ábyrgð for­eldr­anna að taka á þessu með börn­unum sínum og fá aðstoð ef þess þarf.

Honum finnst að sá sem verður fyrir ofbeld­inu eigi ekki að þurfa að bera ábyrgð á því sem aðrir gera. Að þol­and­inn eigi til að mynda ekki að þurfa að skipta um skóla til að forð­ast ger­and­ann. Þannig sé verið að senda alröng skila­boð. Og ger­and­inn eigi auð­vitað að fá aðstoð en við­ur­kenna þurfi vanda­málið.

„Þeir sem verða upp­vísir að kyn­þátta­for­dómum eiga að vera teknir úr bekknum til að fá fræðslu þar sem farið væri yfir þessi grunn­gildi. Þetta er ekki flókið í útfærslu. Það er ekk­ert annað en ofbeldi að vera að djöfl­ast í öðrum sem eru af öðrum upp­runa,“ segir hann að lokum. Það verði að taka á þessum málum af festu og þar séu fræðsla og skýr skila­boð öfl­ug­ustu vopnin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár